Bræðrabandið - 01.03.1978, Page 10
Hvaáa Þýáingu hafa tref jaefni
í matnum?
Nýlega var þess getið í blaðagrein um
kransæðasjúkdóma í íslandi að við værvun
nú stödd í upphafi "trefjaaldar". Að
vissu leyti eru það orð að sönnu þar
sem fátt hefur vakið meiri athygli
lækna og manneldisfræðinga á vrndan-
förnum árum en hin svokölluðu trefja-
efni í fæðu. Um þessi efni skrifaði
Ársæll Jonsson læknir meðfylgjandi
grein fyrir Fréttabréf um heilbrigðis-
mál.
Þótt ekki séu nema fimm eða sex ár
síðan greinar um trefjaefni í fæðu
fóru að birtast í læknatímaritum þá eru
áratugir síðan náttúrulækningamenn
boðuðu hollustu grófmetis og bentu
jafnframt á skaðsemi ofmalaðs hveitis
og sykurs í fæðu manna. Illu heilli
snerust læknavísindin öndverð við kenn-
ingum þeirra á þeim tíma, en nú hafa
viðhorfin breyst. Það er þó rétt að
geta þess að hugmyndir um hollustu
grófmetis eiga sér eldri sögu og
sjálfur Hippokrates, faðir læknis-
fræðinnar, taldi það skipta miklu máli
fyrir mannslíkamann hvort brauðið væri
bakað úr grófu mjöli eða fíngerðu eða
hvort hveitisins væri neytt með klíðinu
eða án þess.
Það sem einkum hefur ýtt undir
áhuga manna á trefjaefnunum á síðustu
árum er sú tilgáta að trefjaefnaskortur
í fæðu Vesturlandabúa sé ein höfuðorsök
fyrir mörgum algengim sjúkdómum sem
herja á nútímamanninn. Með öðrum
orðum að trefjaefnaskorturinn hafi
orðið þess valdandi að Vesturlandabúar
séu eins og lýst hefur verið "tannlaus-
ir, of feitir og með harðlífi."
HVAÐ ERU TREFJAEFNI?
Það sem hér eru kölluð trefjaefni
er þýðing á enska hugtakinu "dietary
fibre". Með því er ekki átt við sýni-
legar trefjar eða tægjur, heldur efni
sem frásogast (meltast) ekki í mjó-
girni mannsins, en berast niður í
ristil að aflokinni meltingu, þar sem
þau gerjast enn frekar og verða að
burðarefnum hægða.
Trefjaefnin eru aðallega samsett
úr svonefndum kolvetnissameindum af
ýmsum gerðum, en í náttúrunni eru þau
sem frumuhýði planta og jurta. Trefja-
efnin eru þannig undirstöðuefni fyrir
lífrfki jarðarinnar og allar jurtaætur,
þar á meðal maðurinn, neyta þeirra í
ríkum mæli. í náttúrunni eru trefja-
efnin samofin orkuefnum jurtarinnar, en
það eru einkum þau sem hin æðri dýr
sækjast eftir. í jarðávöxtum, grænmeti
jafnt sem kornmat, eru trefja- og orku-
efnin venjulegast bundin í nokkuð
ákveðnum hlutföllum. Sem dæmi má nefna
að í rófum geta verið um 14% orkuefni
og 2% trefjaefni og í heilkorni um 70%
orkuefni en 10% trefjaefni.
VINNSLA ORKUEFNA
Það eru orkuefnin sem maðurinn er
sólgnastur í en trefjaefnin eru að
jafnaði hörð undir tönn og þess vegna
er þeim gjarnan hent þegar tækifæri
gefst. Á þessari öld hafa orðið stór-
stígar framfarir í matvælaiðnaði,
mölunartækni aukist og hafin framleiðsla
á sykri í stórum stíl. Með því að mala
kornið og skilja það frá hýðinu eða
að kreista safann úr jurtinni og þurrka
er hægt að framleiða nær hrein orku-
efni úr jurtinni. Klíðinu og hratinu
er fleygt og þar með trefjaefnunum
ásamt ýmsum öðrum mikilvægum næringar-
efnum og vítamínum. Á þessari öld hafa
hvítt hveiti og sykur hætt að vera
hnossgæti hinna ríku en eru orðin ein
aðaluppistaða almúgafæðis á Vesturlönd-
um í dag. Hvítt hveiti og sykur eru
algengustu dæmin um svokölluð fínunnin
kolvetni, sem innihalda eðlilegt hlut-
10