Bræðrabandið - 01.03.1978, Page 15
FRÉTTIR
STÓRA VIKAN
Fórn stóru viku verður hvíldardaginn
25.mars. Sérstök umslög fylgja blaðinu
og eru þau ætluð þessari fórn. Verkefni
það sem nýtur góðs af fórninni er
Techiman-skólinn fyrir stúlkur í Ghana.
Lesið grein um skólann annars staðar í
blaðinu.
TÓNLEIKAR
Áformað er að kirkjukór Reykjavíkur-
safnaðar flytji kantötxina Frá Olíufjall-
inu til Golgata í Aðventkirkjunni í
Reykjvík á föstudaginn langa. Kantatan
verður sungin á ensku, þannig var hún
samin. íslensk þýðing mun fylgja dag-
skrá.
BINDINDISSTARF
í október 1977 var haldið fyrir
almenning námskeið til að hjálpa fólki
að hætta reykingum. Tvö önnur námskeið
hafa verið haldin síðan og er því síðara
nýlokið. Voru þau bæði haldin í skólum
í Reykjavík fyrir nemendur og kennara.
Öll þessi námskeið tókust vel og reynd-
ust hjálp fyrir þá sem þau sóttu.
ÆSKULÝÐSSTARF
Nýlokið er bænaviku á Hlíöardals-
skóla. Ræðiimaður var J.Huzzey æsku-
lýðsleiðtogi frá Bretlandi. Bænavikan
reyndist mörgum mikil blessun enda
flutti ræðumaður athyglisverðan boðskap.
Bænavikan er ein af blessunum aðvent-
skólans - blessun sem börnin okkar mega
ekki fara á mis við.
Um svipaö leyti hélt J.Huzzey sam-
komu og umræðufund með ungu fólki í
Reykjavíkur kirkju. Einnig var sér-
stakur fræðslufundur haldinn fyrir
skátaleiðtoga og stjórnir ungmenna-
félaga.
BASAR BARNASKÓLA í REYKJAVÍK
Ákveðið hefur verið að halda basar
19.mars til ágóða fyrir barnaskóla að-
ventista í Reykjavík. Tekið verður á
móti munum svo og kökum að morgni 19.
mars, einni á skrifstofunni Ingólfs-
stræti 21.
ÚTGÁFUSTARFIÐ
Verið er að þýða tvær bækur eftir
E.G.White, daglegar hugleiðingar sem
reynt verður að koma út fyrir árslok
og Desire of Ages sem fjallar um
ævi Krists. VeriÖ er að prenta 8.
bindi af Sögum Biblíunnar sem mun
koma fyrir vorið. Einnig er unnið
stöðuglega við nýja sálmabók.
UNGMENNAMÓT
Mótið verður 30.júní til 7.júlí
sennilega að Hlíðardalsskóla en
staður hefur þó ekki endanlega verið
ákveðinn.
SUMARMÓT
verður haldið að Hlíðardalsskóla
og hefst föstudaginn 7.júlí og stend-
ur yfir hvíldardag og sunnudag. Mótið
verður í beinu framhaldi af ungmenna-
mótinu.
TRÚBOÐSSVÆÐI ENDURVEKJA TJALDBÚÐASAMKOMU
1 fyrsta sinn í mörg ár héldu Sabah
og Taiwan trúboðssvæðin í Suð-Austur
Asíu og Suður-Kína tjaldbúðasamkomur
nú á umliðnu sumri. Taiwan tjaldbúða-
samkoman var haldin á Taiwanskóla
aðventista. Fimm hundruð voru við-
staddir. L.R.Colburn, forseti Suður-
Kína eyjasambandsins og M.Y.Hsiao
forseti Taiwantrúboðsins stjórnuðu
mótinu og auk þess tóku ritarar margra
BRÆÐRABANDIÐ
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Sigurður Bjarnason.
Útgefendur: Aöventistar á íslandi.
15