Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Side 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 11
Dæmdurfyrir
hálft gramm
Héraðsdómur Austur-
lands dæmdi á dögunum
ungan Reykvíking, Kjartan
Guðmunds-
son, fyrir að
hafa í fórum
sínum samtals
hálft gramm af
grasi, maríjú-
ana, og rúmt hálft gramm
af tóbaksblönduðu grasi í
tvö skipti þegar húsleit var
gerð í vinnubúðum
Impregilo við Kárahnjúka.
Kjartan mætti ekki fyrir
dóminn en fékk 56 þúsund
króna sekt fyrir að eiga efti-
in, sem fullvíst má teíja að
hafi verið til eigin neyslu.
Ennffemur var lagt hald á
topp úr topplyklasetti og
reykjarlón sem útbúið hafði
verið úr gosflösku.
Þrengt að
Fjölbraut
Skólameistari Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á
Akranesi segir að
svo virðist sem yf-
irvöld hafi ákveðið
að fækka nem-
endum skólans
þrátt fyrir aukna aðsókn.
Þetta kemur fram í árs-
skýrslu skólans fyrir árið
2004. Bæjarráð Akraness
hefur sent þingmönnum og
menntamálaráðherra
skýrsluna og bent sérstak-
lega á að skólinn hafi ekki
fengið uppgjör fýrir 564
ársnemendur sem í skólan-
um voru í fyrra, heldur að-
eins fyrir 544 ársnemendur.
Skorað er á þingmenn og
ráðherra að sjá til þess að
staðið verði við þá samn-
inga sem gerðir hafi verið.
Systir Maríkó
selur píanóverk
Mamiko Dís Ragnars-
dóttir hefur sent frá sér þrjú
píanóverk en
þau má finna
og kaupa á
tónlistarvefn-
um tonlist.is.
Þessi ungi
Reykvíkingur
er japönsk-íslenskættuð og
er yngri systir Mariko Mar-
grétar sem er sjónvarps-
áhorfendum Skjás eins að
góðu kunn. Lögin þrjú
heita Söknuður, Dögun og
Vals í d-moll og eru öll
frumsamin verk eftir Mam-
iko Dís. Hún hefur lært
klassískan píanóleik við
Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og gerir enn
eftir því sem ff am kemur á
tonlist.is
Frjálshyggju-
félagið mót-
mælir
„Við erum al-
deilis ekki sáttir
við þessar hug-
myndir," segir
Gunnlaugur Jóns-
son hjá Frjáls-
hyggjufélaginu
um hugmyndir
um breytingar á fjarskipta-
lögum þar sem lagt er til að
fjarskiptafyrirtækjum verði
skylt að halda skrá um not-
endur. Gunnlaugur segir að
líkja megi hugmyndunum
við að venjuleg samtöl fólks
í heimahúsum og manna-
ferðir séu skrásettar af rík-
inu. Eini munurinn sé sá að
það sé auðveldara tækni-
lega að svo stöddu að skrá-
setja fjarskipti en önnur
samskipti.
Tillögur meirihluta sjálfstæðismanna í Ölfusi um kennslustundir sæta harðri gagn-
rýni frá Baldri Kristjánssyni, bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins og sóknarpresti í
Þorlákshöfn. Baldur segir bæinn skera niður tímafjölda hjá þeim sem minnst mega
sín; fötluðum, þroskaheftum og nýbúum. Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri segir
gagnrýni Baldurs á misskUningi byggða.
Prestnr til varnar nýbúum
og löfluðum í Þurlákshöfn
Harðar deilur urðu um nýja skipan kennslumála í bæjarstjórn
Þorlákshafnar. Séra Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Þorláks-
höfn og bæjarfulltrúi framsóknarmanna, segir tillögur meirihluta
sjálfstæðismanna bima fyrst og fremst á fötluðum nemendum
með alvarleg náms- eða hegðunarvandamál og nýbúum.
„Það er auðvitað nauðsynlegt að
spara og það kann að vera nauðsyn-
legt að skera niður. En allt vinnuferl-
ið í þessu máli er afar sérkennilegt
og ekki til þess fallið að skapa ein-
ingu enda niðurstaðan ekki ásætt-
anleg," segir Baldur Kristjánsson
sóknarprestur í bókun sinni á fundi
bæjarstjórnar á fimmtudaginn.
Á fundinum var jafhframt lagt
fram bréf frá kennararáði grunn-
skólans þar sem mikilli óánægju og
áhyggjum yfir nýja skipulaginu er
lýst yfir.
Bitnar á nýbúum
Ólafur Aki Ragnarsson, bæjar-
stjóri í Þorlákshöfn, segir nýja skipu-
lagið snúast um reglur um kennslu-
stundafjölda. „Þetta gengur út á
hver hámarksnemendafjöldi á að
vera í bekk og hvemig ferillinn á út-
hlutun á kennslustundum á að
vera,“ segir Ólafur.
Ólafur Áki Ragnarsson bæjarfulltrúi
Ölfuss Segir gagnrýni Baldurs á misskilningi
byggöa.
„Þar er þeirri skoðun
lýst umbúðalaust að
niðurskurðurinn muni
bitna fyrst og fremst á
fötluðum nemendum
með alvarleg náms-
eða hegðunarvanda-
mál og erlendum
nemendum skólans,"
Hann segir málefhi nýbúa eða
fadaðra ekki blandast inn í málið.
„Þetta eru aðeins reglur til að vinna
eftir," segir hann.
Bara reglur
Reglumar sem um ræðir snúa að
skilvirkari úthlutun á kennslu-
stundaíjölda. Þannig þurfa skóla-
yfirvöld að sækja sérstaklega um
aukaúthlutun, til dæmis fyrir nýbúa-
ffæðslu.
Fræðsluráð bæjarins tekur þær
umsóknir fyrir og ákveður hvort
veittir verði aukatímar eftir rök-
stuðning og útreikning á kostnaði.
Með þessu vill bærinn fá betri yfir-
sýn um rekstur skólans, auðvelda
áætlanagerð og skapa skilvirkari
stjórnsýslu.
Prestur bókar
í bókun séra Baldurs gagnrýndi
hann að ekki hefði verið gefinn
nægur tími til að ræða nýju tillög-
una, fjölmargt lægi á huldu, til dæm-
is hvað fælist í því að skera nýbúa-
fræðslu niður um 25%.
„Ég vek athygli á bréfi kennara-
ráðs sem er á dagskrá þessa fundar,
þar er þeirri skoðun lýst umbúða-
laust að niðurskurðurinn muni
Nýbúar á íslandi Mikillfjöldi
nýbúa er I Þorlákshöfn
ogganga
samskipti þeirra við heimamenn
ekki átakalaust fyrirsig.
bitna fyrst og fremst á fötluðum
nemendum með alvarleg náms- eða
hegðunarvandamál og erlendum
nemendum skólans," segir í bókun
Baldurs.
Mikið er af nýbúum í Þor-
lákshöfn. Hafa samskipti
þeirra og innfæddra ekki
gengið snurðulaust fyrir sig.
DV greindi frá því á dögun-
um þegar Pólverji réðist á
Þorlákshafnarbúa og stakk
með hníf. Ástæðuna sagði
hann vera kynþáttahatur
heimamanna.
Tekistá
Séra Baldur Kristjánsson var ekki
eins harðorður í garð meirihluta
sjálfstæðismanna þegar DV náði tali
af honum og í bókun sinni á
bæjaráðsfundi. Baldur sagði
það hlutverk minnihlutans
að gagnrýna tillögur mál-
efnalega.
„Menn tókust
áumhvortíþess-
um nýju tillögum
fælist niður-
skurður sem ég
var hræddur um á fundinum. Nú
hafa fulltrúar meirihlutans fullviss-
að okkur um að
þetta sé ekki nið-
urskurður þó
vissulega hafi
litið út fyrir
það.“
simon@dv.is
Baldur Kristjánsson sóknarprestur i
Þorlákshöfn og bæjarfulltrúi Segir
mðurskurð bæjarins bitna á nýbúum.
József Kozma var handtekinn með metmagn kókaíns innvortis
Ungverski kókaínsmyglarinn fyrir dóm
í Héraðsdómi Reykjavíkur var í
gær þingfest mál ríkissaksóknara
gegn József Kozma, ungverskum
rikisborgara sem handtekinn var á
Keflavíkurflugvelli með tæpt kfló af
kókaíni falið innvortis 30. desember
síðastliðinn.
Málið vakti mikla athygli á sínum
tíma enda hafði aldrei jafn mikið af
efnum fundist í manni hér á landi.
Til að mynda var Vaidas Jucevicius
með mikið minna magn innvortis
þegar efnin stífluðu iður hans með
þeim afleiðingum að hann dó.
Vitað er til að József Kozma, sem
vann sem barþjónn á Kanaríeyjum
áður en hann kom hingað til lands,
átti I miklum erfiðleikum með að
halda kókaíninu í líkamanum og
þurfti að gleypa aftur um 300
grömm eftir að þau höfðu skilað sér
gegnum meltingarveginn. Meira að
segja virðist sem hann hafi gengið
örna sinna í flugvélinni á leiðinni til
landsins og gleypt efnin aftur.
Stuttu eftir að József var gripinn á
Keflavíkurflugvelli var Nígeríumað-
ur handtekinn og dæmdur í gæslu-
varðhald grunaður um tengsl við
smygl Józsefs. Nígeríumaðurinn var
stöðvaður við komuna til landsins
með 670 grömm innvortis.
„Það er ljóst af framburði
Kólca/n í smokkum Eitt klló afkókalni fannst á
Józset Kozma þegar hann var handtekinn á
Keflavlkurflugvelli. Voru öll efnin falin innvortis.
mannsins að þetta er ekki í fyrsta
skipti sem hann flytur fíkniefni með
þessum hætti á milli landa," sagði
Jóhann R. Benediktsson, sýslumað-
ur á Keflavíkurflugvelli, skömmu
eftir að József Kozma var handtek-
inn.
Jafnrétti
sagt í ólestri
m
„Allt þetta kjörtímabil hafa
jafnréttismál verið afgangs-
stærð,“ segja fulltrúar B-lista og
G-lista í bæjarráði Mosfellsbæjar:
„Með sama áframhaldi verður
jafnréttisáætlun bæjarins lftið
meira en rykfallið plagg og sýnir
að núverandi meirihluti hefur
ekki áhuga á að bærinn starfi í
anda áætlunarinnar." Bæjarfúll-
trúar meirihluta Sjálfstæðisflokks
segja ýmislegt hafa verið gert í
jafhréttismálum: „Hefur meðal
annars verið lögð rik áhersla á að
allar nefndir bæjarfélagsins til-
einki sér skipulagða og markvissa
vinnu í jafnréttismálum."