Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Qupperneq 31
DV Hér&nú ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 31 íklega Við höfum að sjálfsögðu bullandi trú á að Selma fari upp úr undanúrslitakeppninni í Eurovision. Veðbankar og netsíður ýmiss konar helgaðar keppninni eru á sama máíi. Sterkt lag Einn frægasti Eurovision-pælarinn er Graham Soult. Hann spáir fyrir um úrslit á heimasíðunni sinni og segir um fulltrúa íslands: „ísland kemur á eftir hollenska laginu svo við höfum tvo sterk- ustu fulltrúa undanúrslitanna hlið við hlið. Lögin eru þó það ólík að hvorugt þarf að gjalda fyrir það að vera flutt svona nálægt hvort hinu. Lag Selmu er sterkt og henni gekk vel í Eurovision síðast. Það verður því mjög óvænt ef hún kemst ekki upp úr undanriðlinum." Lesendur Grahams em honum flestir sammála, en einstaka maður er með leið- indi og finnst lagið of líkt einhverju með Brimey Spears. Veðbankar og netkannanir sammála Kannanir á netinu staðfesta þann byr sem Selma er með. Lagið er víðast talið líklegast til að komast upp úr undanriðlinum og sumar síð- ur ganga jafiivel það langt að spá Selmu sigri. Hinir frægu veðbankar em líka famir að taka við veðmálum um Eurovision-keppnina. Hjá Centrabet er Selma í þriðja sæti á eftir Noregi, sem er spáð sigri, og Grikldandi, en hjá Reada- bet sem safnar saman niðurstöðum frá fimm veðbönkum er Selma í fimmta sæti, en Grikkj- um er spáð sigri. Að þessu sögðu megum vuð alveg fara að undirbúa tvö Eurovision-partí í maí. Fyrsta partíið verður fimmtudaginn 19. maí þegar Selma burstar undanriðilinn og svo verður aðalpartíið laugardaginn 21. þegar Selma slær f gegn og vinnur Eurovision. Hmm... hefur þetta kannski heyrst einhvern tímann áður? Elton gjaímildur Nýtt andlit L'Oreal Elton John gaf alls um 22 milljónir punda til góð- gerðarmála á síðasta ári sem gerir hann að gjaf- mildasta manni tónlistarbransans. Þetta er um 12% af auðævum hans og voru gjafirnar til stofnana tengdum baráttunni gegn alnæmi, læknavísindum, börnum og tónlist. Söngkonan Gwen Stefani hefur ver- ið valin best kiædda kona heims af tlskutímaritinu Harpers & Queen. Þar með sló hún við Kate Moss sem sigraði I fyrra. Moss varð að sætta lædda kona sig við þriðja sætið en Dita Von Teese, kærasta Marilyns Manson, varð I öðru sæti. Sienna Miller varð í þvl fjórða og Cate Blanchett náði sjötta sætinu. Eva Longoria, sem leikur í Aðþrengd- um eiginkonum, verður næsta andlit L'Oreal. Leikkonan glæsilega hefur skrif- að upp á samning sem metinn er á 115 milljónir króna við snyrtivörurisann. Þar með fetar Eva í fótspor kvenna á borð við Jennifer Aniston, Beyoncé og Natalie Imbruglia. 'í&W. Selma Með góðan byr í Eurovision. §P 44 dagar eru í undankeppnina í Eurovision. Sigur- líkur Selmu er all- nokkrar sé miðað við umræðuna á netinu og spár veðbanka. am mm. : Úlfur Chaka Karlsson, söngvari og myndlistarmaður, er 29 ára I dag. „Dula umlýkur þennan mann. Hann leyfir ekki hverjum sem verð- ur á vegi hans að kynnast sér náið. Hann er góð manneskja og mjög dreyminn. Hann virð- ist eflaust skrýtinn I augum sumra en það er eingöngu misskilningur þeirra sem þekkja hann ekki," segir I stjörnuspá hans. 'úlfur Chaka Karlsson Vatnsberinn gojan.-u. tebr.i Llttu vandlega I kringum þig næstu daga og athugaðu hvenig landið liggur. Ef þú heldur báðum fótum niðri á jörðlnni og tekur mark á tilfinningum þínum og þrám munu þrár þínar til langs tlma rætast svo sannarlega. .Æ Fiskarnir (i9.febr.-20.nars) Stjarna fiska býr yfir góðum heilindum sem birtast sjaldan á þessum árstíma (apríl). Hrúturinn (2i.ims-i9.mú) Þakkaðu I auknum mæli fyrir það sem þú færð daglega og sjá, hlutirn- ir reynast auðveldari. Fólki fæddu undir stjörnu hrútsins finnst jafnvel þessa dag- ana að öðrum sé meira gefið en því sjálfu en þannig er það ekki heldur er hér einungis á ferðinni þín eigin llðan. NaUtÍb (20.april-20.mt) Gleymdu ekki að gleðja þá sem I kringum þig eru því þannig eflir fólk eins og þú eigið karma á mjög jákvæðan máta. Sama hve lítinn tíma þú hefur fyrir fólkið sem þú elskar eða félaga ættir þú að reyna að gefa eitthvað af þér án þess að fara fram á eitthvað I staðinn. V\bmm\\ (21.mal-21.júní) Losaðu þig við ákveðnar skoð- anir sem þú virðist ómeðvitað halda fast I af einhverjum ástæðum. Lærðu að þekkja þig og langanir þlnar. Krabbinn(ajiim-22/ii)ð Hæfileiki þinn til að leggja mikið á þig birtist. \.\6n\b 123. júli-22.ágúst) Aðeins hjarta þitt veit rétta svarið en hjarta Ijónsins hefur ágætt innsæi og skynjar það sem rétt er. Hér birtist fortíð þín þar sem þú virðist vera fastur/föst I liðnum atburðum. Þessi umtalaöa llðan er val af þinni hálfu (stundum þarf að taka á honum stóra sínum til að halda ótrauður áfram og breyta reynslu sinni I ávinning fyrir sam- ferðamenn og ekki síður sjálfið). Meyjangj.dgto-22-apr.j___________ Alls ekki leyfa þversögnum að hafa áhrif á Itðan þína þegar skoðanir annarra koma fram í dagsljósið og mundu að sérviska þýðir að hafa sér- staka visku. Reyndu að sjá líf þitt (raun- særra Ijósi með því að skoða það utan frá. Vogin (23.sept.-23.okt.) Vogin birtist hörundssár um þessar mundir. í hvert sinn sem þú mætir mótstöðu er þér ráðlagt að átta þig sem fyrst á þeirri staðreynd að þeg- ar þú gengur sem harðast fram verður mótstaðan öflugri. Sporðdrekinn (2ukt.-21.n0v.) Gleymdu ekki að kapp þitt getur snögglega snúist yfir í fljótræði eða ráðleysi og því ættir þú að undir- búa þig vel fyrir næsta skref sem þú ert um það bil að stíga. Bogmaðurinn(22./Miv.-2i.</esj Framkvæmdagleði á vel við stjörnu bogmanns sem er sannarlega já- kvætt ef þú ert meðvitaður/meðvituð um það og nýtir hana þér til framdráttar. Steingeitin (22. fe-?9.janj Hér umlykur öryggi og ástúð hjarta þitt þar sem þú virðist njóta þín mjög vel. SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.