Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 Menning DV Tvaer snallar tón- listarkonur spila norðan og sunnan í vikunni. Edda og Bryndís Þær stöllur Bryndís Halla Gylfa- dóttir sellóleikari og Edda Erlends- dóttir píanóleikari verða á ferðinni næstu daga, halda tónleika fyrst á Hvammstanga á fimmtudag 7. apríl og í Salnum á Tíbrárhljóm- leikum við nýtt tungl þann 10. apríl. Spor þeirra liggja víðar: nýút- kominn diskur þeirra með verkum eftir Kodaly og fleiri hlaut nýlega íslensku tónlistarverðlaunin og munu þær spila sömu verk á báð- um þessum tónleikum. Þær eiga langt samstarf að baki og hafa leikið saman á Listahátíð, á Kammertónleikum á Klaustri sem Edda er upphafsmaður að, í Saln- um og Iðnó, í París og víðar í Frakk- landi. Efiiisskrá þeirra er þessi: Ævintýri eftir Leos Janacek, sónata nr. 2 op. 26 eftir George Enescu og sónata op.4 eftír Zoltan Kodaly; og að síðustu Tilbrigði við slóvneskt stef eftír Bohuslav Martinu. öll eru verkin eftir stórmeistara Mið- Evrópu. Þau voru öll uppi á tímum þjóðlegrar vakningar og sóttu inn- blástur í alþýðutónlist landa sinna. Verkin bera þess merki, hvert á sinn hátt með dansandi hljómfalli og tregablöndnum laglínum. Bryndís Halla Gylfadóttír selló- leikari hlaut í febrúar íslensku tón- listarverðlaunin sem flytjandi árs- ins. Hún hefur verið virkúr hljóð- færaleikari á íslandi um árabil bæði sem einleikari, í kammertón- list og sem leiðandi sellóleikari Sinfóníuhljómsveitar íslands. Hún er meðlimur í Tríó Nordica, Ethos- kvartettinum, Caput og kammer- hópnum Le Grand Tango. Hún heldur einnig reglulega tónleika með Tríó Izumi Tateno. Leik Bryndísar Höllu er að finna á fjölda geisladiska og hlaut diskur hennar og Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur „Ljóð án orða“ íslensku tónlistarverð- launin árið 1998. Edda Erlendsdóttir píanóleikari býr og starfar í París og er virk í tón- listarlífinu á íslandi. Hún er með- limur í kammerhópnum Le Grand Tango sem undir stjóm Oliviers Manoury hefur sérhæft sig í flutn- ingi á argentískum tangó. Edda hefur gert fjölda upptökur fyrir bæði fyrir hljóðvarp og sjónvarp. Hún hefur gefið út geisladiska með píanóverkum eftir C.P.E.Bach, Tchaikovksky, Grieg og Haydn sem hlotið hafa viðurkenningu og lof gagnrýnenda. Valdið er frekar greint Sagnfræðingafélagið heldur áfram hádegishjali í Norræna húsinu og f dag kl. 12.05 heldur Ingólfur Ásgeir Jóhannesson sagnfræðingur og menntunar- fræðingur eríndi sem hann nefn- ir Valdið í orðræðunni: áhrif sagnfræðingsins Foucaults í menntunarrannsóknum. Meginefni erindisins er um hugtök og álitamál í greiningu á orðræðu og rannsóknum á vald- inu sem felst í orðræðu. Rætt verður um muninn á opnu valdi, samsæri og valdi sem felst í eigin ögun, t.d. í því þegar starfsmenn ríkisstofnana taka upp hug- myndir um kostnaöarvitund og reiknilíkön og gera að sínum á beinan eða óbeinan hátt og reyna aö spara fýrir okkur skatt- greiðendur. Sérstök áhersla er lögð á samspil þessara tegunda valds og rökstutt að valdið í orð- ræðunni felist í því samspili. Einnig verður rætt um nokkur álitamál um hvernig orðræða er greind, einkum á hvern hátt er hægt að velja skjöl. Þá verður fjallað um hvemig hugtakið atburður er notað í orðræðu- greiningu og grein- ingu á valdi. Iföfundur notar allmörg dæmi úr eigin rannsóknum á menntamálaorðræðu og náttúruvemdarorð- ræðu og segir frá áhrifum tveggja nýlega skýrslna frá Ríkisendur- skoðun á umræður um undir- búning nemenda í kennaranámi, einkum hvernig skilvirknihugs- un skýrslnanna mótar eigin hugsunarhátt. Fundurinn er öllum opinn sem vilja heyra útleggingar Ing- ólfs á hinum fræga, franska heimspekingi og kenningasmið en fundurinn hefst stundvíslega. Foucault og valdið í skýrslugerð. Þeir eru nítján sem sækja um starf safnstjóra hjá Listasafni Reykjavíkur, eina valdamestu stöðu í myndlistarheimi landsins, vilja sumir meina. Starfið var aug- lýst erlendis enda sækja sjö um frá útlöndum en heimamenn eru þrettán. Starfið verður veitt á næstu vikum en nýr maður mætir í vinnu þann 1. júlí. Courtauld-stofnuninni, sem er sjálf- stætt starfandi listfræðingur og hefur gefið út rit um búningasögu og ljós- myndir. Menntun og birt rit Skilyrði auglýsingar voru að við- komandi hefði „framhaldsmenntun á háskólastígi sem tengist viðfangs- efnum safnsins, þekkingu á myndlist og reynslu af lista- og menningar-. starfi auk reynslu og hæfileika á sviði stjómunar, starfsmannahalds og rekstrar. Jafnfiamt vom gerðar kröfur um reynslu af alþjóðlegri samvinnu á vettvangi myndlistar og að viðkom- andi umsækjandi gerði grein fyrir framtíðarsýn sinni fyrir Listasafn Reykjavíkur." Athyglisvert að hér er einkum litíð til pröfa en ekki útgefinna rita um myndlist en ekki mun hafa verið óskað ritaskrár í umsókn samkvæmt upplýsingum Signýjar Pálsdóttur sviðstjóra menningarskrifstofu borg- arinnar. Ljóst er að hér er á ferðinni fjöldi umsækjenda sem hefur hærri gráðu en aðrir en á móti kemur að hér em líka einstaklingar sem hafa ríka þekkingu á íslensku myndlistar- lífi (Halldór Bjöm) og aðrir með mikla sýningarreynslu (Hannes). Þá em hér konur sem hafa í lengri tíma staðið fyrir rekstri deilda á stóm söfn- unum íslensku (Rakel Pétursdóttir og Ólöf). Við viljum útlending Það hefur verið sterkur orðrómur að menningarráð hyggist h'ta til er- lendra umsækjanda sérstaklega og þar standi að baki metnaður til að gera Listasafn Reykjavíkur þekktara á erlendum vettvangi. Á hinn bóginn má ljóst að erfitt verður fyrir gest- komandi að átta sig á íslenskri mynd- listarsögu og samþættingu hennar. Ekki hefur hann erlend eða innlend ritverk til að kynna sér íslenska myndlist. Hann verður því alfarið að reiða sig á ráðgjafa og síðan víðtæka kynningu sem hann má ganga í gegnum í vinnustofum starfandi listamanna. Þá er einnig kyndugt að lýst skuli eftir framtíðarsýn svipað og gert var í auglýsingu Þjóðleikhús- stjóra nýlega, rétt eins og handhafi veitingarvaldsins sé ekki alveg klár á því sjálfur hvert eigi nú að stefna í rekstri stærsta listasafns landsins. Vita þeir mikið um myndlist Stefán Jón og Gísli Marteinn? Og fyrst þeir verða að reiða sig á ráðgjafa í bak og fyrir vaknar spumingin: Því er ekki safnráð yfir safninu sem ræður stjómandann? pbb@dv.is Umsóknarfrestur rann út í lok þriðju viku mars. Það er menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar sem fjallar um kandídata og mun kalla þá sem til álita koma í viðtöl. Það er ráðningarstofa sem greinir hverjir það em sem standast hæfnis- kröfur. Menningarráðinu til aðstoðar er svo ráðgjafahópur en hann hefur ekki verið skipaður. Samkvæmt ný- samþykktum starfsreglum skal hópurinn skipaður sviðstjóra menn- ingarmála, fulltrúa frá stjómsýslu- sviði, þriðja aðila ótengdum borginni og jafnvel þeim fjórða sem yrði þá einnig fagaðili. Staðan var auglýst alþjóðlega og sóttu alls 12 íslensldr og sjö erlendir safiiStjórar, sýningarstjórar, lista- menn og aðrir einstaklingar eftir starfinu. Erlendu umsækjendumir em starfandi í Evrópu, Bandaríkjun- um, Kanada og Asíu. Umsækjendur Þeir sem sóttu um starfið em: Aldo Castillo, MA f arkitektúr og graf- ískri hönnun sem starfar sem sýn- ingastjóri og gallerístjórnandi Aldo Castillo Gallery í Chicago; Chus Martinez, Ph.D. í listasögu og heim- speki frá Barcelona, sýningastjóri og gallerístjómandi Sala Rekalde í Bil- bao á Spáni, Dieter Buchhart, Ph.D. í listasögu og sýningarstjóri; Hafþór Yngvason, MA í listasögu og for- stöðumaður myndlistardeildar Lista- ráðs Cambridgeborgar, Massachu- setts, Halldór Bjöm Runólfsson, MA, DEA lektor í listfræði við Listaháskóla íslands sem hefur lengi starfað við umfjöllun um íslenska myndlist og gefið út rit um efnið; Hannes Sigurðs- son, MA, safnstjóri Listasafns Akur- eyrar sem staðið hefur fyrir þrótt- miklu sýningarhaldi og útgáfu sunnan og norðan heiða; Hilde USTASAFN Teerlinck, MA, forstöðumaður CRAC Alsace (Centre régional d’art contemporain); Kinga Araya, Ph.D. í listffæði, háskólakennari við Háskól- ann í Ottawa og myndlistarmaður; Ktístinn E. Hrafnsson myndlistar- maður í Reykjavík; Leonhard Emmerling, Ph.D. sýningastjóri, for- stöðumaður Kunstverein Ludwigs- burg; Margrét Sigfúsdóttir, MFA frá Parsons School of Design, myndlist- armaður; María Rut Reynisdóttir, BA, að ljúka framhaldsnámi hjá Ka- osPiloteme í Árósum í stjórnunar- fræði ; Njáll Sigurðsson, B.Sc. í al- þjóðlegri markaðsfræði Fossberg, verkstjóri; Ólöf Kristín Sigurðardóttir, MA frá Art Institute Chicago, Lista- safii Reykjavíkur, deildarstjóri fræðsludeildar; Rakel Halldórsdóttir, MLA frá Harvard, framkvæmdastjóri Safnaráðs. Rakel Pétursdóttir, MA í safnafræði frá Newcastle, deildar- stjóri ffæðsludeildar á Listasafni fs- lands; Rebekka Rán Samper, Ph.D, MBA frá Barcelona, kennir við Há- skóla íslands og myndlistarmaður; Sólveig Þórisdóttir, BA, grafískur hönnuður á Auglýsingastofu íslands, Yean Fee Quay, MFA frá School of Visual Arts sem starfar við rann- sóknir, safhfræðslu og sýningastjóm; Æsa Siguijónsdóttir, MA frá Myndleiga um netið hófst í Danmörku í gær. Verður slík þjónusta einhvern tíma hér í boði? Leigjum mynd af netinu Spanglish Hvenær verður nýjasta myndin fdanleg á vefn- um um leið og hún birtistlbíó? ígær urðu nokkur tiðindi i fjölmiðlasögu norrænna landa þegar gamli risinn i kvik- myndaframleiðslu og dreifingu, Nordisk Film í samvinnu við dönsku sjónvarpsstöð- ina TV 2 hóf heimaleigu kvikmynda um breiðband á netinu. Það er vefurinn www.sputnik.dk sem þjónar þeim sem leigja vill einhvern þeirra 275 titla sem i boði eru afstórum myndabanka Nordisk sem heitir þvi að innan tíðar verði enn fleiri titlar í boði og fáanlegir nær samtíma þvi að myndir komi i kvikmyndahús. Meðal titla eru Bræðurnir sem hér voru sýndir á danskri kvikmyndaviku, allar Olsen Banden-myndirnar og talsvert magn barnamynda. Það þarf til adsl-linu sem flytur 1 mbs. Myndin mun kosta á milli 20 til 45 kránur danskar i leigu og er best að tengja heimilis- tölvu við sjónvarpið til að njóta gæðanna, segja þeir hjá TV-Sputnik sem er fyrirtækið sem kemur með þessa nýjung á markað. Eins og greint var frá á þessum siðum siðla árs i fyrra hafa þeir Sputnikmenn á boðstólum talsvert magn mynda og sjónvarpsþætti sem þekktir eru afstöðvum TV2 og dótturfyrir- tækjum þeirra: Charlie og Zulu. Hafa þeir Nordiskmenn verið ánægðir með áhorf um vefgátt á dagskrá vefsins. Sagði talsmaður Nordisk i gær að tilrauna- afgreiðsla með aðstoð fimmtiu heimila hafi gengið vel. Efnisbankinn sem liggur til grundvattar byggir á 25 sigildum dönskum myndum, 45 titlum fyrir börn og unglinga og 7 80 titlum frá bandarisku risunum sem þýðir að Nordisk hefur náð samkomulagi við kanann um verð. Fyrir örfáaum árum kröfðust bandarísku fyrirtækin hárra trygg- inga likt og þau gera i dreifingu i kvik- myndahús. Verðkröfur og hár stofnkostn- aður þjónustu afþessu tagi hefurhamlað viðgangi hennar á norrænu svæðunum. Er þess að vænta að þjónusta sem þessi verði boðin hér á landi? Mikil tölvueign og notkun ætti að ýta undir það. Þá er breið- bandsuppbygging Simans beinlinis gerð til að sinna slikri leigu. Á móti kemur að leigu- markaður er óhemjusterkur hérá landi. Diskvæðing er að útrýma spólumarkaðnum og liklega mun diskurinn taka þeirra stað i leigukerfinu. Stofnkostnaður við uppsetn- ingu og rekstur þjóna fyrir dreifingu kvik- mynda um netið er mikið mál og burðar- getan verður að vera stöðug. Ýmis merki eru uppi um að markaður sækist frekar eftir kaupum á dvd-diskum en leigu.Þaðerþá ekkert eftirsem mynd- bandaleigufyrirtækin eiga sér til varnar annað en þann sið islenskra að éta sælgæti um leið og þeir horfa á bió. Samkeppni mun þvi liklega lækka leigugjöld enn frekar og myndleigurnar verða eins og kvikmynda- húsin fyrirtæki sem lifa mest á sælgætis- sölu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.