Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Side 37
DV Lífíð
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 37
'mmm
IsIlÍSÉ
Nóg er á seyði hjá hljómsveitinni Hjálmum, m.a. tónleikar í Moskvu og í Færeyj-
um. Mannabreytingar hafa orðið í sveitinni.
Hiálmar orönir
! Hinir hálfsænsku
Hjálmar „Kostar bara
einhvern 20 þúsund
kall að fíjúga til Svl-
þjóðar."
_____k
Reggíhljómsveitin Hjálmar sló í
gegn með fyrstu plötunni sinni,
„Hljóðlega af stað", í fyrra. Nú ber-
ast þau tíðindi að trommarinn
Kristinn Snær Agnarsson hafi sagt
skilið við bandið.
Of vinsæl hljómsveit
„Ég hef engan tíma til að standa
í að vera í svona vinsælli hijóm-
sveit," segir Kristinn. „Þetta átti
bara að vera lítið og nett „side-
project" sem æfði kannski einu
sinni í viku en varð svo svona vin-
sælt. Það er auðvitað frábært en ég
var samt ekki tilbúinn að leggja allt
í sölurnar og fórna vinnunni fyrir
reggíið." Kfistinmkennir í tónlistar-
skóla Gar< iabæí ár oe segist ætla að
skóla Garð|jE|é]ár og segist ætla að
dútla í þyí-áft-spila djass meðfram
kennsluruígp;/ ...og svo dúkkar
maður kannski einhvern tímann
upp í öðru bandi", segir hann. f
stað hans er kominn Nisse Törn-
qvist, sem er sænskur eins og
bassaleikarinn Petter og hefur spil-
að með honum í ýmsum verkefh-
um í hartnær 15 ár. Einn Svíinn til
er svo genginn í Hjálma, hann heit-
ir Michael Svenson og spilar á org-
el. Þorsteinn söngvari spilaði með
þessum strákum þegar hann bjó í
Svíþjóð svo þetta er eðlileg þróun.
Guðmundur Kristinn gítarleikari
segir það lítið máí að starfrækja
svona sænsk/íslenska hljómsveit,
énda kosti bara „einhvern 20 þús-
und kall“ að fljúga til Svíþjóðar.
Lítið planaðir og ekkert
stress
Hjálmar spila í afmælisveislu
Megasar á fimmtudaginn og svo á
Grand Rokki á laugardaginn. Á
næstu mánuðum spilar sveitin svo í
Malmö, Helsinki, Pétursborg og
Moskvu, aö ógleymdu á G-festival-
inu í Færeyjum. Hjá sænsku útgáfu-
fyrirtæki er áhugi á að gera Hjálma-
plötu. „Við förum í stúdíó á morgun
og förum að kíkja á þetta," segir
Guðmundur Kristinn og býst við að
„sænska" Hjálma-platan verði með
endurbættum lögum af síðustu
plötu og nýju efni. „Samt erum við
afskaplega lítið planaðir og þess
vegna gætum við bara gert nýja
plötu á íslensku í sumar. Við erum
ekkert stressaðir yfir þessu."
Síðasta verk trommarans Krist-
ins Snæs með gömlu félögum sín-
um var að spila inn á næstu sóló-
plötu Rúnars Júlíussonar, „Blæ-
brigði lífsins", sem kemur út á 60.
afmælisdaginn hans 13. aprfl. Þá
um kvöldið verður blásið til stór-
tónleika sem hluti Hjálma mun
taka þátt í.
Hróarskelduhátíð-
in skýrist á
fimmtudaginn
Á blaðamannafundi sem að-
standendur Hróarskelduhátíðarinn-
ar halda á fimmtudaginn verður
dagskrá hátíðarinnar í ár endanlega
gefin upp. Nú hafa um 50 atriði ver-
ið birt en á fimmtudaginn munu
rúmlega 100 nöfn bætast við. Leið-
indaveður, stanslaus rigning og
svað, einkenndi hátíðina í fyrra og
voru uppi sögusagnir um að hátíðin
yrði færð inn í hús í ár. Þetta er
þvæla og eytt var tveimur milljón-
um danskra króna í að endurgera
hátíðarsvæðið og búa það undir
hugsanlegan vatnselg. Liggja menn
þó eflaust á bæn og vona að veður-
guðirnir hagi sér vel í ár. Af þeim
böndum sem nú þegar hafa verið
gefin upp eru Green Day, Brian Wil-
son og Black Sabbath feitustu bit-
arnir. Þarna verða líka Foo Fighters,
Duran Duran og Snoop Dogg, en
þessar kempur má svo sem sjá á
íslandi í sumar.
Allt klárthjá
Coldplay
Bresku gulldrengimir í Coldplay
hafa staðfest hvaða lög verða á
næstu plötu sveitarinnar, X&Y. Þá
hafa þeir einnig gengið frá útliti
plötukápunnar sem minnir um
margt á tölvuleikiim Tetris. Platan
kemur út 6. júní næstkomandi.
Chris Martin og félagar í Coldplay
hafa frestaö því aö klára plötuna
endanlega vegna pælinga sinna
meö lagið Talk. Endanleg niður-
staöa varð sú að það verður með á
plötunni. Lögin á X&Y eru efdrfar-
andi: Square One, What If, White
Shadows, Fix You, Talk, X&Y, Speed
Of Sound, A Message, Low, The
Hardest Part, Swallowed In The Sea
og Twisted Logic. Fyrsta smáskífan
plötunnar er Speed of Sound og
kemur hún út 23. maí.
AFTUR TÓNLEIKAFÁR í ÁR
ÍAIdrei hafa jafn margar erlendar hljómsveitir heimsótt
Island og i fyrra. Heimsóknirnar verða kannski ekki alveg
jafn tiðar i ár, en samt, það bætist stöðugt á listann og
um siðustu helgi var tilkynnt um hvorki fleiri né færri en
fimm nýjar heimsóknir. Lesendum til glöggvunar er listinn
eins og hann liggur fyrir hér, en eflaust mun hann breyt-
ast og stækka þegar á árið líður. Þannig hafa nöfn eins
og Radiohead, R.E.M., Rolling Stones, Sonic Youth og
AC/DC verið i umræðunni og liklegt að öll þessi bönd
mæti á skerið fyrr en siðar!
Foo Fighters
Mætir aftur en nú
með Queens ofthe |
Stoneage með sér.
Hvenær: Hvað: Hvar:
24. apríl Robert Plant & The Strange Sensation Laugardalshöll
§5. maí The Shadows Kaplakríkí
27. maí Franz Ferdinand Kaplakriki
|7. júnf Iron Maiden Egilshöll
30. júnf Duran Duran Egilshöll
|5.júlí Foo Fighters / Queens of the Stone Age Egilshöll
7. júlí Velvet Revolver ?
|17. júlí SnoopDogg ? 1
13. ágúst Alice Cooper Kaplakriki
|1. sept. Joe Cocker Laugardalshöll
19-23. okt. Iceland Airwaves 101 Reykjavík