Freyr - 01.05.1945, Blaðsíða 14
64
FRE YR
Niðurstöðurnar af síðari Johninprófun-
um, sem gerff voru skömmu fyrir dauða
kindanna, voru eins og hér segir:
Me'ð enska Johnininu fengust 13 já-
kvæð svör; -f- eða (+)• í tveim þess-
ara kinda fundust ekki í garnaveiki-
skemmdir við krufninguna. Með okkar
Johnini fengust 11 jákvæð svör.. Skemmd-
ir fundust í öllum þessum kindum við
krufninguna.
Þar sem við vorum í vafa um að inn-
spýtingarstaðurinn væri aígerlega eðlileg-
ur, en treystum okkur hins vegar alls ekki
til að kveða upp jákvæðan dóm er það
gefið í skyn með (h-) merkinu. Það er ekki
hægt að gera sér grein fyrir hvaða þýðingu
þess konar svaranir hafi undir þessum
kringumstæðum, þar eð svo margar kind-
ur voru sýktar, að þótt ekki réði annað en
tilviljun hlyti þess vegna (h-) iðulega að
hafa fundizt við sýkingu. Slíkt þarf þannig
ekki að hafa neina þýðingu. Því verður
enn að bæta við, að það var næstum til-
viljun oft og tíðum, hvort kindin var merkt
algerlega neikvæð eða (-h).
Þess ber að geta, að við fyrri Johnin-
prófin, sem gerð voru 29. ágúst, svöruðu
16 kindur okkar Johnini, en 7 við enska
Johninu, en þá var eins og áður er sagt
gefið heldur meira af íslenzka Johnininu
heldur en af því enska.
Samanburður milli blóðprófsins og
Johninprófsins fæst með því að athuga
eftirfarandi tölur:
Fyrri húðprófanir og blóðprófin, sem
gerð voru um sama leyti:
Af 20 jákvæðum við blóðpróf svöruðu
12 við okkar Johnini.
Af 20 jákvæðum við blóðpróf svöruðu
7 við ensku Johnini.
Af 16 sem svöruðu við okkar Johnini
voru 12 jákvæðar við blóðpróf.
Af 16 sem svöruðu við okkar Johnini
roru 4 neikvæðar við blóðpróð.
Af 7 sem svöruðu við ensku Johnini voru
7 jákvæðar við blóðpróf.
Af 7 sem svöruðu við ensku Johnini
svöruðu 7 við okkar Johnini.
Að 6(-r-) með okkar Johnini voru 5 já-
kvæðar við blóðpröf.
Af 10(~) með ensku Johnini voru 7 já-
kvæðar við plóðpróf.
Síðari Johnin prófin og blóðprófin, sem
gerð voru um sama leyti:
Af 21 jákvæðri við blóðpróf svöruðu 10
við okkar Johnini.
Af 21 jákvæðri við blóðpróf svöruðu 10
við ensku Johnini.
Af 10 sem svöruðu með okkar Johnini
voru 10 jákvæðar við blóðbróf.
Af 11 sem svöruðu með okkar Johnini
var engin neikvæð við blóðpróf.
Af 13 sem svöruðu við ensku Johnini
voru 10 jákvæðar við blóðpróf.
Af 13 sem svöruöu við ensku Johnini
voru 3 neikvæðar við plóðpróf.
Af 9(-4-) með okkar Johnini voru 4 já-
kvæðar við blóðpróf.
Af 5(-f-) með ensku Johnini voru 3 já-
kvæðar við blóðpróf.
Þar eð garnaveikin hefir enn ekki breiðzt
út um nema lítinn hluta landsins, er hægt
að fá blóð úr fé, sem er áreiðanlega laust
við sjúkdóminn og fá þannig góðan sam-
anburð við sjúka féð. Við höfum fengið
hingað 118 blóð úr þrem ósýktum héruð-
um til prófunar. Af þéim voru 4 veikt
jákvæð, eða 2, 1, 3 og 1 samkvæmt því
. sem áður er sagt. Það er þess vegna álitið,
að sterkari blóðpróf stafi venjulega af
sýkingu.
Yfirlit.
Komplementbindingspróf það, sem áð-
ur hefir veriö lýst, með antigeni unnu úr