Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1945, Blaðsíða 4

Freyr - 01.05.1945, Blaðsíða 4
54 FRE YR ist síst í rénun s. 1. vetur, skrifaði .ég Rannsóknarráði ríkisins þann 20. apríl s. 1. og sýndi fram á brýna nauðsyn þess, að þegar yrði hafizt handa að rannsaka or- sakir kúadauðans, svo að hægt yrði að koma í veg fyrir hann. í bréfinu fór ég þess á leit við Rannsóknarráð ríkisins, að það beitti sér fyrir þessum rannsóknum"). Rannsóknarráð ríkisins féllst á uppá- stunguna og fór þess á leit við mig, að ég ferðaðist í sumar um þær sveitir lands- ins, þar sem kúadauðinn hafði undanfar- ið gert mest vart við sig, og safnaði skýrsl- um um hann. Ég fór til Vestmannaeyja síðast í júní og hafði tal af flestum kúaeigendum þar. Stjórn Búnaðarfélags Vestmannaeyja fékk mér mann til fylgdar og greiddi götu mína. Eftir það fór ég til Norðurlands um Skagafjörð og Eyjafjörð, með viðkomu á Siglufirði, og síðan austur á Hólsfjöll. í Eyjafirði hefir borið allmikið á þessum dauðafaraldri undanfarin ár, en á Sauðár- króki og á Hólsfjöllum varð hans fyrst vart s. 1. vetur. Á Húsavík var mér sagt, að skammt væri síðan hann hafði komið fram þar. Hér í Reykjavík og nágrenni,(Kjalarnesi, Mosfellssveit, Álftanesi) og Hafnarfirði safnaði ég einnig skýrslum um kúadauð- ann. Páll Zóphóníasson ráðunautur hefir látið mér góðfúslega í té bréf frá Raufar- höfn og Akureyri um kýr, sem drepizt höfðu úr honum. Á ferðalaginu heimsótti ég ekki aðeins þá bændur, sem misst höfðu kýr úr bráðadauða, heldur einnig marga, sem ekki höfðu orðið fyrir því tjóni. Með samanburði á fóðrun kúnna var at- hugað, hvort hægt. væri að rekja orsakir dauðans í stórum dráttum til sérstakr- ar fóðrunar. 2) Páll Zophoníasson mun einnig haía skrifaö' ríkisstjórninni, síðar á árinu, um þetta sama efni. í skýrslu þeirri, sem ég tók af bændum fékk ég að vita, hvað margar kýr höfðu farizt úr bráðadauða þessum, sjúkdóms- einkenni þeirra, aldur kúnna, mjólkur- magn, búrðartíma, heyfóðurgjöf, fóður- bæti alls, magnið af síldarmjöli og fiski- mjöli, ásamt fáanlegum upplýsingum um áburðarnotkun, sláttutíma, hirðingu heys- ins, nýræktartöðu o. fl. Einnig safnaði ég allmörgum sýnishornum af töðu til rannsóknar. Þegar ferðalaginu var lokið, hafði ég safnað upplýsingum um 586 kýr og þar af höfðu 89 drepizt úr bráðdauða. Úr þessari skýrslu hefi ég unnið, og mun ég greina frá helztu atriðum hennar, í eftirfarandi kafla. TAFLA I. Kjarnfóðurgjöf kúnna. 0—2.0 kg., 106 kýr, þar af 31 dauðar 29.2 % 2.1—4.0 — 371 — 49 — 13.2 % 41—6.0 — 28 — — — 3 — 10.7 % 61—7.0 — 81 — 6 — 7.4 % Tafla I sýnir hvað kýrnar hafa fengið mikið kjarnfóður á dag, hvað margar kýr eru í hverjum matarflokki og hvað marg- ar af þeim hafa drepizt. Línurit nr. 1 er af töflu nr. 1. Á lálín- unni er kjarnfóður kúnna á dag í kg. frá 0 til 7 kg. og 2.0 kg. á milli fóðurflokk- anna. Lóðréttu súlurnar sýna tölur kúnna alls í hverjum kjarnfóðurflokki og skástrikaði hluti súlunnar táknar hve margar hafa drepizt úr bráðadauða í hverjum flokki. T. d. í kjarnfóðurflokknum, þar sem kýrn- ar hafa fengið 2.1—4.0 kg. á dag eru 371 kýr alls og þar af hafa 49 drepizt eða 13.2%. Línurit nr. 2 sýnir hve margar kýr af hverjum hundrað hafa drepizt í hverjum flokki. Eins og fyrr segir hefir getum verið

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.