Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1945, Blaðsíða 21

Freyr - 01.05.1945, Blaðsíða 21
PRE YR 71 Orka og ylur (Höfundur sá heitu vatni veitt til Reykjavíkur, og varð þá til hin fyrsta eftirfarandi vísna; hin- ar eru framhald hennar). Lindin flæð'ir funaheit, frónskur gæðasjóður. Stáls um æðar ofan úr sveit okkar blæðir móður. Konan situr brjóstaber, bljúg með svitaköfum: lætur vita, innra er auðg af hitagjöfum. Moldin jarðar framlagsfús færir arð svo lifum; jurtagarðar, gróðurhús gengi varða og þrifum. Starfið vöndum, vinnum að vexti, og blönduninni; máttug höndin helgar það hlýju önduninni. Rættust aldrei íslands fyr orkufaldir draumar en komu að haldi hagnýtir heitir og kaldir straumar. Sumir menn virðast hafa tilhneigingu til þess aS gera lítið úr gagnsemi íslenzka hestsins, og þar á meðal P. Z. og virðist það stafa helzt af því, að nokkrir bændur í vissum landshlutum hafa óþarflega marga hesta, en það kastar engum skugga á hestana, heldur aðeins stóðeigendurna sjálfa. Að lokum vildi ég ráðleggja P. Z. að næst þegar hann heldur ræðu fyrir okkur bænd- urna, ræði hann aðeins um kýrnar, án þess að blanda öðrum skepnum þar inn í, því sjóndeildarhringur hans virðist ekki ná út yfir fjósin. Eyfirskur bóndí. Heiðadyngjum fallnar frá frjálsar syngja elfur, fossa springur bylgjan blá, bergið kringum skelfur. Frumstæð tökin fossbúans fánýt mök við skoliö. Elja stök er hæfni hans hreims, og vökuþolið. Þessu breyta þarf í vil, þráða skeyta kerfin, sterkrí veita orku og yl út um sveit og hverfin. Ekkert hindri hugsjón þá: hlekkja blindan máttinn, ef í skyndi efla má einn framvindu-þáttinn. Varpa hríðar vályndar vetrarkvíða í bæinn, en árnar skríða ótamdar út í víðan sæinn. JÓN PÉTURSSON. Haustið 1943 heimti Jón Jónsson, í Grundar- kosti, í Blönduhlíð um seinni göngur veturgamla gimbur nýborna, virtist lambið ei geta verið eldra en viku til hálfsmánaðar gamalt. Lambið var látið lifa, og gekk undir móður sinni meðan hún mjólk- aði, en var annars látið ganga upp í tóft tíma úr sólarhringnum, og var það fljótt liðugt í að sneygja sér upp í garða og ofan úr honum. Svo leið veturinn, og þreifst lambið vel, þó því væri ei gefinn matur. Þegar kom fram um sumarmál var farið að beita gemlingunum og virtist gimbrin litla sperrt. En þann 28. maí bar hún svo, hefir þá um veturinn einhvern tima komizt ofan í af- króning, sem var innst í húsinu og hrútur var í. Litla lambið lifði og þreifst það svo vel, að þegar því var lógað í haust, var það aö kroppþunga 12 kg. Þess má geta, að sumarið virtist hafa farið prýðilega með þessa ungu móður.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.