Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1946, Qupperneq 4

Freyr - 01.09.1946, Qupperneq 4
246 FRE YR skurðar á heilum fjárhópum á einstökum bæjum, en sú aðferð var reynd í nokkrum sveitum í Skagafirði og víðar. Hindranir á útbreiðslu garnaveikinnar með girðingum, vörzlu, hindrun á fjársam- göngum milli héraða, fjárskiptum á ein- stökum bæjum o. fl. hafa eflaust orðið nokkuð til þess að tefja útbreiðslu sjúk- dómsins og jafnvel að stöðva hana alveg á köflum. Þessar aðgerðir eru þó engan veginn nsegar til þess að hindra stöðugt. vaxandi útbreiðslu um landið. BLÓÐPRÓFANIR Haustið 1944 voru framkvæmdar blóð- prófanir á sauðfé í Árnessýslu, Rangár- vallasýslu og í nánd við Reykjavík, í þeim tilgangi að tína með því móti garnaveika féð úr viðkomandi fjárhópum. Björn Sigurðsson læknir, sem stóð fyrir prófunum þessum, hefir gert nánari grein fyrir þeim í febrúarblaði Freys 1944 (1) og í maíblaðinu 1945 (2). Með blóðprófunum hefir Birni tekizt að tína úr sjúkum fjárhópum mestan hlutann af hinum sjúku einstaklingum. Aðferð hans getur því orðið mjög þýðingarmikil til að halda í við sjúkdóminn eða jafnvel til þess að kveða hann niður um tíma. Enn hefir þó ekki tekizt að framkvæma þessar blóðprófanir í nægilega stórum stíl og naumast að nokkru ráði nema í ná- grenni Reykjavíkur. Þar eð aðal-garna- veikisvæðin eru um Austur- og Norður- land og blóðsöfnunin ýmsum erfiðleikum bundin, er hætt við því, að erfitt verði að koma við blóðprófunum nema að takmörk- uðum hluta við útrýmingarstarfið. GARNAVEIKISVÆÐIN Girðingar og vörzlur eru mjög kostnað- arsamar aðgerðir. Þar eð reynslan bendir til þess, að þær dugi ekki að heldur til lengdar, til þess að útrýma garnaveikinni eða hindra útbreiðslu hennar, eru miklar líkur til þess, að menn gefist fyrr eða síð- ar upp við slíka starfsemi, þegar sjúkdóm- urinn hefir breiðzt yfir mikinn hluta landsins. Jafnframt því sem kostnaðurinn við girðingar og fjárvörzlu vex stöðugt, minnk- ar þá og smám saman þýðing þessara aðgerða. Til þess að menn geti gert sér glöggva grein fyrir útbreiðslu garnaveikinnar í sauðfé hér á landi, hef ég safnað upplýs- um um þetta atriði og látið teikna með- fylgjandi uppdrátt. Þar eru auk þess sýndar helztu hindranir á fjársamgöngum um allt landið, ýmist af völdum stórfljóta, girðinga, vörzlu eða af öðrum ástæðum. Víða fara saman girð- ingar með ám og jafnvel varzla, en til þess að gera myndina ekki of ruglingslega eru notuð sams konar merki, slitin strik, til þess að tákna hvers konar hindranir, sem þykja máli skipta. Upphafsstaðirnir fimm, þar sem hinir garnaveiku karakúl- hrútar voru hafðir, eru táknaðir með svört- um, kringlóttum flekkjum í miðjum sýk- ingarsvæðunum. Eins og tekið er fram á uppdrættinum, hef ég leyft mér að skipta sveitum eftir sýkingarmagni í þrjá flokka. í I. sýkingarflokk koma þær sveitir, þar sem fé hefur círepizt úr garnaveiki á mörgum bæjum árum saman, og er þar dekkst á uppdrættinum. / II. sýkingarflokk lenda sveitir, þar sem garnaveiki hefur greinilega verið staðfest í fé á einstökum bæjum innan sveitarinnar. / III. sýkingarflokk koma þau lands- svæði, þar sem telja má líklegt, að garna- veiki geti komið fram í sauðfé, hvenær sem er, vegna samgangna við hin svæðin. Uppdrátturinn sýnir ekki skiptingu þessa nægilega ljóst í smáatriðum, og tel

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.