Freyr - 01.09.1946, Side 13
FREYR
255
%
T.[
hvaða nöfn nú annars voru notuð til þess
að tákna heymagn það, sem flutt var í
garð, allt var það hengt á klakk klyfber-
ans, sem lagður var ofan á reiðinginn um
þvert hestbakið. Það var satt, að þar sem
langt var á engjar og mikið hey heim að
flytja, var það algengt síðsumars-fyrir-
brigði, að líta langar lestir heybands á
leið heim með fenginn vetrarforða.
Oftast voru hestarnir hnýttir hver aft-
an í annan, svo lestin gat orðið löng þar
sem flestir voru undir reiðingi, en ann-
ars staðar voru þeir reknir. Þegar heim
kom varð að „taka ofan“, á meðan tré-
klakkar voru notaðir, en eftir að klyfber-
ar með hleypihengslum komu til sögunnar
og urðu algengir, var það létt verk að
„hleypa ofan“, eins og það var kallað. Þá
gátu börn og unglingar farið með hey-
bandslestina, því að það þurfti lítið átak
til þess að opna loku þá, er hélt klyfbera-
járnunum á sínum stað, en þegar lokunni