Freyr - 01.09.1946, Qupperneq 18
260
FREYR
gleðiefni, og gleðin yfir því, að geta nú
snúið sér að daglegu störfunum á ný, ó-
háður því valdi og því oki, sem legið hefir
á herðum fólksins um undanfarin ár, þetta
voru atriði, sem hlutu að vekja bjartsýni
og ekki bölsýni á meðal einstaklinganna.
Frelsið til orðs og æðis hafði þá líka
gefið tilefni til, að Bændafélagið sneri sér
til systurstofnana utan Noregs og bauð
þeim að senda fulltrúa á þessa fagnaðar-
hátíð þeirra. Því voru þarna, sem gestir í
boði Bændafélagsins, menn frá Svíþjóð,
Danmörku og íslandi, en Finnar voru
hindraðir.
Gestrisni Norðmanna ber réttilega að
lofa að verðleikum, enda var ekkert það
Þar er hátíðabragur, sem Norðmenn mœtast,
klœddir hinum fögru norsku þjóöbúningum.
sparað, sem verða mátti til ánægju og upp-
örvunar fyrir gestina, þá daga sem hátíð-
in stóð.
Farið var um sveitir í grennd við Þránd-
heim, heim á forna sögustaði og einnig var
þeim sýnd hin forna og fræga dómkirkja,
ásamt eldri og nýrri mannvirkjum í borg-
inni, þar á meðal skipakvíar fyrir neðan-
sjávarbáta, sem Þjóðverjar höfðu í smíðum
þegar stríðinu lauk, — byggingum — sem
minna fremur á tröllaborgir en manna
verk.
★
Fundahöldin snérust að sjálfsögðu um
dagskrármálin og þau voru auðvitað
þrungin þeirri alvöru, sem lífið og starfið
í sveitunum nú einu sinni hefir við að etja.
Bændafélag Noregs hefir þrískipta starf-
semi. í fyrsta lagi er það sjálft Bænda-
félagið. í öðru lagi er Bændakvennafélagið
(Bondekvinnelag) og í þriðja lagi kemur
Sveitaungmennafélagið (Bygdeungdoms-
lag).
Allar þessar deildir sátu fundi og stóðu
að hátíðahöldunum, enda var talið að
fundarmenn væru um 5.000 þegar flestir
voru, og sjálfa hátíðisdagana var fjöldi
tátttakenda langtum meiri.
Og síðasta daginn, þegar skrúðganga —
allra deilda þess — bar blaktandi fána og
einkennismerki byggðanna eða félaganna,
frá hinni frægu dómkirkju til samkomu-
staðarins, var talið að þátttakendur væru
milli 10 og 20 þúsundir.
★
Því hefir fyrr verið fundið bændafélag-
inu til foráttu, að þar væri pólitísk starf-
semi ráðandi í ríkari mæli en æskilegt
var. Hér skal ósagt látið hvort þetta er
rétt eða ekki. Hitt er staðreynd, að þessari
fimmtugu stofnun verður sniðinn nokkur
annar stakkur framvegis, en verið hefir.
Fyrir landsfundinn hafði stjórnin samið