Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1946, Blaðsíða 22

Freyr - 01.09.1946, Blaðsíða 22
264 FRE YR manna, sem nú heimtuðu dýrtíðaruppbót- ina hækkaða. Forsætisráðherra lofaði að sjálfsögðu engu um endanlegar ráðstafanir, því að það hlyti að vera verkefni Stórþingsins að ráða þessum málum til lykta. En af ummælum hans mátti skilja, að menn skyldu ekki gera sér háar vonir um miklar kjarabætur fyrst í stað. Það er svo margt sem Norðmenn þurfa að reisa á ný eða hressa við. Kvað hann það einhuga sjónarmið núverandi landsstjórnar, að laga allt það á 5 árum, sem aflaga hafði farið á stríðsárunum, en til þess að það gæti orðið hlytu menn að slá af ýmsum þeim kröfum, sem á venjulegum tímum væru taldar sanngjarnar. Þess skal getið í þessu sambandi, að Stór- þingið kom saman laust eftir að lands- fundur bændanna hafði gert kröfur um frekari hækkun verðlags, og verkamenn- irnir farið fram á hækkaða dýrtíðaruppbót. Var afgreiðsla þessara mála framkvæmd á fáum dögum og niðurstaðan varð sú, að kröfunum var synjað; stjórn og þing treysti sér ekki til þess að fara inn á þær leiðir, sem leiddu til aukinnar dýrtíðar í landinu og heftu að meira eða minna leyti þá uppbyggingarstarfsemi sem er fram undan. ★ Fimm ára hernám og ánauð hefir þjak- að norsku þjóðina. Fólkið hefir orðið að þola þrengingar og skort á ýmsum sviðum. En erfiðleikarnir hafa ekki bugað þrekið né hnekkt hugrekkinu. Það mun mála sannast, að erfiðleikarnir hafa þjappað einstaklingunum saman í hópa og hópun- um í fylkingar til samvinnu -— til andstöðu gegn ofbeldi hervaldsins, og síðan her- náminu lauk, til starfsemi í þágu uppbygg- ingar og velferðar. Það mun víst líka mála sannast, að þrátt fyrir allt er eining og samlyndi í ríkari mæli ráðandi í fé- lags- og athafnamálum Noregs en flestra annara landa. Víst hefir land og þjóð hlotið mörg sár, og sum stór, af völdum stríðsins. En tíminn græðir sárin og þjóðin leggur vit sitt og þrótt af mörkum til uppbyggingarstarfa. Bændastéttin norska hefir á þrenginga- tímum síðustu ára gert sitt til þess að létta neyð þeirra, sem bjuggu við þrengst kjör og stundum sultu heilu hungri. í ræðu og riti ganga sögurnar af því, hvernig leikið var á verði fjandmanna, sem hindra skyldu vistaflutning úr sveitinni um leynivegu. „Bæði dropar og bitar féllu af borðum bændanna til þeirra, sem þurfandi voru í borg eða bæ, og ekki fylgdi alltaf reiknin- ur með“. Það voru ummæli borgarstjóra Þránd- heims, þegar hann flutti Bændafélaginu kveðju borgarbúa á landsfundinum. Svip- uð saga er sögð um land allt. Norska bændastéttin er reiðubúin til þess að vinna að velferðarmálum landsins, en til þess að það geti orðið verður hún náttúrulega að búa við lífskjör, sem unga kynslóðin getur sætt sig við. Ég átti tal við nokkra af þingmönnum Noregs á leiðinni frá Þrándheimi til Oslo, en þeir voru að fara á þingfundi, einmitt til þess að ræða verðlagsmál landbúnað- arins og kaupkröfur verkamanna. Voru þeir á einu máli um, að á venjulegum tímum væru þessi mál talin til stórmála, en eins og sakir standa nú, eru svo mörg og mikilvæg verkefni fyrir hendi, varðandi mála- og reikningslok hernámsáranna, að þessi atriði verða að teljast til hinna smærri. En á eitt voru allir sáttir, bæði þing- menn og bændur, embættismenn og verka- menn, menn og konur, ungir og gamlir, sem ég átti tal við, það var þetta: Norska

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.