Freyr - 01.09.1946, Qupperneq 29
FREYR
271
Bjarni Halldórsson
Þorsteinn Sigfússon
Jóhannes Daviðsson
Gestur Andrésson
Matthías Helgason
Halidór Sigurðsson
Verðlagsnefnd:
Jón Hannesson
Stefán Diðriksson
Jón Jónsson
Halldór Kristjánsson
Eggert Levy
Einar Halldórsson
Kristján Benediktsson
Vilhjálmur Hjálmarsson
Benedikt Grímsson
Guðmundur Jónsson
Þórólfur Guðjónsson
Að nefndakosningu lokinni var fundi
frestað til næsta dags, vegna nefndastarfa.
Miðvikudaginn 4. september kl. 10 ár-
degis, var fundur hafinn á ný.
7. Tillögur skipulagsnefndar: Fram-
sögumaður, Sigurður Snorrason, lagði
fram breytingartillögur nefndarinnar við
samþykktir Stéttarsambandsins og gerði
grein fyrir þeim:
Tillögur nefndarinnar voru þessar:
1. gr.
Búnaðarfélög hreppanna mynda með sér sér-
stakt samband, er nefnist Stéttarsamband bænda,
er starfar að ákveðnum verkefnum eftir því, sem
fyrir er mælt í samþykktum þessum.
Fjárhagsnefnd:
Björn Sigtryggsson
sr. Gunnar Árnason
Erlendur Magnússon
Jón Kr. Ólafsson
sr. Jósep Jónsson
Jón H. Fjalldal
Benedikt Kristjánsson
Sveinn Einarsson
Steinþór Þórðarson
Erlendur Árnason
Sigurbjörn Guðjónsson
Helgi Benónýsson
2. og 3. grein samþykktanna séu óbreyttar frá
fyrri samþykktum Stéttarsambandsins (sjá Fé-
lagstíðindi Stéttarsambandsins no. 1, 1945).
4. gr.
Stjórnir búnaðarsambandanna boða til þessara
funda, samkvæmt 3. gr. Á fundum þessum skulu
kosnir tveir fulltrúar fyrir hvert sýslufélag til
þess að mæta á aðalfundi Stéttarsambands bænda.
Kosning gildir til tveggja ára. Skulu fara fram
hlutfallskosningar ef þriðjungur kjörmanna ósk-
ar þess. Búnaðarfélög kaupstaða hafa rétt til þess
að senda fulltrúa á fund í aðliggjandi sýslu. Þó
skal Búnaðarfélagi Vestmannaeyja heimilt að
kjósa einn fulltrúa á aðalfund Stéttarsambandsins.
Framleiðsluráffsnefnd:
Hafsteinn Pétursson
Jón Gauti Pétursson
Júlíus Björnsson
Þórður Hjaltason
Eggert Ólafsson
Ketill Guðjónsson
Helgi Benediktsson
Gunnar Guðbjartsson
Hannes Jónsson
5. gr.
Á kjörmannafundum skal, auk kosninga á að-
alfund Stéttarsambandsins, ræða verðlagsmál
landbúnaðarvara og önnur hagsmunamál bænda-
stéttarinnar og gera ályktanir um þau mál, eftir
því sem efni standa til.
6. gr.
Stéttarsamband bænda skal halda aðalfund í
júní til nóvember ár hvert og aukafundi þeg'ar
framkvæmdastjóri telur þurfa, eða þegar % hluta-
ar Stéttarsambandsfulltrúa óska þess.