Freyr - 01.09.1946, Blaðsíða 31
FRE YR
273
um stuðningi við þær aðgerðir, sem hún kann
að verða til knúð að hefja málinu til fram-
dráttar.
d) Fundurinn skorar á Alþingi og ríkisstjórn að
fela Stéttarsambandi bænda og framleiðslu-
ráði þess það hlutverk, sem Búnaðarráð og
verðlagsnefnd landbúnaðarafurða hafa nú
með höndum.
e) Fundurinn átelur að verðlagsnefnd landbún-
aðarafurða ákvað verð á landbúnaðarafurð-
um haustið 1945 lægra en það átti að vera
samkvæmt sexmannanefndar-álitinu.
Jafnframt telur fundurinn það hafa verið
mjög misráðið, að ekki var flutt út nægiiega
mikið af kjötinu þegar haustið 1945.
f) Fundurinn felur stjórn Stéttarsambandsins,
samvinnufélögum, verðlagsnefnd landbúnað-
arafurða, alþingi og ríkisstjórn, að vinna öt-
ullega að því að lækka þann mikla milliliða-
kostnað, sem nú leggst á landbúnaðarafurðir
og skapar jafnvel óverðskuldaðan kala af
hálfu neytenda í garð bændastéttarinnar og
misskilning á kjörum hennar.
Eftir allmiklar umræöur voru allar þess-
ar tillögur samþykktar í einu hljóði.
í sambandi við verðlagsmálin bar Haf-
steinn Pétursson fram svohljóðandi til-
lögu:
„Fundurinn felur stjórn Stéttarsambands
bænda að láta umboðsmenn sína boða þá
menn, sem ætla sér að selja afsláttarhross
fyrir bændur, til fundar fyrir helztu sölu-
svæðin, með það fyrir augum að reyna að
koma á frjálsum samtökum um að koma í
veg fyrir undirboð á þessari vöru eins og
öðrum söluvörum bænda.
Fundina skal halda fyrir 20. þ. m. ef ástæð-
ur leyfa.
— ' .-'-í
Tillagan var samþykkt með samhljóða
atkvæðum.
9. Tillögur fjárhagsnefndar: Framsögu-
maður, Stefán Diðriksson, skýrði frá störf-
um nefndairnnar og fjárhagsáætlun þeirri,
er hún hafði samið. Lagði nefndin meðal
annars fram eftirfarandi tillögu:
„Til þess að standast kostnað vegna Stétt-
arsambands bænda samþykkir aðalfundur
sambandsins, haldinn að Hvanneyri 3.—4.
sept. 1946, að fara þess á leit við búnaðar-
sambönd landsins, að þau sjái um að afla
Stéttarsambandinu árlegra tekna, sem svar-
ar til 8 króna gjaldi, að viðbættri meðal
framfærsluvísitölu næsta árs á undan, af
hverjum búnaðarfélaga.“
Tillaga þessi var samþykkt í einu hljóði.
10. Tillögur framleiðsluráðsnefndar:
Framsögumaður, Hafsteinn Péturss., gerði
grein fyrir störfum nefndarinnar og bar
fram tillögur um framleiðslumál.
Eftir nokkrar umræður var eftirfarandi
tillaga samþykkt í einu hljóði:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda, hald-
inn að Hvanneyri 3.—4. sept. 1946 mælir með
því að frumvarp til laga um framfærsluráð
landbúnaðarins og verðskráningu og verð-
miðlun á landbúnaðarvörum. sem prentað er í
1. tölublaði Félagstíðinda Stéttarsambandsins
1945, verði lögfest með þeim breytingum, að
Stéttarsambandi bænda verði falið það verk-
svið, sem Búnaðarfélagi íslands er ætlað,
samkvæmt frumvarpinu.
Þangað til fyrrnefnt frumvarp verður að
lögum, ákveður fundurinn að framleiðslu-
ráð sé skipað samkvæmt ákvæðum frum-
varpsins, er starfi að verkefnum þeim, sem
þar eru ákveðin, eftir því sem við verður
komið án lagastuðnings.
Kostnaður greiðis eftir samkomulagi af
þeim aðilum, sem tilnefna menn í fram-
leiðsluráð."
11. Kosning endurskoðenda: Þessir voru
kj örnir:
Hannes Jónsson, Kirkjuhvammi,
Einar Halldórsson, Setbergi.
Til vara:
Erlendur Magnússon, Kálfatjörn.
12. Fundarlok: Sverrir Gíslason, for-
maður Stéttarsambandsins, hvatti fundar-
menn til þess, hvern í sínu byggðarlagi, að