Freyr - 01.09.1946, Qupperneq 32
274
FRE YR
Lan.dbúnaBarráhstefn.ur
Nú í septembermánuði eru haldnar
þr j ár alþj óða-landbúnaðarráðstefnur í
Kaupmannahöfn. Aðal ráðstefnan er
haldin af Matvæla- og landbúnaðarstofn-
un hinna sameinuðu þjóða.
Þá hefir stofnun ein, sem nefnist Inter-
national Federation of Agricultural Pro-
ducters (IFAP), sem á íslenzku mætti
kalla Alþjóðasamband landbúnaðarvöru-
framleiðenda, fund um sama leyti. Stofn-
un þessi var sett á fót í London í maímán-
uði í vor, þar sem fulltrúar frá 31 þjóð
voru mættir. Var þar ákveðið að leita
sambands við framleiðendur af landbún-
aðarvörum í sem flestum löndum og finna
samvinnuleið til þess að geta fullnægt
þörfinni, sem alls staðar er ríkjandi, að
því er matvæli snertir.
Hlutverk þessa alþjóðasambands er á-
kveðið:
a) að vera ráðgjafi og til aðstoðar við
starfsemi FAO, en sú stofnun hefir
umsjón með dreifingu og sölu mat-
vælanna um heiminn.
aðstoða stjórn búnaðarsambandsins um
innheimtu á félagsgjöldum. Þá þakkaði
hann fundarmönnum ánægjulegt samstarf
á fundinum.
Bjarni Ásgeirsson, form. Búnaðarfél. ís-
lands, árnaði Stéttarsambandinu allra
heilla í framtíðinni, og sagði að nú væru
veðrabrigði byrjunarstigsins að baki en
vorið og starfið framundan. Fundarmenn
þökkuðu formanni og fundarstjóra störf
þeirra með lófataki og þar með var fundi
slitið.
b) að efla landbúnaðarframleiðsluna og
sölu landbúnaðarafurða.
c) að kerfisbinda félagsskap hinna ýmsu
landa og starfsaðferðir allar í þeim
tilgangi að bæta kjör þeirra, er hafa
landbúnað að atvinnu.
Auk þessara tveggja ofangreindu stofn-
ana hefir landbúnaðarráð Dana boðið full-
trúum frá bændafélögum Norðurlanda til
fundar innan þeirrar stofnunar. Bænda-
félag Norðurlanda er stofnun, sem sett
var á laggirnar laust fyrir stríð og hefir
haldið nokkra fundi.
Meðlimir hennar eru stjórnarnefnda-
menn og ýmsir oddvitar innan búnaðar-
félagsskapar og samvinnufélagsskapar á
Norðurlöndunum fjórum. Hvorki búnað-
arfélögin né samvinnufélögin íslenzku
eiga hlutdeild í þessari norrænu starfsemi,
er hefir það hlutverk fyrst og fremst að
koma fram á alþjóðavettvangi, sem nor-
rænn, félagslega heilsteyptur aðili, á sviði
búmenningar og búmegunar.
Verkfæranefnd
Vélasjóbur
Tjarnargöfu 10, Reykjavík. Sími 4373