Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1946, Side 37

Freyr - 01.09.1946, Side 37
FREYR 279 inga og við ýms heimilisstörf. Þó er ekki því að leyna, að óhöpp hafa hent við notk- un Jeppa, en þau eru vitanlega manna sök en ekki bílanna. Jeppa-bifreiðarnar eru byggðar sem stríðsfargögn, er geta far- ið ur|i vegleysur og torfærur, enda hefir verið farið í þeim í kring um Ódáðahraun og upp á Vatnajökul í sumar. Sökum þess að þessir bílar eru stuttir, verður að aka þeim hægt þegar beygt er á vegum, en þessa hefir ekki alltaf verið gætt. Hafa Jepparnir því oltið út af vegum og steypzt alloft og af því hlotizt meiðsli og manntjón. ★ Á meðal þeirra þœginda, sem sveita- býlin hafa farið á mis að mestu hingað til, er síminn. í strjálbýlinu er hann langtum nauðsynlegri en í bæjum og borgum og þykizt þó enginn geta verið án hans, sem einu sinni hefir orðið aðnjótandi þeirra þæginda, er hann býður. En í strjálbýlinu er dýrt að leggja síma og er það eflaust ástæðan til þess, að sveit- irnar hafa farið hans á mis. Til eru þær sveitir, sem einkasími hefir verið á flestum bæjum um all langt skeið og fer þeim fjölgandi með hverju ári. í fyrra var lagður sveitasími allvíða og í sumar bætast margar sveitir í hópinn. f stað þess að þráðurinn var áður á staurum er báru hann uppi, er hann nú lagður í jörð. Einangraður koparþráður er lagður í jörð með hjálp stórvirkra tækja, þar eð dráttarvél dregur plóg nokkurn, sem til þess er hentur að grafa djúpa rennu, en í hana er símaþráðurinn rak- inn, um leið og dráttarvélin dregur plóg- inn. Á þennan hátt geta fáeinir menn lok- ið við að leggja jarðsíma svo kílómetrum skiptir á dag, þegar skilyrði öll eru hag- kvæm og verkið undirbúið. ★ í byrjun septembermánaðar var Búnað- arráð kallað saman til þess að ræða fram- leiðslu- og veijðlagsmál landbúnaðarins, ásamt öðru er landbúnaðinn varðar. Sam- timis hélt Stéttarsamband bænda' hinn fyrsta aðalfund sinn að bændaskólanum á Hvanneyri. Voru þar meðal annars á dagskrá hin sömu mál og Búnaðarráð ræddi. Samþykkti þetta þing bændanna, ýms félagsákvæði, er miða skulu að því að efla öryggi bóndans sem þjóðarþegns cg skapa honum skilyrði á borð við það, sem aðrar stéttir þj óðfélagsins eiga við að búa, en á það hefir nokkuð skort og leitt til þess, að fólkið flytur burt, svo að sums staðar horfir til auðnar í sveitum. ★ Á Vestfjörðum gerðizt sá atburður hinn 3. sept., sem þess er verður að færður sé í annála, ekki aðeins annál Vestfirðinga heldur og allrar þjóðarinnar. Þennan dag var opnaður vegur yfir Þorskafjarðarheiði og þar með hinu lang- þráða takmarki náð að tengja þennan landshluta við aðalsamgöngukerfi lands- ins. Hafa leiðirnar til Vesturlandsins ætíð verið svo ógreiðar, að þessi landshluti er með öllu ókunnur meginþorra lands- manna. Nú opnast þeim, sem ókunnir eru á þessum slóðum, tækifæri til þess að kynnast hinni sérkennilegu náttúru um Vestfirði og því athafnafólki sem þar byggir bæi og sveitir. Kynnisfarir sveita- fólksins verða vonandi farnar þangað — og þaðan — á komandi árum. ★

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.