Freyr - 01.09.1946, Page 38
280
FREYR
Nautgripakjöt.
í sumar hefir nautgripakjöt kostað 8—16 kr.
kílógrammið í verzlunum í Reykjavík. Verðið, sem
framleiðendur kjötsins hafa fengið, mun hafa ver-
ið 5—7 krónur. Af þessu er auðséð, að það hefir
kostað margar krónur á hvert kg. af kjöti að slátra
gripnum, brytja kroppinn í bita, vega þá og rétta
yfir búðarborðið, að viðbættri húsaleigu.
Þær 4—7 krónur, sem framleiðandinn hefir
fengið fyrir kílógrammið, eru laun hans fyrir að
verja land sitt og rækta það, slá og þurrka töð-
una, flytja hana í hlöðu, fóðra gripinn og hirða
í nokkra mánuði eða ár.
Við þetta bætist húsaleiga fyrir skepnuna og
fóðrið og svo — þegar að sláturdegi kemur ■— þarf
að sjá fyrir flutningi hennar á ,.aftökustaðinn“.
Hér skal ekki gerð tilraun til þess að reikna
laun bóndans fyrir starf sitt annars vegar né
kjötsalans hins vegar, en ofangreindar tölur gefa
ýmsum tilefni til þess að spyrja hvort ekki muni
vera nokkurt ósamræmi milli þess krónufjölda,
er nefndir aðilar bera úr býtum miðað við störf
þau, sem innt eru af hendi, til þess að sjá neyt-
endunum fyrir nautakjöti til miðdegisverðar.
*
Skurðgröfur.
í síðasta blaði Freys var getið um 3 skurðgröf-
ur, er komu til landsins í júlímánuði. Síðan hafa
fjórar gröfur bætzt í hópinn.
Fóru þær á eftirtalda staði: Álftaneshrepp á
Mýrum, Glæsibæjarhrepp í Eyjafirði, Mývatns-
sveit og sú fjórða er tekin til starfa í Skálholti, við
undirbúning jarðyrkju, á vegum hins fyrirhug-
aða búnaðarskóla þar.
*
Hrossasala.
Eins og áður hefir verið frá skýrt var það
ákveðið í vor, að hjálparstofnun sameinuðu þjóð-
anna keypti að minnsta kosti 7000 íslenzk hross
FRE YR
— búnaðarblað — gefið út af Búnaðarfélagi
íslands og Stéttarsambandi bænda.
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta:
Lækjargötu 14, Reykjavík. Pósthólf 1023
Sími 3110.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Kristjánsson.
Ritnefnd: Einar Ólafsson, Pálmi Einarsson,
Steingrímur Steinþórsson.
FREYR er blað landbúnaðarins.
Verð kr. 25.00 á ári. Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Prentsmiðjan Edda h.f.
og sendi til Póllands. Frá hálfu stofnunarinnar
kom babb í bátinn og lengi var allt í óvissu um
hvort nokkuð yrði af kaupunum. Niðurstaðan
hefir þó orðið sú, að nú er ákveðið að 2500 hross
verði seld til XJNRRA, fyrir verð, sem nemur 625
krónum að meðaltali á hross komið um borð í ís-
lenzkri höfn. Hrossin eiga að vera 3—8 vetra að
aldri Gerðar eru kröfur til þess, að helmingurinn
sé hryssur.
Þann þriðja september byrjuðu markaðir. Þegar
á reynir sýnir það sig, að bændur eru mjög ófúsir
að selja hrossin og er allt útlit fyrir að erfitt
reynist að fá þá tölu, sem samið hefir verið um.
Verður það að teljast raunaleg þröngsýni, að menn
vilja ekki selja hrossin nú, einmitt þegar viðhorfið
er það, að hvergi í heiminum er fóður að fá
og þegar allir fækka bæði þörfum hestum og
óþörfum, af því, að það eru talin síðustu forvöð
að selja þau einmitt nú. Færi betur að þeir verði
ekki margir íslenzku bændurnir, sem þurfa að
iðrast þess á komandi vori að hafa ekki selt á
þessu hausti.
★
Sauðfjárslátrun
hófst við Eyjafjörð þann annan september. Fara
fjárskipti fram á þessu hausti á svæðinu frá
Skjálfandafljóti að Glerá við Akureyri. Slátrun
á þessu svæði var lokið fyrir 20. sept. eða áður
en hafin var slátrun á fé af svæðum utan mæði-
veikisgirðinga.