Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005
Fréttir DV
Ofsaakstur
við Smáralind
Lögreglan í Kópavogi
stöðvaði ungan ökumann á
ofsahraða á Reykjanesbraut-
inni um
miðnætti
aðfaranótt
þriðjudags.
Að sögn
lögreglunn-
ar mældist
bifreið öku-
mannsins á ríflega 140 kíló-
metra hraða á móts við
Smáralindina í Kópavogi.
Hámarkshraði á þessu
svæði er 70 kílómetrar og er
því um tvöfaldan hámarks-
hraða að ræða. ökumaður-
inn ungi á von á boði til fufl-
trúa sýslumanns þar sem
hann verður væntanlega
sviptur ökuréttindum, auk
þess að fá væna sekt.
Sannleikurinn í deilu kristilega trúbadorsins Guðlaugs Laufdals og prédikarans
Árna Björns Guðjónssonar virðist kominn fram. Guðlaugur situr á húsgögnum
prédikarans og nafni verslunarinnar Micasa án þess að hafa greitt fyrir. Hann
sagðist aðeins geyma húsgögnin fyrir Árna - en vitni á Spáni segja hann hafa
ætlað að taka yfir reksturinn.
Vitni é Spáni stafifesta
svik trúaöa trúbadorsins
Hörð átök í
Yrsufelli
ICristín Guðríður Hjalta-
dóttir, hjartveikur öryrki í
íbúð félagsbústaða
í Yrsufefli, fór á
spítala í gær.
„Læknir staðfesti
að ég hefði fengið
tvö rifbeinsbrot.
Það gerðist í átök-
um í stigagangin-
um mínum. Svo þegar ég
kom aftur heim var búið að
brenna hurðina hjá mér,
eins og oft áður,“ sagði hún
í gær. Að sögn Kristínar
réðust nágrannar hennar
að henni. Nágranni sem DV
ræddi við vildi ekki tjá sig
um átökin. Hún sagði und-
irskriftarlista í gangi meðal
nágranna í stigaganginum
til að koma Kristínu og syni
hennar úr húsinu.
Stoliö
Geir Ólafsson
söngvari
„Ég er nú búinn aö hlusta á
lagið og kannast ekki viö að
þaö sé stoliö. Ungt fólk I dag
heldur aö þaö sé alltafað gera
eitthvaö nýtt en svo er ekki.
Það er erfitt aö semja lag sem
hefur ekki sömu hljóma eða
nótur og eitthvaö annaö. Meö
þessu er miklu frekar verið að
reyna að skemma stemming-
una en kannski betrumbæta.
Mér finnst þetta flnt lag og
þaö er góð stemming I því."
Hann segir / Hún segir
„Ég hefnú ekki pælt svo mikið f
þessu en aö það sé stoliö var
ekki það fyrsta sem mér datt í
hug. En hafa þessir Sum 41 ekki
stolið öllu hvort eð er? Mér
finnst lagiö samt hljóma vel og
hún á örugglega eftir aö flytja
þaö mjög vel, ég hefengarsér-
stakar áhyggjur afþví hvort
það sé stoliö eöa ekki. “
Andrea Jónsdóttir
dagskrárgeröarkona á Rás 2
Kristilegi trúbadorinn Guðlaugur Laufdal sagði ósatt um
aðkomu sína að húsgagnaversluninni Micasa, ef marka má orð
spænskra húsgagnaframleiðenda sem hann hitti í nóvember í
fyrra. Prédikarinn Árni Björn Guðjónsson segir Guðlaug hafa
vélað undir sig húsgagnaverslunina og ekki greitt krónu fyrir,
þrátt fyrir undirritaðan samning þeirra beggja.
Guðlaugur, þekktur fyrir að
syngja kristileg lög á sjónvarpsstöð-
inni Ómega, tók við rúmlega 700
þúsund króna virði af húsgögnum
og fékk nafnið Micasa frá Árna Birni,
prédikara á sömu stöð. Hann borg-
aði hins vegar hvorki 700 þúsund
krónurnar né 300 þúsund krónur
fyrir nafn verslunarinnar sem hann
samþykkti, samkvæmt samningi
undirrituðum af þeim báðum, að
greiða.
Afneitaði Micasa
Aðspurður sagði Guðlaugur
Laufdal í samtali við DV í mars að
hann hefði aldrei haft í hyggju að
reka húsgagnaverslun. Hann hefði
aðeins boðist til að hjálpa trúbróður
sínum með því að geyma húsgögn
verslunarinnar heima hjá sér. „Við
erum trúbræður og ég bauð ffam
hjálp mína. Ég er ekki að fara að
stofha neina húsgagnaverslun, það
stendur ekki tfl,“ sagði hann, og af-
neitaði með öllu þeim ásetningi að
kaupa nafn og lager verslunarinnar.
En húsgagnaframleiðendur sem
hittu Guðlaug í nóvember í fyrra
vitna um annað.
Prédikarinn Árni Björn Guöjónsson vará
barmi gjaldþrots þegar trúbróöir hans bauö
hjálp slna. Þaö var Guðlaugur Laufdal sem
bauöst til aö kaupa reksturinn, en neitaði þvl
siöar þegar hann hafði fengiö húsgögnin og
nafn verstunarinnar.
sem starfsmann. Hann sagði: Árni
verður starfsmaður minn og ég
borga honum laun. En svo skrifaði
hann mér aldrei og sendi mér aldrei
póst,“ segir Pedro.
Vitnisburður frá Múrsíu
„Hann sagði mér að hann vildi
halda áffam með Micasa," segir
Pedro Azorín, ffamkvæmdastjóri
húsgagnaframleiðandans Aryecla í
borginni Yecla í héraðinu Múrsíu á
Spáni, um Guðlaug Laufdal, við-
skiptafélaga Árna Björns. Fyrirtæki
Pedros hefur skipt við Árna Björn í
áratug, og því mundi hann vel eftir
manninum sem vildi taka yfir rekst-
ur hans. „Hann vildi halda áfram,
með nafninu Micasa, og með Árna
Kynnti sig sem Doodly
Elena Marco, hjá Samtökum hús-
gagnaframleiðenda á Spáni
(Conexmu), hitti einnig Guðlaug,
sem kynnti sig reyndar með öðru
nafni. „Hann kom hingað með Áma
og kynnti sig með nafninu Doodly.
Hann sagðist vilja taka yfir rekstur
búðarinnar," segir hún.
Og þrátt fyrir að afneita með öllu
þeim ásemingi að taka við rekstri
Micasa er Guðlaugur Laufdal skráð-
ur fyrir einkahlutafélagi með nafn-
Trúbadorinn á Ómega Hús-
gagnaframleiðendur á Spáni
hittu kristniboðann og trú-
badorinn Guðtaugur Laufdal,
sem kynnti sig undir nafninu
Doodly, I nóvember I fyrra.
inu Micasa hjá Ríkisskattstjóra. Er
hlutverk félagsins sagt vera póst-
verslun og önnur fjarverslun. Ekki
náðist í Guðlaug Laufdal vegna
málsins í gær.
Tortryggði trúbróður
Árni Bjöm segist í samtalið við
blaðið hafa fundið tortryggni í garð
trúbróður síns þegar hann byrjaði
að kynna sig með nafninu Doocfly á
Spáni. „Ég var búinn að segja hon-
um að búa . til bissnesskort með
nafninu sínu en hann gerði það ekki.
Það er nú eitt að kynna sig með dul-
nefni í viðskiptum, en svo sagðist
hann afltaf hafa notað þetta nafn
erlendis."
Trúbræðurnir Árni og Guðlaugur
eiga nú aðeins samskipti skriflega í
gegnum lögfræðinga sína.
jontrausti@dv.is
Glæpamönnum létt
Verjandi árásarmanns ósáttur
Tæplega helmingur
dómara erlendis
Tæplega helmingur íslenskra hér-
aðsdómara em famir úr héraði sínu
og úr landi. Rólegt er yfir dómstólum
landsins vegna þess.
Dómaramir em á ferðinni á
írlandi og er ferðin á vegum Dómara-
félags Islands. Samkvæmt heimildum
DV er ætlunin dómaranna að kynna
sér dómskerfið á írlandi og spjalla við
írska dómara. Af 38 dómurum á land-
inu em á milli 15 og 20 erlendis, flest-
ir frá Héraðsdómi Reykjavíkur, eða 7.
Það er Hjördís Hákonardóttir,
góðkunnur héraðsdómari á Suður-
landi, sem leiðir ferðina. Hún er for-
maður Dómarafélagsins. Svo virðist
sem dómarar hafi farið af flestum
héraðsdómsstólum, fyrir utan Vest-
firði: „Hér er bara einn dómari og
hann fer hvergi," sagði skrifstofu-
stúlkan þar, og Norð
urland eystra: „Þeir
em hér allir á fullu,
mínir menn,“ sagði
skrifstofustúlka þar.
Ekki svaraði hjá
Héraðsdómi
Austurlands.
Hjördís Hákonardóttir Farin með
á annan tug dómara til Irlands.
Hæstiréttur ver prófessor
„Nú hefði ég haldið að búið sé að
skapa sóknarfæri fyrir lögreglur
landsins til að hneppa handrukkara
og ofbeldismenn sem ganga lausir í
varðhald," segir Sveinn Andri Sveins-
son í samtali við DV aðeins nokkrum
mínúrnm eftir að Hæstiréttur hafði
staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
Guðmundi Þórarins-
syni, umbjóðanda.
Sveins Andra, vegna (
líkamsárásar sem Guð-
mundur hefúr játað á'
sig.
Athygli vekur að
Hægt að fangeisa hann
Hæstiréttur hefur að mati verj-
anda Guðmundar nú skapað
fordæmi til að hneppa menn
eins og Þorstein Hafberg, hand-1
rukkarann og ofbeldismanninn f
á Akureyri, I varðhald.
Hæstiréttur rökstyður úrskurð sinn
með því að vísa til D-flðar 103. grein-
ar laga um meðferð opinberra mála,
sem hljóðar svo: „Að telja megi
gæsluvarðhald nauðsynlegt til að
verja aðra fyrir árásum sakbornings
eða hann sjálfan fyrir árásum eða
áhrifum annarra manna.“
Sveinn Andri segist ósáttur við
niðurstöðu Hæstaréttar enda telji
^hann of langt gengið í að
" i svipta skjólstæðing sinn
Jffelsi. Hann hafi ekki
| áður hlotið dóma fyrir
% ofbeldisbrot auk þess
• sem hann sættist á
jiálgunarbann á hend-
ur sér.
I Áfram í gaeslu Hæstiréttur vill að Guð-
I mundur Þórarinsson verði áfram i gæsluvarð-
I haldi enda sé það mat dómsins aö prófess-
I ornum stafí hætta afhonum lausum.