Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 Fréttir W Fórnarlamb handrukkara, Davíð Ingi Guðjónsson, segir frá hinni hrottalegu árás á Akureyri þar sem hann var látinn afklæðast og skotinn með gasskammbyssu fyrir utan bæinn. Davíð segist hafa verið nær dauða en lífi. Hann er þakklátur íbúum Akureyrar sem ætla að mótmæla ofbeldi á föstu- daginn en hyggst sjálfur flytja til Danmerkur. Ottast um líf sitt og ætlar að flýja land „Ég hélt ég myndi deyja," segir Davíð Ingi Guðjónsson, 17 ára Akureyringur. Davíð er drengurinn sem varð fórnar- lamb grimmilegra handrukkara á Akureyri um þarsíðustu helgi. Davíð Ingi segir óttann sem hafi gripið hann nær ólýsanlegan. Þegar byssan var dregin upp hafi hann haldið að nú ætti hann að deyja. „Þeir hringdu í mig og sögðust vera að koma. Ég vissi að ég væri í vondum málum en grunaði ekki að þeir myndu ganga svona langt," segir Davíð Ingi, nýkominn af Stuðl- um þar sem hann var sendur í neyð- arvistvm eftir atburði síðustu daga. „Þegar þeir komu voru þeir brjálað- ir. Sögðu að ég væri að svíkja þá og hótuðu að skjóta mig." Fékk dóp á Stuðlum Davíð Ingi ber enn merki árásar- innar þann 16. apríl. Hann er með ljótt ör á höndinni, læri og baki eftir jámkúlumar sem handrukkarinn Þorsteinn Hafberg lét rigna yfir hann. Þau ör em þó smávægileg miðað við örin sem Davíð Ingi ber á sálinni. Hann hefur átt erfiða æsku og ánetjaðist snemma flknie&ium. Síðasta árið hefur Davíð verið í stöðugri neyslu fíkniefna og séð fyr- ir peningum með sölu efna. Dóp út á krít „Ég fékk 25 grömm af am- fetamíni hjá þessum strákum út á krít,“ útskýrir Davíð og á þar við Þor- stein Hafberg og félaga hans Danna. „Ég átti að selja efhið en freistaðist til að nota það sjálfur. Ég vissi að ég átti slatta ahpening inni hjá hinum og þes^pm. Á laugardeginum hringi ég ^vo^I Danna og sagðist þurfa að fara að vinna. Bað hann um smá frest til að borga.“ Danni tók að sögn Davíðs ekki vel í að veita honum frest. „Hann sagðist æda að bruna til mín og var kominn fimm mínútum síðar." Hótuðu að skjóta mig „Þeir voru fyrir utan hjá mér og sögðu mér að koma niður," heldur Davíð Ingi áfram. „Þeg- ar ég kom niður tóku þeir mig inn í bfl. Þeir vom brjálaðir. Sögðu að ég væri að svíkja þá og ætlaði að flýja úr bænum og hótuðu að skjóta mig ef ég borg- aði ekki." Mennimir tveir í bílnum vom Þorsteinn Hafberg og Daníel Christensen, oft kallaður Danni danski. Báðir em þeir þekkt- ir ofbeldismenn, með dóma á bakinu og báðir á skilorði. Davíð segir Steina hafa verið undir stýri. Hann hafi skutíað Danna í lack and Jones-búðina en farið sjálfur heim til Danna að ná í eitthvað. „Mig grunar að það hafi verið byssan," segir Davíð. Skalf af hræðslu Næst var ferðinni heitið upp á Vaðlaheiði, afskekktan stað skammt frá bænum. Aðspurður um fíðan sína á þessum tímapunkti segist Davíð hafa verið skjálfandi af hræðslu. ,AUar hurðimar á bflnum vom læstar og ég var skíthræddur. Enda enginn nálægt til að hjálpa mér ef eitthvað myndi gerast," bæt- ir hann við. Og sannarlega kom enginn Dav- íð til bjargar þegar ofbeldismenn- imir gerðu hótanir sínar að vem- leika. „Steini öskraði á mig og síðan skaut hann einhverjum átta skotum á mig, skipti um skothylki og sagði mér að fara úr fötunum. Ég gleymi aldrei svipnum á honum. Hann glotti og hló eins og hann hefði aldrei skemmt sér betur." Afklæddur og skotinn Davíð segist hafa klætt sig úr öll- um fötunum. Nærbuxunum, sokk- unum, öllu. „Þegar ég var kominn úr tæmdi hann aftur hylkið á mig. Steini gekk síðan að mér og sagði mér að veita mér í snjónum. Eitt skotið hafði farið inn í höndina á mér og það fossblæddi. Samt velti ég mér í einhveijum snjóskafli fyrir ffaman þá og þegar ég stopp- aði spörkuðu þeir í mig til að ég héldi áfram." Á endanum segir Davíð að hann hafi öskrað hvort ekki væri komið nóg. Danni hafi sagt, „jú, það er komið nóg," og stoppað Steina. Svo sögðu þeir mér að fara inn í bíl en ég man að Steini sagðist ætla að drepa mig ef það kæmi blóð í sætið." Laug að lögreglunni „Eg lá í aftursætinu alblóðug- ur,“ segir Davíð. „Ég sagði ekki neitt heldur lá bara og vonaði að ég myndi lifa þetta af. Þegar við nálguðumst bæinn stoppaði Steini bílinn og sagði mér að drulla mér út. Ég gekk smá spöl eftir veginum og reyndi að hringja á hjálp. Það hvarflaði samt aldrei að mér að „Steini öskraði á mig og sagðist ætla að drepa mig. Síðan skaut jf hann einhverjum átta skotum á mig, skipti um skothylki og sagði mér að fara úr fötunum. Ég gleymi aldrei svipnum á honum. Hann glotti og hló eins og hann hefði aldrei skemmt sér betur." segja frá þessu. Þeir sögðu að ef ég kjaftaði myndu þeir drepa mig." Davíð segir vini sína hafa keyrt sig á spítalann þar sem lög- reglan hafi verið kölluð til. Hann hafi þó ekki „kjaftað" í lögregluna heldur skáldað upp einhverja sögu. „Ég vildi ekki láta þá halda að éghefði verið handrukkaður," segir Davíð. Ætlaði að borga Eftír erfiðan dag á spítalanum var Davíð sagt að hann ætti að fara í aðgerð morguninn eftir. Ein af járn- kúlunum var föst inn í hönd Davíðs og þurfti aðgerð til að ná henni út. í stað þess að bíða eftir aðgerðinni segist Davíð að hafa flúið af spítal- anum um kvöldið. Hann hafi verið viti sínu fjær af hræðslu og ffekar viljað útvega pening til að klára að borga skuldina en liggja á spítala. Sendur á Stuðla „Daginn eftir var ég búinn að fá nóg. Allir félagar mínir sögðu mér að kæra og ég ákvað að segja lögregl- unni sannleikan. Ég áttaði mig á því að ef ég kærði myndu þeir ekki gera mér neitt," segir Davíð sem á þriðju- deginum var sendur með flugvél í lögreglufylgd á Stuðla. Þorsteinn og Dam'el vom hand- teknir en Davíð eyddi næstu dögum í einangrun innan veggja meðferð- arheimilisins. Vakning í bænum Á Stuðlum fékk Davíð Ingi ekki að sjá nein blöð og hafði því ekki hugmynd um þá reiði sem mál hans vakti. Akureyringum blöskraði að á miðvikudaginn, aðeins fáeinum dögum eftir hina fólskulegu árás, vom Þorsteinn Hafberg og Dam'el Christensen báðir lausir úr haldi. Ungir menntaskólanemar tóku af skarið og hafa skipulagt mótmæli gegn ofbeldi á Akureyri næstkom- andi fösmdag. Þakklátur fyrir stuðninginn „Ég er rosalega þakklátm fyrir allan þennan stuðning," segir Davíð Ingi en fréttimar af mótmælunum komu honum á óvart. „Það er gott að vita að fólk standi með manni og mig langar að þakka stúlkunum í MA sem skipuleggja þessi mót- mæli." Davíð Ingi segist vera á tímamót- um. „Nú stend ég héma á götunni í Reykjavík með ekkert nema farmið- ann úr landi," segir hann og játar að hann vilji hreinlega komast burt. „Eftir þetta vil ég bara komast eitthvert annað. Ég á ættingja í Dan- mörku og vona að þeir taki mér vel." simon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.