Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 Sport DV ‘ Ársþing KKÍ, Körfuknattleikssambands íslands, fer fram á ísafirði um helgina Ein af stærstu ákvörðun- unum sem taka þarf á þinginu snýst um hvort halda eigi áfram með launaþak í úrvalsdeild karla en tveggja ára reynsla er nú komin á það fyrirkomulag. r-"V k Meistarar i tíð launaþaksins Kefí- vlkingar, sem hér fagna Islandsmeistara- titlinum sem þeir unnu á dögunum, hafa unniö báöa meistaratitlana I tfö launaþaksins. DV-mynd Vilhelm að fimm manna stjóm reki deild upp á 8-9 milljónir." Samsæri og nöldur Snorri Örn Amaldsson, forsvars- maður Fjölnis, sagði sína menn ekki hafa myndað sér skoðun varðandi launaþakið sjálft en fullyrti þó að áhuginn þar á bæ beindist aðallega að eins-kanakerfi. „\fið studdum þessa tillögu varð- andi launaþakið á sínum tíma og menn vonuðust til að þetta myndi t.d. skila sér í auknum áhorfenda- fjölda," sagði Snorri öm. „Þegar á heildina er litið tapaðist meira með þessu í einhverjum deil- „íþróttirnar eru orðn- ar mengaðar því við erum búin að ofala kálfinn og hann er orðinn að feitri belju andlega." um og nöldri heldur en hitt. Menn kýta um þetta og henda fram sam- særiskenningum frekar en það sem skiptir mestu máli sem er ffammi- staða leikmanna á vellinum. Við erum alveg harðir á því að launaþak- ið eigi ekki að vera áfram í óbreyttu ástandi." Hefur bæöi kosti og galla Aðrir viðmælendur DV vom sam- mála um að launaþakið hefði bæði kosti og galla en lfldegt væri að gefa þyrfti því nokkur ár til að þróast. „Það er ekki nema tveggja ára gam- alt og er í raun enn í þróun," sagði Birgir Már Bragason, varaformaður Keflavflcur, sem fagnaði því að launaþakið var samþykkt á sínum tíma. „Launaþakið er mikið og gott aðhald fyrir öll lið. Það yrði mikil aft- urför ef launaþakið yrði fellt úr gildi enda fæm mörg félög á hausinn," sagði Birgir. dvsport@dv.is Þegar á heildina er litið tapaðist meira með þessu í einhverj um deilum og nöldri heldur en hitt. Menn kýta um þetta og henda fram sam- særiskennigum frekar en það sem skiptir mestu máli sem er frammi- staða leikmanna á vellinum." Lukkudýrin Hlutl afreglugerö um launaþakl Intersportdeild kveöuráum aöhvertfélag eigi aö vera meö lukku- dýráslnum heima- leikjum. Formaður körfuknattleiksdeildar Hamars/Selfoss vandar KKÍ ekki kveðjurnar KKÍ er sektunarglaðasta samband landsins „Það sem hefur farið fyrir brjóstið á okkur eru hinar enda- lausu sektir af hálfu KKf," sagði Lárus Ingi Friðfinnsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hamars/- Selfoss, í samtali við DV. „Menn hafa fengið sekt fyrir að vera með lélega heimasíðu, kynn- ingu á leikmönnum fyrir leiki og þar fram eftir götunum," bætti Lárus við og var greinilega lítt hrifinn af uppátækjum KKÍ. „Það er verið drepa okkur í ein- hverju sektabulli. Við gætum eins sagt að mennimir í stjórn KKÍ væm ekki nógu myndarlegir eða nægi- lega vel vaxnir og ættu því að víkja. Það er leitun að sambandi sem er jafn sektunarglatt og KKÍ hér á landi og nú síðast kom tiilaga um að skikka liðin til að kaupa visst marga miða á lokahóf KKÍ. Maður hefði haldið að það væri undir fé- lögunum sjálfum komið hvort menn mættu eður ei.“ Lárus sagði að menn ættu eftir að gera upp við sig skoðanir á launaþakinu fyrir komandi tíma- bil. „Við viljum í fyrsta lagi ein- göngu ieyfa einn Bandaríkjamann. Svo geta menn bara sniðið sér stakk eftir vexti en það er náttúm- lega ekki hægt að banna Bosman-leikmenn. En góð hugmynd væri að setja þak á liðin varð- andi launin hjá Bandaríkjamannin- um, 300 þúsund kall yrði passlegt. Ef menn vilja keyra allt á peningum, mega þeir ekki bara fara á hausinn? Er það ekki bara þeirra mál?" sagði Lárus Ingi. Ársþing KKÍ, Körfuknattleiks- sambands fslands, fer fram á Isafirði um helgina. Þar gefst mönnum tækifæri á að viðra skoðanir sínar á ýmsum mál- um og koma á framfæri tillög- ur um breytingar fyrir næstu leiktíð. DV kannaði í gær hug manna úr úrvalsdeildarfélög- unum sem eiga það allir vænt- anlega sameiginlegt að hafa skoðanir á málinu og ætla að mæta vestur til að vinna að góðu framtíðarfyrirkomulagi. Mikið hefur verið rætt og ritað um launaþak liða í Intersportdeild- inni og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Sumir vilja meina að launa- þakið hafi leitt af sér leiðindadeilur manna á milli og margir otað fingri að liðum og sakað þau um svindl. Aðrir halda því fram að launaþakið sé nauðsynlegt til að halda rekstri fé- laganna í skefjum. „Gaui Þorsteins er hlynntur launaþakinu og hefur alltaf verið það," sagði Guðjón Þor- steinsson, formaður KFÍ, í samtali við DV og varð með því fyrsti við- mælandinn til að ávarpa blaðamann í þriðju persónu. „Svo framarlega sem fólk fer eftir því og heldur sig innan ramma þess," bætti Guðjón við. Peninginn í unglingastarfið „Mér fannst þetta ábyrg stefna á sínum tíma og margt sem spilar þar inn í. Núna geta menn fengið Bandaríkjamann fyrir lægri upphæð en áður. Er þetta ósanngjamt gagn- vart þeim sem eiga peninga? Það má . vel vera. En ég segi við þá: Setjið frekar peninga í unglingastarfið þar sem alltaf vantar peninga." Guðjón sagði að launaþakið væri engin allsheijarlausn, menn þyrftu að taka ábyrgð á eigin gjörðum. „Fólk ræður sig í stjóm, eyðir öllum peningunum, setur félagið í risa- skuld og stingur svo af. Sömu aðilar em svo ekki tilbúnir að kvitta undir persónulega fyrir ábyrgðinni." Kálfurinn að feitri belju „íþróttirnar em orðnar mengað- ar, því við erum búin að ofala »kálfinn og hann er orðinn að feitri belju andlega. Ég tek bara ónefnda íþróttagrein þar sem menn em allir á launum á Islandi þar sem íþrótta- hreyfingin er stórskuldug. Það finnst mér mjög loðið. Hvað heldur þú að það séu margir íslenskir íþrótta- menn sem nenna að labba í hús og selja klósettpappír félaginu til stuðnings? Þeim finnst þetta bara lummó en á sama tíma ætlast þeir til

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.