Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Side 12
72 MIÐVIKUDACUR 27. APRÍL 2005 Fréttir DV Vinnufrestur að renna út Á laugardag rennur út frestur fyrir reykvísk ung- menni að sækja um sumar- vinnu hjá Reykjavfkurborg. í fyrra fengu færri starf en vildu og ekki er búist við að breyting verði á þetta árið. Það er Vinnumiðlun ungs fólks sem heldur utan um sumarstörf ungs fólks hjá Reykjavíkurborg og geta öll ungmenni fædd 1988 eða fyrr sem eru með lögheimUi í Reykjavík sótt um á vuf.is. Vinnumiðlunin er staðsett í Hinu húsinu við Pósthús- stræti. Vegagerðin braut lög Vegagerðin er skaða- bótaskyld eftir að hafa geng- ið framhjá tUboði fýrirtækis- ins Neseyjar ehf. í ýmsa vinnu vegna Suðurstrandar- vegar frá Hrauni að ísólfsskála. Nesey var lægstbjóðandi en Vegagerðin gekk tU samn- inga við HáfeU ehf. sem bauð næstíægst í verkið. Kærunefnd útboðsmála segir að Vegagerðinni ekki hafa verið þetta heimtít þar sem Nesey hafi uppfyUt skU- yrði útboðsins, andstætt því sem Vegagerðin hélt fr am. Kærunefhdin tók ekki af- stöðu tíl þess hver upphæð skaðabótanna ætti að vera. Völdu lag Kópavogs í tUefrú af fimmtíu ára afmæli Kópavogsbæjar var efnt tíl lagasam- keppninnar Kópavogslag- ið. lkeppnina bárust 26 lög en dómnefnd skip- uðu: Valgeir Skagfjörð, sem var formaður, Stefán HUmarsson og HraftUUld- ur HaUdórsdóttir. Dóm- nefridin valdi lagiö Hér á ég heima sem sigurlag og fengu höfundar þess, þær Þóra Marteinsdóttir og Steinunn Anna Sigurjóns- dóttir, fimmtíu þúsund krónur að launum. „Mér líður alveg rosalega vel hér á Hellnum," segir Guðrún Bergmann hótelhaldari á Snæfellsnesi.„Sól skín f heiði og jökullinn eins fallegur og hann getur orðið. Ég er að undirbúa að opna hjá mér hótelið um næstu helgi ogþar meðer sumar- ið komið. Ég hefbara opið frá 1. maí til I. október. Hér er ég með 20 tveggja manna her- bergi með baði á hagstæðu veröi og tilboðsverði í maí en þá kostar herbergiö 8.500 með morgunverði. Og þá erum við aö tala um Iffrænt morgun- verðarhlaðborö; heilsusam- legt og hollt fyrir þá sem það vilja." Landsíminn Ásgeir Guðmundsson, sem var formaður hundaræktunarfélagsins íshunda þar til fyrir stuttu en hefur nú stofnað annað hundaræktunarfélag, fékk slæma útreið í bréfi sem stjórn íshunda sendi meðlimum sínum fyrr í mánuðinum. Margrét Tómasdóttir segir allar ásakanirnar í bréfinu eiga við rök að styðjast. fyrrverandi iormaour Ishunda niðurlægöur „Sem betur fer hefur nú allri vá verið bægt frá og félagið er mikið betur sett ánÁsgeirs og meðreiðarfólks hans,“ segir meðal ann- ars í harðorðu bréfi sem var sent á félagsmenn íshunda. Fleiri svívirðingar eru hafðar frammi í bréfinu í garð Ásgeirs. „Skipstjóri stekkur ekki út á miðri leið,“ var það eina sem Margrét Tómasdóttir, núverandi formaður íshunda, vildi segja varðandi bréfið um Ásgeir Guðmundsson. Margrét brást ókvæða við þegar hún var spurð um bréfið þar sem Ásgeiri er úthúðað. Hún hótaði að „fara í hart“ myndi bréfið í heild sinni eða að hluta til birtast á síðum blaðsins; vísaði til þess að bréfið væri stílað á félagsmenn og þetta kæmi engum öðrum við nema þeim. Stjórninni ofbauð einræðið Margrét er dóttir Ástu og Tómas- ar í Dalsmynni en íshundar voru stofnaðir í kringum hunda þaðan. Athygli vekur að bréfið er ekki undir- ritað með nafni heldur aðeins merkt stjórn Hundaræktarfélagsins fs- hunda. Ásgeir sagði sig úr stjórn íshunda fyrir nokkrum vikum en honum fýlgdi meirihuti stjórnar. Eftir því sem DV kemst næst mun stjórninni algjörlega hafa ofboðið vinnubrögð og einræði Margrétar og systur hennar Sesselju Tómasdóttur. Eitt atvik vegur þar þyngra en önnur og mun það hafa fýllt mælinn. Hafa fráfarandi stjórnarmenn ekki viljað ræða það að svo komnu máli en ætía að leysa frá f skjóðunni síðar. Sagður stefna íshundum í háska í bréfinu kemur fram að Ásgeir hætti störfum sem formaður fshunda fýrirvara- laust og er hann sagður með því hafa stefnt tÚ- vist og starf- semi íshunda í háska og tvísýnu. „Má vel kalla ffamgöngu hans hreina skemmdarverkastarfsemi en enn verri orð mætti líka hafa,“ segir orðrétt í bréfinu. Athyglisvert er að í lögum ís- hunda kemur eftirfarandi klausa fram og er átt við ástæður sem geta orðið til brottreksturs úr félaginu: „Ef félagsmaður í orðum, gerðum eða skrifum skaðar álit íshunda. Sama á við um framkomu eða gerð- ir sem skaða íshunda." Ekki er fjarri lagi að umrætt bréf núverandi stjórnarmanna gæti faliið undir þessa málsgrein. Fólk hvatt til að hunsa nýja félagið í bréfinu segir enn fremur: „Lengi getur vont versnað og vondur innri maður orðið verri því í ljós hefur komið að Ásgeir stendur fyrir nýju hundaræktunarfélagi. “ í lok bréfsins eru ailir eindregið hvattir til þess að „trúa mátulega fagurgala um hið nýja félag", og er þar vísað til hins nýja félags sem Ásgeir hefur stofnað. Hann er sak- aður um að nota upplýsingar og gögn íshunda til að grafa undan félaginu og setja starfsemi fé- lagsins og þar með vorsýningu sem nú hefur farið fram, í hættu. Ekki Ásgeir Guðmundsson Er staddur erlendis en mun svara ásökunum i sinn garð þegar hann kemur til landsins. — | gl „Má vel kalla fram- göngu hans hreina skemmdarverkastarf- semi en enn verri orð mætti líka hafa/'segir orðrétt í bréfinu. voru aðrir fyrrverandi stjórnar- menn nafngreindir í bréfinu. Fáir hundar á vorsýningu Um síðustu helgi var vorsýning íshunda hafdin. Þar sýndu færri en oft áður og talsvert bar á að eigend- ur mættu ekki með skráða hunda til sýningar. Þeir hundar sem sýndir voru áttu flestir eins og fyrr uppruna í Dalsmynni eða til stjórnar íshunda en þær Sesselja og Margrét hafa ffá upphafi verið í stjórn félagsins. Ásgeir svarar í vikunni Ásgeir er staddur erlendis og gat Margrét Tómasdóttir Núverandi for- maður fshunda sem ekki vildi tjá sig um einstök efnisatriði bréfsins. ekki tjáð sig til ítar um málið að svo stöddu. „Þetta er alveg gjörsamlega glórulaust, algert bufl," sagðiÁsgeir þegar blaðamaður náði örstuttu tali af honum en hann ætlar sér að svara þessum ásökunum þegar hann kemur til landsins seinna í vikunni. krb@dv.is Dóttir Dalsmynnishjóna kærö Sögð sæða tíkurnar sjálf Yfirdýralækni og Umhverfis- stofnun hefur borist kæra þar sem Sesselja Tómasdóttir, dóttir hjón- anna í Dalsmynni, er sökuð um að sæða tfkur á hundabúi foreldra sinna upp á eigin spýtur. Slíkt er vandasamt verk og ekki á færi ann- arra en dýralækna. í kærunni kemur fram að vitni hafi verið að því að þegar Sesselju tókst ekki að para saman tvo hunda hafi hún, án samráðs eða aðstoðar dýrlæknis, sætt cocker spaniel-tík og látið að því liggja að það væri eðlileg aðgerð sem hver sem er gæti fram- kvæmt. Karl Karlsson, dýralæknir hjá Umhverfisstofnun, staðfesti að hon- um hefði borist skrifleg tilkynning þar sem óskað er eftir að fram fari rannsókn á hvernig þessum málum er háttað á Dalsmynni. „Ég hef þegar rætt við ýmsa sem að málinu koma og mun taka á þessu máli. Það er skýrt í mínum huga að sæðingar á gæludýrum séu eingöngu á valdi dýralækna en þetta er mjög vandasöm aðgerð og að ýmsu að hyggja í þessu sambandi," segir Karl og bendir á að dýralæknar þarfnist sérstakrar fæmi við sæð- ingu vegna smæðar gæludýra: „Jú, það er alltaf hætta á sýkingu og vissulega geta dýr kenht til ef ekki er varlega farið." Geir staðfestir Fjármálaráðherra hefur staðfest samkomulag við stéttarfélög innan BHM um kjarasamning félaganna. Öll aðildarfélög BHM sem að sam- komulaginu stóðu, utan eitt, sam- þykktu það, flest með yfirgnæfandi meirihluta. Við gerð samkomulags- ins gerði fjármálaráðherra það að skilyrði fyrir samþykki sínu að aUir aðilar að því staðfestu það. í ljósi þess hagræðis sem af samkomulag- inu leiðir, m.a. með gerð sam- ræmdra stofnanasamninga, er það eigi að síður mat ráðherra að rétt sé að staðfesta samkomulagið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.