Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Page 13
ÖV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 27. APRlL 2005 13
Vill vita um
sendiherra
Sigurjón Þórðarson hef-
ur lagt fram tvær fyrir-
spurnir fyrir
Davíð Oddsson
utanríkisráðherra
varðandi fjölgun
og ráðningar í
utanríkisþjónust-
unni. Vill Sigurjón
fá svör við því
hversu margar
ráðningar sendiherra komu
eftir eðlilegan framgang
starfsmanna í utanríkis-
ráðuneytinu á tímabilinu
1995-2005 og hversu marg-
ar af ráðningunum hafi
verið pólitískar og hvaða
stjórnmálaflokkum þær
hafi tengst.
Dýr hektari
á Klaustri
Vegagerðin á að
borga eigendum jarðar-
innar Kirkjubæjarklaust-
urs rúmar 2,4 milljónir
króna í bætur vegna 1
hektara skika sem tekin
var eignarnámi þar
eystra. Matsnefnd eign-
amámsbóta tók undir
með þeim Lárusi Sig-
geirssyni, Sverri Gísla-
syni, Fanneyju Ólöfu
Lárusdóttur, Auði Winn-
an Helgadóttur, Elínu
Frigg Helgadóttur og
Lámsi Helgasyni að til-
tekið land hafi ónýst.
„Verulegur hluti hinnar
eignarnumdu spildu er
ræktað land og að áhti
matsnefndarinnar er
spildan öll ákjósanlegt
byggingarland."
Hundrað starfsmenn Toyota hér á landi fengu Ray Ban-sólgleraugu við brottför úr
landi á leið á árshátíð á Sikiley á dögunum. Kostnaðurinn hleypur á bílverði en
hópurinn vakti mikla athygli ytra fyrir bragðið.
Um hundrað starfsmenn Toyota-umboðsins hér á landi eru ný-
komnir heim af árshátíð sem haldin var á Sikiley.
Flaug hópurinn út í gegnum
London með viðkomu í Leifsstöð eins
og lög gera ráð fyrir. í flugstöðinni
biðu allra sólgleraugu frá Ray Ban sem
er eitt magnaðasta merkið í sólgler-
augnabransanum og mikið notað af
poppstjömum jafiit sem kvikmynda-
leikurum bæði austan hafs og vestan.
Gleraugun fékk Toyota-fólkið í versl-
uninni Optical Studio í Leifsstöð -
hundrað stykki á línuna.
Níu þúsund stykkið
Verslunarstjórinn í Optical Smdio í
Leifsstöð segir að meðalverð á Ray Ban
sólgleraugum sé um mu þúsund krón-
ur. Þó sé hægt að fá þau niður í sjö þús-
und og níuhundruð krónur og allt upp
í þrettán þúsund: „En þetta vom engin
vandræði fyrir okkur. Við eigum alltaf
nóg á lager," segir verslunarstjórinn.
Ægilega gaman
Kristján Aðalsteinsson, fjármála-
stjóri Optical Studio, vill ekki tjá sig
um málefni einstakra viðskiptavina en
kannast þó við að Toyota-fólkið hafi
fengið umrædd sólgleraugu áður en
flogið var á ársháti'ðina á Sikiley.
Fanný Bjamadóttir, starfsmannastjóri
hjá Toyota, er þó ekki feimin að tjá sig
um sólgleraugun:
„Þetta vom frábær sólgleraugu og
vissulega em þau dýr. En það var alveg
ægilega gaman á árshátíðinni á Sikiley
en ferðin var skipulögð fyrir okkur af
Úrvali-útsýn," segir starfsmannastjór-
inn.
Brad Pitt?
Á ferðum Toyota-fólksins um
Sikiley gegndu sólgleraugun úr Leifs-
stöð hlutverki sameiningartákns sam-
stillts hóps sem kominn var um lang-
an veg til að skemmta sér. Hvar sem
fólkið fór um þröng stræti Palermo
mátti þekkja það á Ray Ban-sólgler-
augunum. Héldu margir heimamenn
að þama væri á ferð kvikmyndagerð-
arfólk frá Hollywood við upptökur.
Líklega vegna þess að Brad Pitt hefur
verið duglegur við að auglýsa Ray Ban
og Tom Cruise reyndar líka.
Engin bíiaskipti
Miðað við það magn af sólgleraug-
um, sem Toyota keypti handa starfs-
fólki sínu í Leifsstöð má gera ráð fyrir
að kostnaður hafi numið um milljón
króna:
„Nei, við greiddum ekki fyrir með
Toyota-bíl og það er okkar mál hvem-
ig að þessu var staðið," segir Fanný
starfsmannastjóri aðspurð.
ta sleaið í cjecjn.
Gar&húsgöcjn sem haja stecji
Sérstahlecja sterhbycjcjh, hönnuh jyrir
íslensha vehráttu til ah standa úti allt
árid Mjöj jjölhreytt úrval.
&
Dalvegi 28 • 201 Kópavogur • Sími: 517 8509 • Fax: 517 8508 • Netfang: vidarko@vidarko.is • Veffang: www.vidarko.is