Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 Sport DV Henry gæti misst af bikarúrslit- unum Arsene Wenger, knattspymu stjóri Arsenal, hefur viðurkennt að svo gæti farið að franski fram herjinn Thierry Henry missi af bikarúrslitaleiknum i gegn Manchester United 21. maí næst komandi. Henry, 7' sem er meiddur á nára, hefur verið frá undanfarnar vikur og Wenger sagði öruggt að það yrði ekki tekin i nein áhætta með / f ■ þennan frábæra leikmann. „Hann ' er mjög mikilvæg ' ur fyrir okkur en það sem skiptir öllu máli A er heilsa hans og ef J við höldum að það ■ sé áhætta að láta hann spila þá mun hann ekki spila. Hann gæti verið frá í fjórar vikur en það góða er að hann verður ekki frá í þijá mánuði. MeiðsÚ hans eru álagsmeiðsli, frek ar viðvörun heldur en alvarleg meiðsli vegna álagsins sem hann hefur verið undir," sagði Wenger. Kenyon spáir yfirburðum Chelsea Peter Kenyon, yfirmaður knattspymumála hjá Chelsea, spáir því að félagið, sem getur tryggt sér fyrsta meistaratitilinn í fimmtíu ár á laugardaginn, eigi eftir að bera ægishjálm yfir önnur lið á Englandi á næstu árum. „Það sem hefur gerst á þessu tímabili er ótrúlegt. Það bendir hins vegar ekkert til þess að þetta tímabil sé tilviljun. Öll umgjörð og uppbygg ing innan Chelsea bendir til þess að félagið muni hafa burði til að halda áfiram á sömu braut," sagði Kenyon sem ætlar þó ekki að kaupa árangur á næstu árum. „Við stefnum að því að reka félag ið með hagnaði á næstu árum og það verður ekki farið í nein stór kaup án þess að tilefni gefi til. Jose Mourinho er á sömu h'nu og við og vinnur eftir því,“ sagði Kenyon. Kewell í hópinn á ný Ástralinn Harry Kewell verður í leikmannahópi Liverpool í kvöld þegar liðið mætir Chelsea í und anúrslitum meistaradeildarinnar. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, sagði að Kewell, sem hefur ekki verið í hópnum síðan í úrslitaleik deildabikarins í febrúar, sé ekki búinn að ná sér að fullu en hann geti samt hjálpað til. „Hann mun ekki spila heilan leik en vonandi getur hann komið inn á. Hann er búinn að leggja hart að sér und anfarinn mánuð, er góður leikmaður og það er klárt að nærvera hans hjálpar okkur,“ sagði Benitez. Spánverjinn sagð ist jafhframt vonast til þess að landar hans, Xabi Alonso , og Luis Garcia, sem voru báðir fjarri . / góðu gamni gegn Crystal Palace um 'c » helginavegna * Ogd// meiðsla, verði klárir í slaginn. 0k m Chelsea og Liverpool mætast í kvöld á Stamford Bridge í fyrri undanúrslitaleik lið- anna í meistaradeildinni. Liðin hafa mæst þrívegis í vetur og hefur Chelsea farið með sigur af hólmi í öll skiptin. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, er þó bjartsýnn. Chelsea-liöiö er ekki ósigrandi Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, veit hvað þarf til að ná árangri í Evrópu. Benitez stýrði Valencia til sigurs í Evrópu- keppni félagsliða í fyrra og þótt gengi Liverpool í ensku úrvals- deildinni hafi verið brokkgengt þá hefur liðið varla slegið feilnótu í meistara- deildinni og er öll- um að óvörum komið í undanúrslit keppninnar. Bentiez er sannfærður um að Evrópuævintýri Liverpool geti haldið áfram jafnvel þótt andstæðingurinn sé heitasta liðið í Evrópu nú um stundir. Chelsea getur tryggt sér enska meistaratitilinn í fyrsta sinn í fimmtíu ár á laugardaginn ef liðið leggur Bolton að velli á Reebok- leikvanginum en liðið mun einnig þurfa að hugsa um leik- ina tvo gegn Liverpool í undan- úrslitum meistaradeildarinnar. Ljóst er að Chelsea er fyrir- Chelsea hefur spilað frábærlega í úrvals- deildinni á þessu tímabili en við höfum verið nálægt því að vinna liðið í öllum þremur leikjunum í vetur. Þeir eru ekki ósigrandi." fram talið sigurstranglegra liðið í þessu einvígi enda hefur velgengni Úðsins á þessu tímabili verið ótrúleg. Benitez er þó brattur og segist hafa séð það í þessum þremur viðureign- um gegn Chelsea í vetur að hans menn geti komið á óvart. Höfum verið nálægt sigri „Við lítum á þetta sem Evrópu- leik og hlutirnir eru alltaf öðruvísi í meistaradeildinni heldur en í deild- inni heima. Chelsea hefur spilað frá- bærlega í úrvalsdeildinni á þessu tímabili en við höfúm verið nálægt því að vinna liðið í öllum þremur leikjunum í vetur. Þeir eru ekki ósigrandi því að öll lið geta unnið hvert annað í Englandi. Það er mikil- vægt að skora mark á útivelli en það er þó ekki lífsnauðsynlegt. Juventus skoraði gegn okkur á Anfield en tókst samt ekki að komast áfram. Það mikilvægasta fyrir okkur er að vera sterkir, agaðir og að liðið vinni sem ein heild," sagði Benitez í sam- tali við heimasíðu Liverpool. Gæti unað Liverpool sigri Jose Mourinho, knattspyrnu- stjóri Chelsea, viðurkenndi við fjöl- miðla í gær að hann gæti vel unað Liverpool að vinna meistaradeildina ef liðið nær að slá Chelsea út úr und- anúrslitunum. Mourinho er mjög áfjáður í að vetja titilinn sem hann vann með Porto á síðasta tímabili en sagðist styðja Liverpool ef þeir kom- ast áfram. „Ég vinn í Englandi og ég er mjög hamingjusamur með að enskt lið verði í úrslitaleiknum í ár. Ef ég get ekki unnið meistaradeildina með Chelsea þá vona ég að Rafa [Beni- tez] vinni því mér lfkar vel við hann, virði hann og á góð samskiþti við hann." Terry ber virðingu fyrlr Liverpool íohtí Terry, fyrirliði Chels n var valinn —ar leiogum sínum valsdeildinni, segir að Liver sé með stórh»tti,io^ n*__: og ao nöið verði í hefadarhij tí þijú töp í viðureignum lið, á þessu tífnabili. „Þeir eru m ilSBlllfillrflrflríj _______ oicvcn uerrara, Mil; Baros, Jamie Carragher og S Hyypia sem eru allir mjög g( Vlð bftmm míHn ? um deildarbikarsins og í bái deildarleikjunum. Við eigun leikinn heima og vonandi getum við næltokkurígott vega- nesti fyrir ^ seinni leikinn á Anfield. Það verðurmjög erfiður leikur enda eru stuðn- tagsmenn Liver- pool ffábærir á heimavelli," sagði Terry. Spænski landsliðsmaðurinn Xabi Alonso Þurfum að stoppa Lampard Spænski miðjumaðurinn Xabi Alonso hjá Liverpool hefur lofað því að stoppa Frank Lampard hjá Chelsea í leik liðanna á Stamford Bridge í meistaradeildinni í kvöld. Alonso ber mikla virðingu fyrir Lampard og telur að Evrópu- ævintýri Liverpool geti runnið sitt iskeið á enda ef leikmenn liðsins ihafi ekki góðar gætur á honum í ' leikjunum tveimur. Það hljómar kannski kald- • hæðnislega en það var sami Lampard sem ökklabraut Alonso í leik liðanna á Anfield Road á nýársdag en Alonso segist ekki erfa það við hann og hlakkar mikið til að mæta honum. „Frank Lampard erhúinn að eiga , frábært tímabil með Chelsea þannig I að það er mikilvægt að við komum í veg fýrir að hann nái sér á strik. Hann hefúr frábæra hæfileika til að bijótast hratt frá af miðjunni, skorar mikið af mörkum og leggur einnig upp fýrir félaga sína. Við þurfum að passa boltann þegar við erum með hann til að stoppa Lampard og gæta þess að við vinnum lausu boltana á miðjunni. Eg ætía að sjá til þess að Lampard nái sem sjaldnast valdi á boltanum. Þegar hann nær stjórn á honum þá ætía ég að gera honum eins erfitt fýrir og mögulegt er. Ef ég geri það ekki þá getur hann gert okkur lífið leitt," sagði Alonso sem gleðst þó yfir því að Liverpool eigi leikmann í sama gæðaflokki og Lampard. „Við eigum sem betur fer leikmann, Steven Gerrard, sem er í sama gæðaflokki og Lampard. Ég get „Hann hefur frábæra hæfi- leika til að brjótast hratt frá afmiðjunni, skorar mikið af v mörkum og leggur einnig upp fyrir félaga ekki sagt til um það á þessari stundu hvor S//7Q. er betri, Gerrard eða Lampard, en það er öruggt að þeir eru tveir af bestu leikmönnum heims um þessar mundir. England er heppið að hafa þá báða,“ sagði Alonso sem verður væntanlega búinn að hrista af sér meiðslin sem héldu honum utan vallar gegn Crystal Palace um helgina. Alonso hefur verið frábær á miðjunni hjá Liverpool síðan hann kom úr meiðslum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.