Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2005, Blaðsíða 25
DV Sport
Þrír íslenskir skíðamenn hafa verið valdir i hóp 60 evrópskra
iþróttamanna sem VISA Europe ætlar að styrkja til þátttöku á
vetrarólympíuleikunum í Tórinó á næsta ári. Það er sjálfur
Björn Dæhlie sem mun hafa yfirumsjón með hópnum.
Það eru þau Elsa Guðrún Jónsdóttir skíðagöngukona og svig-
skíðafólkið Dagný Linda Kristjánsdóttir og Kristján Uni Óskars-
son sem urðu þess heiðurs aðnjótandi að hljóta styrkinn frá
VISA og verða þannig fulltrúar fslands í 60 manna hóp VISA sem
ber heitið „Vonarstjörnur Visa“.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ís-
lenskir íþróttamenn hljóta náð fyrir
augum VISA en fyrir ÓL í Aþenu síð-
asta sumar voru stangarstökkvarinn
Þórey Edda Elísdóttir og sundkapp-
inn Örn Arnarson, ásamt íslenska
handknattíeikslandsliðinu á styrk
fráVISA.
Mesta athygli vekur að Dagný
Linda skuli hafa verið valin þar sem
hún er enn að jafna sig eftír slæm
krossbandsslit og hefur ekki náð að
beita sér af kraftí í rúmt ár. Dagný
sagði við DV að vahð hefði komið sér
mjög á óvart. „Mér var tilkynnt að ég
væri ein af skíðamönnunum sem
komu til greina fýrir um mánuði síð-
an og ég ætíaði varla að trúa því.
Þetta er auðvitað alveg frábært tæki-
færi fyrir mig og ég er staðráðin í að
ná mér af þessum meiðslum. Svona
styrkur hjálpar alveg gríðarlega og
ég ætía að sýna þeim sem stóðu að
vahnu að ég á heima í þessum hópi,“
sagði Dagný Linda.
Dæhlie er innan handar
Hópurinn og þar með taldir ís-
lendingarnir þrír verða undir hand-
leiðslu ekki minni spámanns en
Björns Dæhlie, margfalds ólympíu-
meistara I skíðagöngu og eins mesta
affeksmanns íþróttasögunnar.
Dæhlie kvaðst í samtali við DV ekki
hafa þekkt tíl neins af íslenska skíða-
fólkinu áður en vahð var í afreks-
hópinn.
„En ég er búinn að umgangast
þau í nokkurn tíma núna og þetta
eru frábærir krakkar með rétt hugar-
far. Það er mikill metnaður í þeim og
ég verð að segja að ég er nokkuð
bjartsýnn á að þau geti komist á ÓL
og staðið sig þar með sóma,“ segir
Dæhlie en þess má geta að enginn
íslensku skíðamannanna hefur náð
tilsettum lágmörkum fyrir ÓL.
Dæhlie sagði það einnig vera
mjög skemmtilega tilviljun að Elsa
Guðrún og Dagný Linda skyldu búa
í Noregi, heimaiandi Dæhhes. „Það
þýðir að ég og Elsa getum kannski
æft saman,“ sagði Dæhlie og hló.
íslensku krakkarnir báru norsku
goðsögninni vel söguna og sögðu
Dæhhe lausan við aha stjörnustæla.
Hans hlutverk er fyrst og fremst að
gefa hópnum ráð um aht milli him-
ins og jarðar og segir Kristján Uni að
það hafi hann þegar gert. „Hann th
dæmis er búinn að gefa okkur ráð
um hvernig eigi að koma fram við
fjölmiöla. Og svo lfka litlir hlutir sem
koma að smávægilegum tækniatrið-
um, mataræði og fleiru,“ sagði Krist-
ján Uni.
vignir@dv.is
- besta sætið
CHELSEA
LIVERPOOL
ÍKVÖLD KLUKKAN 18:30
íslensku íþróttamennirnir í vonarstjörnuhópnum:
Dagný Linda Kristjánsdóttir
Fædd: 8.janúar 1980
íþrótt: Skíði/alpagreinar
(Brun, svig, stórsvig, risasvig)
Félag: Skíðafélag Akureyrar
Dagný Linda er fædd og uppalin á
Akureyri og hóf að læra á skíði þeg-
ar hún var átta ára gömul. Hún hef-
ur verið kosin skíðakona ársins hér
á landi fjórum sinnum og nú þegar
hefur hún sigrað á 22 alþjóðamót-
um. Hún hefur keþpt á tveimur
heimsmeistaramótum og einnig
tekið þátt á ÓL í Salt Lake City árið
2002. Dagný Linda hefur átt við
meiðsli að stríða í hné frá því f janú-
ar 2004. Hún er bjartsýn á að ná
bata innan skamms og stefnir
ótrauð á ÓL íTórínó á næsta ári.
Elsa Guðrún Jónsdóttir
Fædd: 23.júní 1986
íþrótt: Skíði/ganga
(Brun, svig stórsvig, risasvig)
Félag: Skíðafélag Ólafsfjarðar
Það er löng hefð fyrir skíðagöngu í
fjölskyldu Elsu Guðrúnar og hefur
hún sjálf stundað skíðaíþróttina
alla sína ævi. Frá fimm ára aldri hef-
ur hún æft reglulega og unnið alla
þá titla sem hægt er að vinna hér-
lendis. Elsa Guðrún hefur sigrað í
göngu á Skíðamóti íslands fimm
sinnum í röð og þá hefur hún sigr-
að á Unglingameistaramóti (slands
í skíðagöngu frá árinu 1999. Hún
getur því státað af 17 gullpening-
um i grein sinni.
Kristján Uni Óskarsson
Fæddur: 4. febrúar 1984
tþrótt: Skíði/alpagreinar
(Brun, svig, stórsvig, risasvig)
Fétag: Skíðafélag Ólafsfjarðar
Kristján Uni hefur stundað skiði frá
unga aldri og fór mjög snemma að
keppa á alþjóðamótum. (þeim hef-
ur hann öðlast dýrmæta reynslu og
árið 2003 náði hann 15. sæti á
heimsmeistaramóti unglinga í
svigi. Síðan þá hefur hann bætt sig
jafnt og þétt og hefur han'n meðal
annars náð ágætis árangri á FIS-
stigamótunum. Sem dæmi um það
náði hann 1. sætinu í Slóveníu á
þessu ári og á timabilinu endaði
hann í 4. sæti samanlagt.