Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Page 6
6 LAUGARDAGUR 14. MAÍ2005
Fréttir DV
Lundinn
seinn í ár
Lundinn í Ingólfshöfða
er seinn að taka við sér í ár
því fáir lundar eru farnir
að verpa. Hvergi er sjór
eins heitur við ísland o;
við Ingólfshöfða. Þess
vegna hefur varp
haflst fyrr þar en á öðr-
um stöðum á landinu.
Núna hefur sjórinn verið
óvenju kaldur og er það
talið orsök þess að varpið
er svo seint að fara í gang.
Við Ingólfshöfða verpa um
50 þúsund lundapör en
talið er að 400 þúsund
lundar séu þar.
Borga fyrir
besta nafnið
Efnt verður til sam-
keppni um nafrt á veit-
ingastað sem verður á
annarri hæð Byggðar-
safnsins á Garðskaga. Það
er Byggðarsafnsnefnd
sveitarfélagsins Garðs sem
stendur fyrir keppninni og
fær sá sem stingur upp á
besta nafnið 25 þúsund
krónur í verðlaun. Ef
margir stinga upp á sama
nafhinu verður vinnings-
hafinn dreginn út. Þeir
sem hafa góðar hugmynd-
ir um nafn á veitingastað-
inn geta sent hugmyndir
sínar til sveitarfélagsins
fyrir 8. júní. Vinningshaf-
inn verðurkrýndurá
þjóðhátíðardaginn, 17.
júm'.
Hemmi Gunn
er snillingur!
Helgi Björnsson
tónlistarmaöur.
„Það er ekkert vafamál að
Hemmi Gunri ersnillingur.
Hann náttúrlega sýndi snilli-
gáfu sína snemma í fótboltan-
um, margítrekaö í skákinni og
er að auki Vestfirðingur. Þegar
þetta þrennt kemur saman þá
eru mönnum allir vegir færir,
ekkert sem stoppar þá. Hann
er rétt að byrja, getur gert allt
sem hann langar. Verður fyrsti
fslendingurinn til að vera
skemmtiþátt á tunglinu."
Hann segir / Hún segir
„Því verður ekki neitað að
hann er kóngurinn. Ég veit
nú samt ekki hvort þetta er
einhver snilligáfa eða ekki.
En það er eitthvað við
Hemma sem bræðir, einhver
einlægni og útgeislun sem
heillar þjóöina. Alþýðilegur
sjarmi. Hemmi setursig ekki
á háan hest og talar niður til
fólks. Fannst hann dálítið
stressaðurí fyrstu en um leið
og hann slakaði á þá slakaði
maður á með honum."
Björk Jakobsdóttir
leikkona.
Yfirmenn Lögreglunnar 1 Reykjavík segja aldrei hafa kom-
ið til greina að gruna neinn annan en Hall G. Hilmarsson
um stuld á 870 þúsund krónum í dóppeningum. Hæsti-
réttur sýknaði Hall og gengur þjófurinn því enn laus.
Verjandi Halls, Karl Sigurbjörnsson segir Hall
hafa verið brennimerktan.
■ ■■ -
f
Hallur G. Hilmarsson
Fyrrverandi féiagar hans
hafa aldrei grunaö
annan um Þjófnaðinn.
erum
~ sannfærðir
^ um að eng-
'tim* inn annar
* innan fíkniefna-
deildarinnar hafi stolið
þessum peningum."
MWfcKl
„Menn eru ekki sáttir," segir Geir Jón Þórisson
um sýknudóm Hæstaréttar yfir Halli G. Hilm-
arssyni. Hallur var dæmdur í héraðsdómi fyrir
að hafa stolið 870 þúsund krónum af dóppen-
ingum sem lagt hafði verið hald á í fíkniefna-
máli. Háttsettir menn innan lögreglunnar
segja engan annan en Hall hafa getað tekið
peningana, enginn annar hafi nokkurn tímann
verið grunaður.
Bfiápliw,
Hæslirénur irúði |
ra«i Herðí Jéftannessyni
semsagðiHalflotoJáM I
fyrlr sér að bafa stolið
870 ðúsund krénuin I
ffSSSLénnem
PV Igæ
Enginnhefurver-
ið dæmdur fyrit
þjófiiað á tæpri millj-
ón króna sem lagt
hafði verið hald á í
eiturlyfjaaðgerð sem
Hallur G. Hilmars-
son stjórnaði í des-
ember 2002. Upphaf-
leg athugun á málinu
var í höndum Ásgeirs
Karlssonar og Harðar jó-
hannessonar og í þeirra
huga er lítill vafi á hver tók
peninga.
„Athugun okkarÁsgeirs
Karlssonar á málinu leiddi
í ljós að það hefði verið
Hallur, yfirmaður fíkni-
efnadeildarinnar, sem
tók þessa pen-
inga,“ seg-
ir Hörður
Jóhann-
esson yfir-
lögreglu- *
þjónn. Hörð-
!
,
Ásgeir Karlsson, Hörður Jó-
hannesson og Geir Jón Þórisson
Ætla aö ræða stöðu mála eftir helgi.
við sauðburð í grennd við Hólma-
vík þegar DV náði á hann en
hann, Geir Jón og Ásgeir Karlsson
munu ásamt fleirum innan lög-
reglunnar meta stöðu mála eftir
helgi.
Sá eini grunaði
Geir Jón Þórisson segir stöð-
una sem upp er komin alvarlega.
„Það erfitt fyrir þá sem eftir eru í
fíkniefnadeÚdinni að sitja undir
því að nú horfi menn á það sem
svo að það sé einn þeirra sem hafi
tekið peningana," segir Geir.
Undir þetta tekur Hörður Jó-
hannesson. „Þetta er erfið staða
en við erum sannfærðir um að
enginn annar innan fíkniefna-
deildarinnar hafi stolið
þessum peningum,"
segir Hörður.
Ásgeir Karlsson yfir-
maður fíkniefnadeUdar
lögreglunnar segir það
einnig ljóst í sínum huga
p að enginn starfandi lög-
reglumaður í deUdinni
hafi tekið peningana. „Það
er engin ástæða tU að
rannsaka þetta mál
frekar því eng-
inn annar ligg-
ur undir grun,"
segir hann.
Viðurkenndi fyrst, neitaði
svo
Af þessu öUu má ráða að í
huga manna innan lögreglunnar
er sekt HaUs G. Hilmarssonar
ótvíræð. Grunsemdir vöknuðu
um að maðkur væri í mysunni
þegar í ljós kom að hluti dóppen-
inganna var prentaður eftir að
lagt var hald á þá. Hörður Jó-
hannesson segir HaU hafa þá við-
urkennt fyrir sér að hafa tekið
peningana, notað h'tinn hluta
þeirra í eigin þágu en skUað þeim
svo aftur.
„Ég ræddi við hann á þeim
tíma og hann viðurkenndi að
hafa tekið þessa peninga, ég tjáði
yfirmanni mínum það og máfið
er svo á endanum sent ríkissak-
sóknara. En síðan neitar HaEur
öUu,“ segir Hörður Jóhannesson.
Spurning um sönnun
Einn viðmælenda DV úr röð-
um lögreglunnar orðaði það svo
að þetta væri bara spurning um
sönnun. AUur vafi væri í hag sak-
bomings og við því væri lítið að
gera.
„Það þýðir náttúrulega ekki að
deUa við dómarann," segir Geir
Jón Þórisson um lyktir málsins.
„Þeir verða bara að eiga þetta
við sig og sína samvisku," segir
HaUur G. HUmarsson um um-
mæU fyrrverandi félaga sinna hjá
lögreglunni. Verjandi hans, Karl
Sigurbjömsson, segist mjöghissa
á að háttsettir yfirmenn lögregl-
unnar bregðist við á þennan hátt.
„Það er búið að sýkna skjól-
stæðing minn í Hæstarétti en
engu að síður er hann brenni-
merktur sem þjófur," segir Karl
um málið.
andri@dv.is
Ingibjörg Sólrún harmar leka
Helga öflugur liðsmaður
„Helga er öflug kona og mikill
fengur í henni hvar sem er,“ segir
Ingibjörg um Helgu Jónsdóttur,
stuðningsmann sinn í framboðinu
tU formanns Samfylkingarinnar.
Starfsmanni á skrifstofu Samfylk-
ingarinnar var sagt upp eftir að upp-
lýsingar úr kjörskrá láku tU kosn-
ingastjórnar Össurar Skarphéðins-
sonar, mótframbjóðanda Ingibjarg-
ar.
Málið komst upp eftir að Helga
Jónsdöttir, borgarritari og fram-
sóknarkona, fékk SMS um að mæta í
pulsupartí Össurar á sumardaginn
fyrsta. Helga hafði gengið í flokkinn
tU að styðja Ingibjörgu Sólrúnu.
Aðspurð hvort margir skipti um
flokk tU að styðja hana I baráttunni
segir Ingibjörg: „Fólk er að ganga í
Samfylkinguna og sumir segja þá
skUið við aðra flokka. Hvort Helga
muni beita sér í flokksstarfinu verð-
ur hún að svara."
Ingibjörg segir Helgu ekki hafa
verið eina um að fá umrædd
Ingibjörg Sólrún Gfsladóttir Harmar
lekann sem varö tilþess að starfsmanni var
sagt upp.
skilaboð. „Það var fullt af fólki sem
fékk skUaboðin. Margir höfðu skráð
sig í flokkinn gegnum framboðið í
góðri trú um að upplýsingar um þá
færu ekki á flot. Þarna var um trún-
Helga Jónsdóttir borgarritari Ergengin I
Samfytkinguna og styöur Ingibjörgu.
aðarbrest að ræða en það mál er í
höndum skrifstofu Samfylkingar-
innar. Mér finnst miður að þetta
hafi gerst og vona að það hafi ekki
áhrif á kjörsókn.“