Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Blaðsíða 13
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 14. MAÍ2005 13
ÓliJón hættir
sem bæjarstjóri
Óli Jón Gunnarsson,
sem hefur verið bæjarstjóri
í Stykkishólmi í sex, ár hef-
ur nú sagt því starfi lausu
og mun hann hætta 1.
ágúst. Óli Jón segir þetta
hafa komið til af góðu en að
það komi að þeim tíma-
mótum hjá öllum að þurfa
að horfa fram á við og
breyta um starfsvettvang.
Hann segist hafa fengið at-
vinnutilboð sem hann ekki
gat hafnað en vildi ekki gefa
annað upp en það að nýr
starfsvettvangur hans verð-
ur á Akranesi.
Laugardalnum
Þrjár ær hafa nú þegar
borið í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Laugardal.
Söðulkolla reið á vaðið 30.
apríl þegar hún bar tveimur
hrútíömbum. Ekki byrjaði
móðurhluverkið hjá Söðul-
kollu vel því hún afneitaði
öðru lambinu til að byrja
með. Eftir viðeigandi ráð-
stafanir hefur hún tekið
bæði lömbin í sátt. Með-
fylgjandi mynd er hins
vegar af Golsu sem bar líka
tveimur lambhrútum
nokkrum dögum á eftir
Söðulkollu. Sex gimbrar
eiga enn eftir að bera svo
það er ljóst. Það verða því
lítil lömb að leik í fjöl-
skyldugarðinum ff am eftir
öllu sumri.
Ellefu þúsund í
Reykjanesbæ
íbúar í Reykjanesbæ eru
orðnir fleiri en 11 þúsund.
Árni Sigfússon
bæjarstjóri
bauð af því til-
efni fjölskyld-
unni sem kom
bæjarbúum
yfir þessa tölu í heimsókn
til sín á bæjarskrifstofuna
þar sem hann færði þeim
gjafir, meðal annars fjöl-
skyldukort í sund sem gildir
út sumarið. Samkvæmt
skráningu var það fjögurra
manna fjölskylda í Njarð-
víkum sem rauf múrinn
þegar hún flutti í bæinn.
Nú eru íbúarnir hins vegar
orðnir 11.081 talsins eins og
segir á reykjanesbaer.is.
Næqjusamir
þjófar
Innbrot í bíl var tilkynnt til
Lögreglunnar í Reykjavík í
gærmorgun. Reyndist hafa
verið brotist inn í
bíl bílaleigu við
Vatnsmýrarveg.
Að sögn aðal-
varðstjóra lög-
reglunnar hafði
einhver eða ein-
hverjir óprúttnir brotið rúðu í
bílnum. Það eina sem þeir
höfðu á brott með sér var
framhlið af bílageislaspUara,
harla lítill fengur. Innbrotið er
óupplýst en lögregla biður þá
sem urðu varir við grunsam-
legar mannaferðir við Vams-
mýrarveg aðfaranótt fimmtu-
dags að hafa samband.
Guðrún Kristín Erlingsdóttir slær í gegn á götum höfuðborgarinnar á BMW 745i
Sjonvarpsþula með sjónvarp í bílnum
„Við eigum hann saman,“ segir Guðrún Kristín Erlingsdóttir
sjónvarpsþula sem er komin á einn fínasta bíl landsins; BMW
745i. Eiginmaður Guðrúnar er Baldur Steinarsson rafverktaki í
Rafmiðlun ehf. og deila þau hjónin áhuga á fallegum bílum. Þar
sameinast þau og verða eitt:
„Ég hef verið með ólæknandi bfla-
dellu allt frá bamæsku og við höfum
átt marga góða bfla. Þessi er þó sá
besti," segir sjónvarpsþulan sem státar
nú af því að vera eina sjónvarpsþulan í
Evrópu sem er með sjónvarp í bflnum
sínum. „Það er líka nudd í sætunum og
svo er allt leðurklætt. Þetta er frábær
bfll.“ Guðrún og Baldur fluttu bflinn
sjálf inn og spömðu þannig umtals-
verða fjárhæð: „Ég gef ekki upp hvað
bfllinn kostaði en hann kostaði að
sjálfsögðu sitt. Síðast áttum við góðan
Bens og þá fékk Bogi Ágústsson sér
einn Bens líka. Nú verður gaman að sjá
hvort hann fær sér BMW eins og við. Ég
sagði Boga reyndar að hann væri í vit-
lausu starfi ef hann ætlaði að keppa við
mig í bflaeign. Hann ætti að hætta í
þessu fréttastússi og gerast frekar
þula,“ segir Guðrún sem ekur að sjálf-
sögðu um með einkanúmerið GKE;
Guðrún Kristín Erlingsdóttir. Hún er
6,2 sekúndur að komast á hundrað
kflómetra hraða enda með 335 hestöfl
á milli fótanna.
Sjónvarpsþulan og bíllinn
Guðrún er ánægð með BMW-
inn enda er nudd í sætum og
sjónvarp fyrir bílstjórann.
húsgagnaverslun
landsbyggð?'"-
.
Daisbraut 1 - 600 Aki
Léttar veitingar
Allir velkomnir
Opnum laugardaginn 14. maí kl. 11:00
Gaman að skoða
margvislegar
gjafavðrur sem
myndu prýða öll
heimili
Skoðið húsgögn
frá Öndvegi,
Heima, GA
húsgögnum, og
fleirum
Mikið af nýjum
vörum sem
eingöngu eru
fáanlegar á
Akureyri
Skemmtidagskrá
C# songur
Kynnið ykkur
opnunartilboð
sem eingöngu
gilda í maí
Úrval af fallegum
kristal, glösum og
matarstellum.
Vid tærum ykkui HÚSGÖGNtN HEIM
Fri heimseiuling á vöiukmipum yfii
100.00(1 kr. á stór- Akiiroyráisvæðinu.
Dalsbraut 1 - 600 Akureyrí
HUSGOGNIN
HEIM
SimI 4 61 1 15 0 Fnx 4 61 1121
Opið verður frá
kl. 11-16:00
iaugardnginn
14. mai
Mikið úrval af ýmsum
gjafavörum. Myndir,
spegiar, o.fl.