Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Qupperneq 24
24 LAUGARDACUR 14. MAÍ2005
Helgarblað DV
Herratískan
míl í siwuif^
Herratískan vill oft gleymast í umræðunni um sumartískuna. DV heyrði í
nokkrum sérfræðingum í faginu og forvitnaðist um hvernig karlmenn
eiga að klæða sig í sólinni. Greinilegt er að snyrtileg föt eru málið auk
þess sem allir karlmenn verða að geta skipt um ham þegar kvölda tekur.
FRÁ ELVISYFIR í BÍTLANA
„GaHabuxurnar verða náttúrulega vinsælar
sem og pólóbolir í allavega litum," segir Sölvi
Magnússon í versluninni Retro. „Sniðið á
gallabuxunum verður annað hvort þröng eða
mjög laust en það fer mest af því núna. Jakka
fötin verða hins vegar úr þykku kakíe&ii, að-
sniðin og kannski svolítið bítlaleg. Það verð-
ur mikið um hreina liti, dökkir eru ailtaf vin-
sælir en auk þess koma hvítur og beis inn og
jakkarnir verða yfirleitt með tveimur tölum,“
segir Sölvi og bætir við að blazer-jakkarnir
verði einnig vinsæUr áfram. „Blazer-jakkar og
aðrir stakir jakkar við gallabuxur eru málið í
sumar en þeir eru komnir úr nýjum efnum
einnig. Þeir eru ekki lengur bara teinóttir
heldur lika úr bómull og kakíefnum."
Þegar Sölvi er spurður út í skótískuna
segir hann tæmar alltaf að mjókka
og að menn séu farnir að þora að
ganga £ mjórri skóm auk þess sem
gömlu Converse-skórnir séu þvílíkt
að slá í gegn á allan aldur. „Herrat-
ískan er á heildina litið að verða að-
eins snyrtilegri. Það mætti segja að
hún væri meira svona mitt á milli
þess að vera ‘50s og ‘60s heldur en
‘70s og ‘80s eða svona frá Elvis yfir í
Bítlana."
Sölvi I Retro ÞegarSölvi er
spuröur út í skótískuna segir hann
tærnar alltafaö mjókka og að
menn séu farnir aö þora aö
ganga f mjórri skóm auk þess sem
gömlu Converse-skórnir séu þvf-
líkt aö slá I gegn á allan aldur.
SEAN CONNERY-STEMNING
Gunnar Hilmarsson í
GK „Utlir kragar og mjó
bindi veröa einnig vin-
sæl, svona Michael Cane
í Get Carter."
„Við leggjum upp úr því að menn skipti um ham, fari ekki í jakkafötunum sem
þeir voru í í vinnunni á kaffihús um kvöldið," Gunnar Hilmarsson eigandi GK á
Laugaveginum. Gunnar segir karlmannatískuna í sumar því skiptast í tvennt. í fyrsta
lagi séu það jakkafötin og bissnes-hliðin og í öðm lagi fötin sem notuð séu í frítím-
anum og úti á lífinu. „Buxurnar em að þrengjast og verða beinni og það má segja að
jakkafötin séu svolítið ‘60s svo það verður svona Sean Connery-stemning í gangi.
Litíir kragar og mjó bindi verða einnig vinsæl, svona Michael Cane í Get Carter. Lit-
irnir verða þessu hefðbundu, svartur, blár og teinóttur en ljósu litirnir koma líka alltaf inn á sumrin,“ segir
Gunnar. „Hin hliðin er svo að nota jakkafatajakkann við gallabuxumar en gallabuxurnar em annað hvort
þröngar eða baggí. Beinu buxurnar em notaðar með flottum svörtum eða bláum blazer-jökkum. Það sem
. er einnig mjög sterkt hjá okkur er meira „pretty look“, Lacoste-bolirnir hafa til dæmis gengið mjög vel enda
L er tískan að verða snyrtilegri og einfaldari þótt litimir og munstrin verði ennþá inni.“
GÆJALEGIR NÆLONJAKKAR OG STERKIR LITIR
„Við eigum að vera í skyrtumussum í alls konar litum og þægilegu
efni sem andar vel,“ segir Davíð Terrazas í TopShop í Smára-
lind. Davíð segir pólóbolina einnig afar vinsæla og að strákar
eigi ekki að vera feimnir við kvartbuxur, bæði úr gallaefni
og með hermannasniði. „Jakkarnir verða ótrúlega gæjaleg-
ir nælonjakkar sem em eins konar vindjakkar í sterkum
litum. Rauður, grænn og blár em mjög vinsælir í sumar og
strákarnir verða greinilega í sterkari tónum en maður
bjóst við. Ég held að það verði einnig mikil beltatíska
og flugstjórasólgleraugun verða vinsæl sem og
köflóttar skyrtur með kúrekasniði sem eru flottar
innan undir venjulega bómuUarboh," segir Davíð.
„GaUabuxurnar verða frekar þröngar en ná samt yfir
skóna. Þær verða hvorki of snjáðar né of rifnar og
mun snyrtílegri en þær hafa verið. Skórnir verða
bæði íþróttaskór frá Puma og svo vinsælu Converse-skórnir sem em í öUum litum.
Strákamir em líka farnir að stýra svolítið saman Utunum í beltinu og skónum sem
er mjög flott.“
Davlö (Topshop Davlösegir
pólóbolina afar vinsæla og aö
strákar eigi ekki aö vera feimnir viö
kvatbuxur, bæöi úr gallaefni og
meö hermannasniöi.
LITSKRÚÐUGAR
SKYRTUROG BINDI
„Dökku jakkafötín em aUtaf vinsæl en
á sumrin koma litímir inn. Skyrturnar og
bindin verða litskrúðug og það verður
mikið um líf þar," segir Sighvamr Har-
aldsson verslunarstjóri í Herragarðinum
í Kringlunni þegar hann er spurður
hvernig karlmennirnir eigi að klæða sig í
sumar. Sighvatur segir að í hversdags-
klæðnaðinum verði meira um liti og að
tískan þar verði sportíegri. „Það verður
meiri aðgreining í kasjúal og fínni
klæðnaðinum. Sniðin á jakkafötunum
em að þrengjast og tölurnar eru tvær
talsins en í kasjúal famaðnum em gaUa-
buxurnar vinsælar og flestír bolir verða
með lógóum í mismunandi útgáfum auk
þess sem pólóboUrnir em vinsælir svo
það má segja að það verði bjart yfir öUu.
Þó svo að fínni klæðnaðurinn sé að
verða snyrtUegri og sá sportíegri sport-
legri, þá er einnig hægt að blanda þessu
öUu saman og það er tíl dæmis flott að
klæðast jakkafatajakka við gaUabuxurn-
ar,“ segir Sighvatur. Þegar hann er
spurður hvaðan þessi tíska komi segir
hann litatímabiUð vera svipað og það
hafi verið í kringum 1980 en stíUinn sé
ekki sá sami. „Hugmyndafræðin er kom-
in frá því tímabUi en útíitið er allt ann-
að.“