Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Síða 43
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 14. MAl2005 43
Keflvíkingar eru reiðir og sárir út í Guðjón Þórðarson fyrir að ganga í burtu frá því verkefni sem hann
hafði skuldbundið sig til að sinna næstu þrjú árin. Formaður knattspyrnudeildar Keflavikur, Rúnar
Arnarsson, segir þetta gróft samningsbrot af hálfu Guðjóns og að ástæður brotthvarfsins séu algjörlega
úr lausu lofti gripnar.
„Þetta er fráleitt og við vísum þessari yfirlýsingu Guðjóns algjör-
lega til föðurhúsanna. Hann veit það best sjálfur að hann fer
með lygar í öllu því sem hann heldur fram," sagði Rúnar Arnar-
son, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, ómyrkur í máli í
samtali við DV í gær eftir að Guðjón Þórðarson hafði rift samn-
ingi sínum við félagið. Rúnar fer ófögrum orðum um framkomu
Guðjóns og segir hann svikara. „Hann er að brjóta samninginn
gróflega."
Það var Borgar Þór Einarsson, lög-
fræðingur Guðjóns, sem tilkynnti
Rúnari um ákvörðun skjólstæðings
síns. Rúnar segir heimsókn hans á
skrifstofu sína í gærmorgun hafa
komið sér algjörlega i opna skjöldu.
Þess má geta að kvöldið áður hafði
Guðjón stjómað liði Keflavíkur í
æfingaleik á móti sínum gömlu félög-
um í ÍA og lét eins og ekkert hafði í
skorist.
„Eftir þann leik spjölluðum við
saman um vinnu okkar í að styrkja
liðið ogkomandi fslandsmót. Það var
ekkert minnst á samningsrof. Þetta
var það síðasta sem ég átti von á,“
segir Rúnar.
Hugleysingi
Það sem vekur óneitanlega mikla
athygli í allri þessari atburðarás er að
Guðjón kýs að senda lögfræðing sinn
til að sinna skítverkunum. Þegar DV
ræddi við Rúnar seinni partinn í gær
hafði hann ekkert heyrt frá Guðjóni
sjáifum. „Hann hefur ekki haft
manndóm til að hafa samband við
mig sjálfur," segir Rúnar. Spurður um
niðurlagið í fréttatilkynningu Guð-
jóns, þar sem hann kveðst hafa boðið
stjóm knattspymudeildarinnar að-
stoð sína við þjálfun liðsins í upphafi
fslandsmótsins, vera helbera lygi.
„Eins og aift annað í þessari yfir-
lýsingu frá honum. Hann hefur
einmitt ekki boðið okkur aðstoð og
ekki rætt við nokkum stjómarmann
um það þótt hann haldi því fram. öll
hans framkoma í þessu máli lýsir því
best hvemig manneskja hann er.
Hann veit það best sjálfur að hann fer
með rakalausa þvælu.“
Skuldum honum ekki krónu
f samningnum sem Guðjón gerði
við Keflavík þann 16. desember
síðasliðinn er klásúla sem segir að
fari svo að Guðjón vilji fara þá sé
hann bótaskyldur félaginu. Rúnar
Ertu þá farinn? Guðjón
| Þórðarson brostiútí
annað þegar hann yfirgaf
sjónvarpssal Stöðvar 2 f
gærkvöldi þar sem hann
útskýrði sfna hlið mála.
DV-mynd Valli
segir að með ásökunum sínum sé
Guðjón að koma sér hjá því að
greiða þá upphæð. „Við höfum stað-
ið við allt sem samið var um. Allar
greiðslur til hans hafa staðist og við
skuldum Guðjóni Þórðarsyni ekki
krónu."
Rúnar segir að Keflvíkingar hafi
ekki sagt sitt síðasta í þessu máli og
að félagið hafi þegar leitað réttar síns.
„Það er klárt að samningurinn er
þarrnig að hann getur ekki sagt hon-
um upp. En við ætlum ekki að fara á
sama plan og hann með því að dreifa
einhverju skítkasti. Lögfræðingar
ókkar em komnir í málið og það
verður klárað hjá þeim.“
Þegar þú handsalaðir samninginn
við hann í desember, áttirðu ekki von
á því að svona gæti farið?
„Ég óttaðist ekki neitt. Hann skrif-
aði undir þriggja ára samning og ég
treysti því að maðurinn stæði við
gerðan samning. Það ætlar hann
greinilega ekki að gera. Þetta er bara
örvænting manns sem er búinn að
ráða sig erlendis og er að reyna að
koma sér út úr þessu hér.“
Á eftir að sakna þeirra
í samtali við DV í gær sagði
Guðjón Þórðarson að fjárhagslegar
og faglegar vanefndir Keflavíkur, án
þess að vilja útskýra í kjölinn hyerjar
„Öll hans framkoma í
þessu máli lýsir því
best hvernig mann-
eskja hann er. Hann
veitþað bestsjálfur
að hann fer með raka-
lausa þvælu.“
þær væm, hefðu ráðið ákvörðun
sinni.
„Ég hafnaði Stockport County í
haust og tók að mér Keflavík vegna
þess að mér fannst það vera meira
spennandi kostur. Ég var með því að
taka það skref að kveðja England en
málin hér á íslandi hafa þróast öðm-
vísi en ég átti von á. Ég sé mig til-
neyddan til að taka þessa ákvörðun
og nú verð ég að fara að leita mér að
vinnu," sagði Guðjón.
Hann kveðst eiga eftir að sakna
lærisveina sinna hjá Keflavfk. „Ég hef
átt mjög gott samstarf við strákana í
liðinu og ég harma að málin skyldu
þróast með þessum hætti. Ég vona
svo sannarlega að þeim eigi eftir að
ganga sem aiira best."
eirikurst@dv.is, vignir@dv.is
Staðfesting frá lögfræðingi Guðjóns
Keflavík sveik samninginn
Ástæða þess að Guðjón Þórðar-
son sagði upp samningi sínum við
Keflavík vom vanefndir á samningi
af hálfu Keflvíkinga. Er um að ræða
verulegar vanefndir, bæði fjárhags-
legar og faglegar, að því er segir í
fféttatilkynningu sem Guðjón
sendi frá sér í gær.
Guðjón samdi við Keflavík í
byrjun desember en þegar iyrstu
launagreiðslan átti að koma 1. jan-
úar gerðist ekkert. Þau laun fékk
Guðjón ekki fyrr en 75 dögum sfðar,
eða 16. mars. Laun
sem Guðjón átti að
fá næstu mánuði vom heldur ekki
greidd á tilsettum tfma og ssíðan
hefur Guðjón ekki enn fengið
greidd þau laun
sem hann átti
að fá 1. maí.
Þetta staðfesti
lögmaður
Guðjóns,
Borgar Þór
Einarsson, við
DVSportígær.
Lögmaður Guðjóns Borgar
Þór Einarsson sér um mál
Guðjóns Þórðarsonar.
Eru vanefndirnar yfirskyn á því sanna?
Guðjón ræddi við for-
ráðamenn Notts County
DV hefur ömggar heimildir fyrir
því að Guðjón Þórðarson hafi í síð-
ustu viku rætt við forráðamenn enska
knattspymuliðsins Notts County um
að taka við hjá félaginu sem knatt-
spymustjóri liðsins. Hann var þá á
ferð um England að sinna einkaer-
indum en svo virðist sem hann hafi
nýtt ferðina til að kíkja á aðstæður hjá
2. deildar liðinu Notts County. Patrick
Nelson, yfirmaður knattspymumála
hjá Notts County vildi hvoríá játa því
né neita að Guðjón yrði næsti fram-
kvæmdastjóri liðsins né hvort þeir
hefðu rætt við hann í vikunni.
Guðjón neitaði að hafa rætt við
forráðamenn félagsins þegar DV
ræddi við hann skömmu eftir að
hann sendi út yfirlýsingu sína.
„Ég hef ekki sett mig í samband við
þá né hef ég talað við neinn á
Englandi því ég hef lagt allan minn
kraft í að ná í leikmenn til að koma
þangað," sagði Guðjón.
Eftir þetta samtal fékk DV upplýs-
ingar í hendumar sem vom akkúrat
öfugt við það sem Guðjón hafði sagt -
að Guðjón hefði í raun staðið í samn-
ingaviðræðum við Notts County alla
vikuna og að mjög lítið beri á milli
beggja aðila í að komast að sam-
komulagi.
Ekki tókst að bera þessar nýju
upplýsingar undir Guðjón þar sem
ekki var hægt að ná sambandi við
hann seinni part dagsins í gær.
Hafðu hraðann ál BTnet gefur500.000kr.*!
Sendu SMS skeytið
EEZEó númeriðfktif‘lt
Við sendum þér
3 spurningar sem þú
svarar með því að
_semfoSMS skeytið
3Bd númerið
••Sásems varar hraðast 3 spurningum fær SOO.OOOkr*l
• • Allir sem svara 2 rétt gætu fengið aukavinning!
• •10. hver vinnur aukavinning!
Fartölvur • Flugmiðar með lceland Express • Heimabió • Sjónvörp • PS2 tölvur
• Samsung GSM slmar •MPp3 spilarar • DVD spilarar • DVD myndir • Tölvuleikir
• Kippur afCoca Cola og margt fleira.
M 0 li I l I
*Si sem vtnnur 500.000 kr f*r elnn dag tll að kaupa sér vörur I verslunum BT og lceland Express aö andvlröl 500.000 kr. Lelk lýkur 3. Jún( 2005 24.-00 Vlnnlngar veröa afhendir hji BT Smirallnd.
Meö þv( aö taka þitt ertu kominn (SMS klúbb. 99 kr/skeytiö. Ef þaö tekur þlg lengur en 5 mln. aö svara spumlngu þarftu aö byrja lelkinn aftur.