Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Blaðsíða 47
DV Sport LAUGARDAGUR 14. MAÍ2005 47 Malcolm Glazer hefur keypt ráðandi hlut í Manchester United og sér fram á að verða einráður í félaginu. Stuðningsmenn róa lífróður fyrir 125 ára sögu félagsins og framtíð þess og ætla ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. „Sjáið bara hvað kom fyrir Leeds,“ segja stuðningsmennirnir og sjá fram á vonskutíma. Glazer Ætlar sér að einnast allan kldbbinn Fyrir flesta stuðningsmenn Manchester United hefur hið óhugs- anlega gerst. Bandaríski auðkýfingurinn Malcolm Glazer hefur keypt ráðandi eignarhlut í félaginu. Hann klófesti hlut íranna JP McManus og Johns Magnier og er eignarhlutur Glazers er nú 70% og hefur hann lagt fram formlegt yfirtökutilboð í klúbbinn og er sterklega búist við að hann sé hvergi nærri hættur - hann ætli sér að eignast allan klúbbinn með húð og hári. Malcolm Glazer Bandaríski auðkýfina- ^nnsemMarnúeignastmeirXa9 hiutabréfa í Manchester United Fyrst þurfti Glazer að eignast meirihluta hlutabréfanna. Nú þegar það hefur tekist eru tvö skref eftir áður en hann nær 100% hlut. Hann þarf 75% hlutabréfa til að gerast í raun einráður í félag- inu. Með slíkan eignarhlut er honum frjálst að gera hvað sem er - hann getur endur- skrifað lög og reglur félags- ins eftir eigin hentisemi, og þar með skrifað þau lán sem hann tók til að kaupa hlutabréfin á sjálft félagið. Og þetta gremst fylgis- mönnum félagsins mikið. Þeir sjá fyrir sér að allt það veldi sem byggt hefur verið upp á síðustu áratugum verði nú einfaldlega veðsett. Staða félagsins í dag er gífurlega góð, Manchester United er eitt ríkasta íþróttafélag í heimi með glæsileg- an heimavöll, toppaðstöðu og leikmenn í heimsklassa. Með 75% eignarhlut gæti Glazer einnig af- skráð félagið í kauphöll- London og komið þannig í veg frek- ari viðskipti með afgang hlutabréf- anna. Sérfræðingum finnst mjög líklegt að Glazer takist að bæta við sig því sem upp á vantar svo þetta sé mögu- legt. Og ef honum tekst að ná 90% eignarhlut er öðrum hluthöfúm skylt að selja sitt ef Glazer óskar þess. Þeir stuðningsmenn Manchester United sem mótmælt hafa yfirtöku Glazers hafa alla tíð treyst írunum tveimur, að þeir muni ekki leyfa þessari atburðarás að eiga sér stað. En þeir voru falir og hafa nú grætt meira en 70 milljónir punda á sínum viðskiptum. í fyrra stofiiuðu stuðningsmenn Manchester United hluthafafélag í þeim tilgangi að komast yfir sem stærstan eignarhlut í félaginu og sporna við yfirtöku Glazers. Shareholders United eiga nú 17% hlut og reyna nú allt það sem þeir geta til að ná rúm- lega 25% hlut áður en Glazer nær 75%. Oliver Houston, varastjórnarformaður stuðn- ingsmannafélagsins, segir að Glazer sé enginn Roman Abramovich. „Hann mun ekki koma með mikið af eig- in fé til félagsins," segir hann. „Hann er í raun að biðja stuðningsmenn Man- chester United að borga íyrir yfirtöku hans með hækkuðu miðaverði og dýrari vörum. Einn liðsmaður Shar- holders United, blaðamað- „Hjarta og sál Manchester United hafa verið seldídag. Félag- ið hefur að eilífu breyst." urinn Michael Crick sem einnig er ævisagnaritari Sir Alex Ferguson, segir að aðkoma Glazers að klúbbn- um komi fyrst og fremst niður á stuðningsmönnunum. „Honum verður það mikið kappsmál að skapa sem mestan gróða, sérstak- lega þar sem hann þurfti svo mikið lánsfé til að kaupa klúbbinn." Ef hins vegar allt fer á versta veg, sem sumir sérffæðingar segja að sé allt eins líklegt eins og hvað annað í heimi viðskiptanna, blasir svarmæt- ið við. „Sjáið bara hvað kom fyrir Leeds,“ segja stuðningsmennimir. Tommy Docherty, fyrrverandi stjóri Manchester United, var ekki í efa um hvernig komið væri fyrir fé- laginu. „Hjarta og sál Manchester United hafa verið seld í dag. Félagið hefur að eilífu breyst.“ eirikurst@dv.is Hvíl í friðl Stuöningsmenn Manchester United eru svartsýnir á framtíð féiagsins eftir að i Ijós kom að Malcolm Glazer haföi eignast ráðandi hlut. RE Saga málsins: Yfirtaka Malcolms Glazer á Man. United 2003 2004 2005 Fritt inn a Blikaleikina Meistaraflokksráð kvennaliðs Breiðabliks hefur gert tímamóta- samning við Toyota um að kaupa alla heimaleiki liðsins í.. sumar og því mun fyr- 'f yS} irtækið bjóða áhorf- ,> /\ endum á leiki liðs- / ; insíLands- \ ( sjC bankadeild- | i i, inni. Blikar \ 'j emstórhuga . f,B.. fyrir tímabilið : I og í dag fær / . íD liöið til sín / yf JJ : tvo bandaríska; /jt íj \ leikmenn og A j i U voneráein- !(J n umtilviðbót- . Á-—'■) J ar á næstu dögúm. — Stúlkur þessar hafa allar leikið með amerískum háskólaliðum undanfarið. Stúlkurnar heita Tes- ia Kozlowski, Meghan Oglivie og Casey McCluskey, en sú síðast- nefnda er framheiji og hefur leik- ið með undir 21 árs liði Banda- ríkjanna. Stelpurnar em 22 og 23 ára gamlar og hafa aldrei komið tU landsins áður. Enskar koma í heimsókn Enska kvennalandsiiðið í körfubolta kemur í heimsókn hingað tU lands um næstu helgi og leikur þrjá æfingaleiki við ís- lenska A-landsliðið en þjóðirnar em farnar að þekkjast vel því eftir þessa leiki hafa liðin spUa átta leiki á innan við áii. Leikimir verða liður í undirbúningi kvennaliðsins fyrir Smáþjóðaleik- & ana í Andorra sem | • hefjast um næstu már> - . aðamót. ívar hefur ' valið æfingahópinn / og er hann skipaður eftirtöldum leik- ^ mönnum: Alda Leif lónsdóttir, • # SignýHer- mannsdóttir, r,i Þórunn tM Bjarnadóttir - ogStellaRún Kristjánsdóttir úr ÍS, Bima Val- garðsdóttir, Rannveig Randvers- dóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og María Ben Erlingsdóttir úr Keflavflc, Ingibjörg Elva VUbergs- dóttir og Helga Jónasdóttir úr Njarðvík, Kristrún Siguijónsdótt- ir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Helena Sverrisdóttir úr Haukum auk Helgu Þorvaldsdóttur úr KR og Hildar Sigurðardóttur frá Jamtland. Krakkarnir borga ekki Landsbankinn stendur fyrir boðsmiðaleik í tengslum við LandsbankadeUd karla í sumar fyrir krakka 16 ára og yngri, lflct og gert var á sfðasta ári. Krakkar 16 ára og yngri sækja boðsmiða í útibú Landsbankans og skila þeim við inngang á velli í deild- inni. Hver miði fer síðan í pott sem dregið verður úr í lok móts- ins. Landsbankinn býður einnig upp á forsölu aðgöngumiða á leiki í Landsbankadeild karla í útibúum sínum. Miðaverð í forsöluer 1000 krónur (1200 krónur annars) og gUdir viðkom- andi miði á leik að eigin vali í Lands - ^ bankadeUd karla. Fimm manna fjöl- > skylda kemst því t.d. áleikíLands- bankadeUdinni V fyrir einungis \' 2.000 krónur, ef W miðað er við tvo fullorðna og þrjú börn 16 ára og yngri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.