Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2005 Helgarblað DV Sigurinn sem reyndist skálkaskjól Sendiherra Rússlands kom í sjón- varpsfréttir á mánudagskvöldið í til- efni af 60 ára stríðslokum. Sagði að Stalín hefði verið ýmsum kostum gæddur. Um kvöldið var haldið boð í rússneska sendiráðinu - þama var fullt af íslenskum gestum. Sendi- herrann notaði tækifærið tii að út- húða Morgunblaðinu sem í leiðara hafði haldið því fram að rússnesk stjórnvöld þyrftu að gera yfirbót vegna glæpa Sovétríkjanna. Við- staddir heyrðu sendiherrann segja eitthvað á þá leið að það kæmi ekki Rússum við hvað Sovétríkin hefðu gert. Á veggjunum sáu þeir myndir af sendiherranum með körlum á borð við Brésnev og Gromyko. Hin miklu Sovétríki í stríðslok voru milljónir Þjóð- verja á flótta undan sovéska hem- um. Sovétríkin vom sigurvegarar, það var haldin fræg sigurhátíð í Moskvu þar sem gunnfánar þýska hersins vom lagðir að fótum Stalíns. Stalín var orðinn generalissimo; alls staðar vom reist minnismerki um hinn frækna sigur. Það var farið að tala um „hin miklu Sovétrfld". Stah'n notaði sigurinn til að ná stórveldis- markmiðum sínum; Vesturveldin gerðu afdrifarík mistök í Jalta þegar þau gáfu eftir Austur-Evrópu og stóra hluta Mið-Evrópu. Það upp- hófst ljót saga þar sem óvinir Stalíns vom framseldir í hendur hans - þetta þykir skammarlegur blettur á ferh Winstons Churchill. Hann hafði neyðst til að vinna með skrattanum en lét nú undan öllum kröfum hans. Ekki slakað á kúguninni Sovétborgarar trúðu því um stund að slakað yrði á kúgurúnni; þannig myndu þeir uppskera fyrir » fómirnar í stríðinu. En það fór á annan veg. Ofsóknarbrjálæðið geisaði eins og áður. Stalín skildi manna best að kerfi hans myndi ekki standast ef opnað yrði á erlend áhrif eða slakað á klónni. Það hófst sá tími sem kenndur er við Zhadanov; ofsafeng- in herferð gegn „heimsborgurum". Fyrir barðinu urðu listamenn, menntamenn, sovéskir hermenn sem höfðu fengið pata af Ufinu í vestri, fýrrverandi stríðsfangar og ekki síst gyðingar. Undir andlátið var StaUn að skipuleggja brottflutn- ing allra sovéskra gyðinga langt austur í Asíu - það var m.eira að segja byrjað að reisa skálana. íbúatala Gúlagsins náði nýju há- marki - 1953 er talið að 2,8 milljónir fanga hafi verið í þessu kerfi þræla- búða. Harðstjórinn var líka að und- irbúa nýjar hreinsanir í kommún- istaflokknum; undanfarin ár hefur mikið verið ritað um þá kenningu að hann hafi viljað herða flokkinn til að geta hafið nýja heimsstyrjöld - úr- sUtaormstuna sem yrði háð með kjamorkuvopnum. Gömlu félagam- ir vom of linir fýrir það. -i»-V Neistinn sem slokknaði Það er rétt að Uta aðeins á ástand- ið í Sovétríkjunum áður en stríðið braust út - á þeim tíma þegar vinstrimenn horfðu með miklum vonaraugum til þessa draumastað- ar. Það er nefnilega merkilegt að í mörgum frásögnum er stríðinu lýst sem ákveðmrm létti, þrátt fyrir allan hryllinginn og mannfórnirnar. Eftir kúgunina, blekkingarnar, sannleik- ann sem breyttist sífellt, fundu menn loks eitthvað sem hægt var að trúa á, sameinast um. Hjá almenn- ingi og óbreyttum hermönnum var baráttan að sönnu hetjuleg. Þess vegna voru svikin eftir stríðið svo al- gjör. Þjóð sem hafði upplifað Stalín- grad og umsátrið um Leníngrad átti betra skflið. í staðinn tók við enn eitt tímabil kúgunar og niðurlægingar. Það slokknaði einhver neisti. Rússar eru enn að gjalda fyrir það. Blóðvél bolsévismans Nýlega var afstaðið það tímabil sem kennt er við Jésov, foringja •. öryggislögreglunnar, dverginn ill- gjama. Þetta voru stórfelldar of- sóknir sem beindust aðallega gegn Egill Helgason skrifar um hátiðarhöldin vegna 60 ára afmælis stríðsloka. Laugardagskj allar i kommúnistum. Af 1996 flokks- mönnum sem sátu flokksþingið 1934 - „þing sigurvegaranna" - voru aðeins 59 á flokksþinginu 1939. Stærstur hluti hafði verið handtek- inn eða drepinn. Hámark þessa trmabils eru sýndarréttarhöldin 1936-38, þar sem Halldór Laxness var viðstaddur. Margir sem þar féllu voru böðlar sem féllu fyrir hendi böðla; að lokum var talið nauðsyn- legt að drepa höfuðböðulinn, Jésov sjálfan. Hann vissi of mikið og var orðinn ruglaður af blóðvímunni. Það er engin sérstök ástæða til að syrgja þessa menn. Blóðvélin gleypti bolsévikana sjálfa. Hins vegar er ástæða til að sýna meiri ræktarsemi öðrum fórnar- lömbum sovétkommúnismans frá 1917. Það tók bolsévflca ekki nema svona vikutíma að myrða jafnmarga og keisarastjómin hafði látið drepa á mörg hundruð árum. Bolsévíkar til- einkuðu sér töffaralegt fas, gengu í leðurstígvélum og leðurjökkum; það þótti fínt að sýna skeytingarleysið fyrir mannslífum. Lem'n talaði sjálf- ur um blóðugt útrýmingarstríð; nauðsyn þess að mola óvininn mél- inu smærra og mola svo aftur. Að mola óvininn Öllum hömlum var sleppt í borg- arastríðinu og á tíma rauðu ógnar- stjómarinnar. Hungursneyðir gengu yfir þegar búfénaður og korn var gert upptækt hjá bændum. í hungurs- neyðinni 1921 náðu erlendir hjálp- arstarfsmenn að troða sér inn í land- ið. Hungursneyðinni í Úkraínu 1932-33 var að mestu haldið leyndri - þar er talið að hátt í 10 milljónir hafi beðið bana. Sjálfur sagði Stalín viö Churchill að heimsstyrjöldin hefði verið leikur einn miðað við þetta. Ungir flokksmenn vom sendir út á þennan akur - tilgangurinn var að bijóta niður gamla bændasamélag- ið. Menn eins og Krútsjof og Brésnef hlutu þarna eldskírn sína. Á síðustu ámm hafa komið fram heimildir um fjölda uppreisna sem vom bældar niður með ógurlegum blóðsúthell- ingum. Samhliða þessu stækkaði Gúlagið ört; þrælavinnuafl varð beinlínis hluti af efnahagskerfi ríkis- ins. Lögreglan fékk kvóta til að upp- fylla - hún skyldi skaffa svo og svo mikið af fólki inn í kerfið. í þeim til- gangi var refsirammanum breytt; það mátti fangelsa börn alveg niður í 12 ára aldur. Stalín treysti Hitler Griðasáttmála Stalíns við Hitler árið 1939 má ef til vill rekja til diplómatískra afleikja Vesturveld- anna. Það verður að segjast eins og er: þeir höfðu ekkert á móti því að einræðisríkin tortrmdu hvort öðm. Stalín var líka hæstánægður með þennan samning; það er skrítið að Hitler virðist hafa verið einn af fáum mönnum sem hann treysti nokkurn tíma. Hitt er ráðgáta hvernig Stalín neitaði í lengstu lög að horfast í augu við yfirvofandi innrás Þjóðverja. Sovétrfldn notuðu sér griðasátt- málann til hins ítrasta. Þau lögðu undir sig Eystrasaltsríkin og Pólland; sovéskar sveitir vom ekki fýrr komn- ar þangað inn en þær byrjuðu stór- felldar ofsóknir, morð, gripdeildir og brottflutning meintra óvina. Tahð er að hátt í 400 þúsund Pólverjar hafi verið fluttir til Síberíu, Kasakstan og á heimskautasvæðin á þessum tíma. Stah'n var sérstaklega uppsigað við Pólverja eftir ósigurinn í stríði við þá 1920. Morðin í Katynskógi Þetta náði hámarki í fjöldamorð- um á pólskum Uðsforingjum og embættismönnum. í Katynskógi fundust mefra en fjögur þúsund Pólverjar í fjöldagröf - bolsévfkar reyndu að kenna nasistum um. Þetta var aðeins hluti fórnarlamb- anna. í nýlegri bók, Stalin’s Hang- men eftir Donald Rayfield, er dregin upp mynd af Valerí Blokhín, yfir- böðU Lubianka-fangelsisins. Yfirleitt em dráparar sovétkerfisins nafn- lausir, en nú þekkir maður Blokhín; hann notaði svuntu, hjálm og hanska við verk sitt. Það var hann sem stjórnaði drápunum í Katyn. Lfldega em fáir menn í mannkyns- sögunni sem hafa drepið fleiri menn með eigin hendi. Sigurinn sem skálkaskjól Svona var ástatt í ríkinu sem háði hina hetjulegu baráttu gegn Hitler. Hængurinn var sá að sigurinn var notaður sem skálkaskjól. Hann var afbakaður til að breiða yfir iUvirki. Þefr sem voru-sendir til að dæma nasistaböðlana í Nurnberg vom böðlar sjálffr. Kerfisbundið var farið að útbreiða lygar um Sovétrfldn sem boðbera friðar; það var sífeUt verið að halda friðarhátíðir í Ausmr-Evr- ópu - þangað fór margt ungt fólk frá íslandi. Sjálfur Picasso teiknaði frið- ardúfu fyrir Moskvuvaldið. Nýlendur stalínismans Bak við glitti í ófrýnUega ásjónu kommúnismans. í Áustur-Evrópu voru leppar Sovétríkjanna hvar- vetna settir tíl valda, lítUsgUdir menn sem hefðu verið feUdir af staUi und- ir eins ef Sovétrfkjanna hefði ekki notið við. Stalín umgekkst rflcin sem rauði herinn hafði „frelsað" sem ný- lendur sínar. AUs staðar skyldi farið eftir hfrmi stalínísku fyrirmynd. Borgarastéttin var ofsótt og eignir hennar gerðar upptækar, fyrirtæki vom þjóðnýtt, það hófst mikU iðn- væðing á kosmað annarra fram- leiðslugreina, bændur vom reknfr á samyrkjubú. Svo var tekið tíl við of- sóknir gegn gömlum kommúnist- um; það þurfti sífeUt að hreinsa kommúnistaflokkana. Það var að vissu leyti lán þessara rflcja að Stalín skyldi ekki lifa lengm. Möppudýrin sem tóku við af honum höfðu ekki kraft tíl að halda uppi svo háu stigi ofsókna. Þeir sendu samt heri tU Ungveijalands og Tékkó- slóvakíu þegar kerfinu þar var ógn- að. Berlínarmúrinn er tákn þessa tíma; múr mannfyrirUmingar. En tU lengdar gátu þessir spiUtu karlar ekki haldið saman kerfi sem byggði á engu öðm en kúgun; það grotnaði innanfrá. Lygasögur um stríðið Samhliða þessu vom búnar tU aUs kyns lygasögm um stríðið. í Austur-Þýskalandi var það opinber söguskoðun að kommúnistar í Þýskalandi hefðu haldið uppi virkri andspymu gegn stjóm nasista með dyggri aðstoð Sovétrflcjanna. Haldið var uppi sífeUdum áróðri um þetta. Griðasáttmálinn var ekki nefndur á nafh. Gyðingaandúð var enn land- læg í Austur-Evrópu og frekar ýtt undir hana en hitt; samtök fanga úr útrýmingarbúðum nasista vom leyst upp. Víða vom búðir nasista notað- ar tU að geyma óvini verkalýðsstétt- arinnar. Sovétmenn sem frelsarar? En það var ekki alltaf auðvelt að selja hugmyndina um Sovétmenn sem frelsara. 12 miUjónir Þjóðverja hröktust undan þeim frá austurhér- uðum Þýskalands, 2 miUjónir kom- ust ekki lífs af. Sovéskir hermenn stunduðu skipulagðar nauðganir; það var varla sú þýsk kona sem varð á vegi þeirra sem ekki var nauðgað. Síðustu ár er loks farið að fjalla op- inskátt um hörmungarnar sem dundu yfir þýskan almenning í stríðslok. Hefur til dæmis einhver heyrt um flóttamannaskipið Wilhelm Gust- loff? Nei? Samt er þetta kannski mesta sjóslys sögunnar. Skipið varð fyrir rússnesku tundurskeyti í Eystrasalti 31. janúar 1945. Um borð voru 10 þúsund flóttamenn, aðal- lega konur og böm. Aðeins um þús- und lifðu af. Þjóðir settar í gripavagna Þá verður lflca að nefria skipu- lagðar útrýmingarherferðir gegn þjóðum sem Stalín hafði frnugust á, einkum undir því yffrskini að þær hefðu verið auðsveipar Þjóðverjum. Lflct og í Þýskalandi var aUtaf hægt að finna jámbrautarvagna tfl að flytja fólk á fjarlæga staði þar sem dauðinn beið. Þama má nefna Tsétséna, Volgu-Þjóðverja og Kalm- úka, Tartara, Grikki og Armena frá Krímskaga, Tyrki og Kúrda frá Georgíu. Svipaðar þjóðernishreins- anir fóm svo fram í Eystrasaltsríkj- unum eftir stríðið. TUgangurinn var að uppræta þjóðerniskennd. í stað- inn var troðið þangað inn Rússum. Morð sem pólitísk aðferð Lflct og ég skrifaði í grein um dag- inn er kannski ekki svo ýkja mikill munur á kommúnisma og nasisma. Þetta em alræðiskerfi, áþekk hvað varðar hugmyndafræði og aðferðir. Heimspeldngurinn Tsvetan Todor- ov segir að alræðið sé helsta upp- finning tuttugustu aldarinnar. Hitíer og Stalín em tvær hliðar á sama pen- ingi. Kenningamar sem þeir trúðu á mæltu fýrir um útrýmingu þjóðfé- lagshópa sem standa í vegi fyrir út- ópíunni. Þetta er hugmynd um þús- undáraríki þar sem einstaklingurinn skiptir engu máli; aUt er beygt undir hagsmuni þeirra sem geyma í sér sjálfan tUgang mannkynssögunnar - hvort sem það er aríski kynstofninn eða öreigastéttin. Morð em lögmæt aðferð tíl að ná pólitískum mark- miðum. Við minnumst þess að sextíu ár em liðin frá falli nasismans. En við eigum líka að muna að skelfingar- sögunni var ekki lokið í Austur-Evr- ópu. Fyrir marga var þetta upphaf nýs hörmungaskeiðs. Það er ofbjóð- anlegt þegar Vladimir Putín segir að hmn Sovétrflcjanna sé eitt mesta slys tuttugustu aldarinnar. Einræðistil- burðir hans, ritskoðun og leyndar- hyggja em tíl marks um að Pútfri er eitt af möppudýmm Sovétsins og hugsar með hlýhug tíl gömlu dag- anna. Rússar í gömlu biðröðinni Þjóðverjar hafa gert upp við nas- ismann svo mörgum finnst nóg um. Ennþá er að finna í Þjóðverjum ein- hvers konar sjálfsóbeit - þjóðernis- hyggja er nánast óhugsandi í Þýska- landi. Hins vegar er dapurt hvað hefur Ula tekist tU með uppgjör við fortíðina í Rússlandi. Það er eins og menn hími þar enn í gömlu biðröð- inni, samanbitnir á svip, þegjandi í hóp. Kommúnisminn oUi ofboðsleg- um spjöllum á samfélaginu í Rúss- landi. Margar kynslóðir ólust upp í lygi. Annað hvort þögðu menn eða vom sífeUt að fara með tuggur sem þeir trúðu ekki á sjálfir. Siðmenn- ingin var í raun brotin í mola; það tekur langan tfrna að líma hana saman aftur. Homo Sovetícus reyndist vera innantómt afskræmi. En það hjálpar ekki að neita að horfast í augu við fortíðina. Sú leið liggur fremur tíl áframhaldandi sjálfseyðingar en viðreisnar. Með því móti heldur Rússland áfram að vera draugabær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.