Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2005, Qupperneq 54
54 LAUGARDAGUR 14. MAÍ2005
Menning DV
Opnunargleði Listahátíðar er í kvöld og er ekki bara dragtir og ræður. Fjöldi at-
riða er að auki til skemmtunar fyrir þá sem heima sitja við kassann og hina sem
mæta boðnir í Hafnarhúsið. Sjónvarp ríkisins sendir herlegheitin út.
Christoph
Schlingensief:
Verk hans Ani-
matograph
verður sýnt 5, 7
og 9 - rétt eins
og bfóin í gamla
daga
Fimm,sjö og níu
Um helgína verða sýningar á
vegum Listahátíðar og annarra
aðstandenda á verki Christophs
Schlingensief,
Animatograph.
Christoph er
einn athygl-
isverðasti
leikhús-
maður
sinnar
kynslóðarí
Þýskalandi
og á að baki
skrautlegan og
uppreisnarríkan
feril í kvikmynda-
gerð, leikhúsi og
nú í myndlist.
Hugmyndir
hans til grundvall-
ar sýningunni
sem verður í
Hampiðjunni urn
helgina byggja á gamalli tækni:
hreyfimyndin sem var í myndkíkj-
um og á myndstrimlum hreyfan-
leg skóp þá myndblekkingu að
myndin hreyfðist.
Þetta er sama tækni og býr að
baki kvikmyndinni, en Christoph
færir hugmyndina í nýtt sam-
hengi. Hami kastar myndum sem
eru hver og ein kyrrstæö í röð úr
fleiri en eirnú átt á fólk sem er á
hreyfingu.
Af þeim verkum sem í bígerð
eru og sjá má næstu daga er sýn-
ing sein Christoph lofar okkur að
verði sannarlega eitthvað sem
komi á óvart. Verldð sé í uppbygg-
ingu óvenjulegt þótt það sæki
minni sín langt aftur í tímann.
Sýningar verða fimm, sjö og
níu laugardag og sunnudag í Klink
og Bank í Brautarholtinu. Fólk
verður samkvæmt hefð að finna
innganginn.
Meðal þeirra atriða sem verða
flutt við opnun Listahátíðar sem er á
dagskrá Sjónvarpsins á laugardags-
kvöldið er verkefni þeirra Filippíu
Elísdóttur búningahönnuðar og Jó-
hanns Freys Björgvinssonar dansara.
Opnunarhátíð Ustahátíðar er sam-
sett af fjölda liða en útsending hefst
kl. 20.30 annað kvöld. Að afstöðnum
ræðuhöldum listræns stjómanda og
borgarstjóra brestur á með dagskrá:
Mongólskir þulir kyrja, Trabant,
Rússibanar og Steintryggur spila,
Sjón og Einar Már róta f viðstöddum
og fjarstöddum þjóðarmeðlimum og
þá verður flutt verkið: Óðurinn til
sauðkindarinnar - verk þeirra Jó-
hanns og Fiiippíu.
Tákn þjóðarinnar
Adoration of the sheep, eða Óður
til saukindarinnarer hádramatískur
leikhúsgjörningur. f honum er sú
skepna lofsungin sem leitt hefur
þjóðina á tímum mikilla þrenginga
og forðað henni frá sulti og seym
allt frá landnámi, segir í kynningu
þeirra. „Þetta er þakkaróður til
skepnunnar sem hefur fætt okkur
og klætt frá upphafi landnáms,"
segir Filippía. „Þetta er eins konar
píslarganga gegnum gestafjöldann
sem þarna verður í salnum frammi
fyrir alþjóð."
Lamb guðs
Á henni er að heyra að hið forna
tákn fórnardauðans, guðslambið,
sé enn nýtanlegt listamönnum
okkar tíma sem tákn. Filippía segir
verkið vera promenað-verk, það sé
gengið en endi sfðan á tableau -
kyrrmynd, en sú listgrein var mikið
stunduð af forgöngumanni ís-
lenskra sviðslista og myndlista,
Sigurði Guðmundssyni málara, fyr-
ir nær einni og hálfri öld, skammt
undan Hafnarhúsinu - á gamla
Klúbbnum í Austurstræti. Ganga
sem endar í kyrrmynd minnir í
hina fornu kirkjugöngu sem endar í
bæn framan við altaristöfluna og
tekur á sig þá kyrru mynd í þessu
tilviki.
Verk í þróun
Filippía lýsir verkinu sem þró-
unardæmi en hún segir það muni
fara víðar, meðal annars til Helsinki
og þá taka breytingum eftir stað og
stund. Þau Jóhann hafa áður átt í
samstarfi en nýlega sýndu þau Játn-
ingar minnisleysingjans í Klink og
bank. „Við erum að fara til New
York í sumar að opna NY Inter-
national Dance Festival í Dicapo-
óperuhúsinu og í Alvin Ailey theat-
er með Græna verkið," segir Jó-
hann. „Fullt að gerast hjá okkur og
fleiri verkefni í bígerð! Finnland, ís-
lenski dansflokkurinn og Nútíma-
danshátíð næsta haust. Þar ætía ég
að setja upp aftur Játningar minnis-
leysingjans þar sem hætta varð sýn-
ingum í vor."
Leikarar, dans og söngvarar
Sauðkindaóður þeirra er
margra manna verk: Hreyfingar
og sviðsetning eru þeirra Jóhanns
og Filippíu Elísdóttur, tónlist er
eftir Davíð Þór Jónsson, Alfred
Schnittke úr kvikmyndinni Le Bal
og Henry Purcell.
Búninga og sviðsmynd gerir
Filippía en Vytautas Narbutas
leggur til íkona.
Leikmuna- og búningagerð,
förðun, snið og kollur eru fyrir-
ferðarmikill hluti verksins en flytj-
endur verða Guðrún S. Gísladótt-
ir, Ólafur Egill Egilsson, Cameron
Corbett, Steve Lorenz, Hulda
Björk Garðarsdóttir og Þrúður Vil-
hjálmsdóttir.
Það er eins gott að menn hafi
augun opin því verkið er unnið í
samstarfi við íslensku óperuna
sem lagði til starfsaðstöðu,
saumavélar og söngkonu; stutt í
verki af Þjóðleikhúsinu og styrkt
með peningum af Leiklistarráði,
Menningarmálanefnd Reykjavík-
urborgar og Listahátíð í Reykjavík.
.4
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
Siðustu sýningar
HÍBÝLI VINPANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
AUTOBAHN Á LISTAHÁTIP
Leiklestur nýrra þýskra verka Falk Richter og
Theresia Walser
Þri 17/5 kl 17
Marius von Mayenburg og Ingrid Lausund
Mið 18/5 kl 17
Umræður við höfunda á eftir
Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
- S/ðustv sýningar
e. Coline Serreau
Lau 28/5 kl 20
- Siðasta sýnlng
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
í samstarfi við Á þakinu
í dag kl 14 -UPPS.
Su 22/5 kl 14 - UPP&. Lau 4/6 kl 14 UPPS.
Su 5/6 kl 14 - UPPS, Su 12/6 kl 14,
Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14,
Su 26/6 kl 14
Börn 12 ára og yngri fá fritt i
Borgarleikhúsið i fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
ókeypis aðgangur.
TERRORISMI
e. Presnyakov bræður
Fö 20/5 kl 20
Siðustu sýningar
ALVEG BRILLJANT SKILNADUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
I kvöld kl 20 - UPPS, Fi 19/5 kl 20,
Fö 20/5 kl 20 UPPS., Lau 21/5 kl 20,
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - UPPS.
Fö 27/5 kl 20, Fö 28/5 kl 20
RIDIÐ INN
e. önnu Reynolds.
f samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
í kvöld kl 20
- Siðosta sýning
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgar!eikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is * Miðasalan i Borgarleikhúsinu er opin:
1C-I8 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Þýsk grafík á Miðbakkanum
Sjávarmegin í Hafnarhúsi em
íslensk grafík og Grafiksafn ís-
lands til húsa. Félagsskapurinn
rekur þar verkstæði fyrir félags-
menn, lítinn sýningarsal og sölu-
horn með verkum grafíkera. Þessi
starfsemi er ekki hávaðasöm í eðli
sínu, eftir að þrykkið var haflð til
vegs og virðingar á nýjan leik upp
úr sjöunda áratugnum er grafik
orðin fasti í myndlist okkar þótt
verk mættu fara víðar.
I dag opnar í Grafíksafni fs-
lands, sal íslenskrar grafíkur, sýn-
ing níu þýskra myndlistarmanna:
Roswitha J. Pape, Werner Schaub,
Lynn Schoene, Manffed Kastner,
Luitgard Borlinghaus, Elke Wass-
mann, Klaus Staeck, Dik Jungling
og Wemer Richter. öll em þau
þekktir myndlistarmenn og félagar
í galleríinu Fomm For Kunst í
Heidelberg. Sýningin er liður í
samvinnuverkefni miili íslenskrar
grafíkur og Fomm For Kunst.
Verkin á sýninguni em unnin á
pappír og með ýmsum aðferðum,
t.d. pappírsþrykk, offsetþrykk,
æting, tölvugrafík, litógrafiuþrykk.
Verk eftir Luitgaard Borlinghaus
I fréttatilkynningu safnsins
segir: „Það er einkar áhugavert
að fá sýningu sem þessa þar
sem unnið er með og á pappír.
Tímabært er að vekja áhuga
listamanna og allra sem áhuga
hafa á listum á þeim miklu
möguleikum sem pappír býður
upp á í framsetningu á hug-
myndum. Pappír gefur hverjum
listamanni frelsi til persónu-
legrar sköpunar, efnið er ódýrt,
einfalt í notkun og afar heppi-
legt ttí tilrauna. Þessir jákvæðu
þættir leiða til þess að listunn-
endur geta eignast frábær verk
eftir þekkta listamenn á sann-
gjömu verði."
Sýningin verður opnuð kl. 15 í
dag og stendur til 12. júni, opið frá
fimmtudegi tU sunnudags frá 14
tll 18.
K