Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Síða 15
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ2005 15
Lækjarskóli
nafnlaus
Fræðsluráð
Hafnarfjarðar
hefur ákveðið
að efna til
samkeppni um
nafn á hús-
næðið sem áður hýsti Lækjar-
skóla. í dag kalla Hafnfirðingar
húsið einfaldlega Gamla Lækj-
arskóla, en ffæðsluráð sér
ástæðu tii að finna annað og
betra nafn. Húsið hýsir nú
Námsflokka Hafnarfjarðar og
Leikfélag Hafnarfjarðar. Þeir
sem hafa áhuga á að senda inn
tillögur að nafhi verða að gera
það fyrir fyrsta ágúst. DV leggur
auðvitað sitt að mörkum og
leggur til að húsið heiti einfald-
lega Gamli Lækjarskóli.
Fuglar kúka á
hvítabíla
Vísindamenn við háskólann í
Bristol hafa komist að því, eftir
miklar rannsóknir, að fúglar vilja
helst af öllu kúka á hvíta bíla.
Yfir fjörutíu manns tóku þátt í
rannsókninni sem spannaði yfir
tvö þúsund tilvik þar sem fuglar
kúkuðu á bila. Langólíkfegast
var að fuglar kúkuðu á dökkbláa
eða svarta bíla. Ekki er vitað
með vissu af hveiju hvítur litur
er í slíku uppáhaldi fugla. Fugla-
sérfræðingar telja þó að þessi
rannsókn sanni að fuglar skynji
og bregðist við litum.
Sófus Hólm er ósjálfbjarga í hjólastól og fær ekki aðstoð frá Reykjavíkurborg.
Biðin eftir þjónustuíbúð er tvö ár. 326 manns bíða.
Liggur í rúminu 20 tímu
ú solarhring
„Ég hefekkert fyrir stafni á
daginn enda er ég nánast
bjargarlaus um aiia hluti."
Sófus er ellilífeyrisþegi sem er nánast alveg upp á vin sinn kom-
inn vegna fötlunar. Hann er félagslega einangraður og liggur fyr-
ir stóran hluta sólahringsins. Sófus er á biðlista eftir þjónustm-
búð á vegum borgarinnar en þar er tveggja ára bið.
„Ég er búinn að bíða f hálft ár
eftir plássi í hjúkrunarheimili hjá
Reykjavíkurborg, sem þykir ekíd
langur tími," segir Sófus Hólm ellilíf-
eyrisþegi. Sjúkdómur sem hann
greindist með fyrir ári gerir það að
verkum að hann hefur misst mátt í
fótunum og er í hjólastól.
Fær ekki aðstoð við daglega
umhirðu
„Ég var á biðlista hjá félagsbú-
stöðum en gat ekki fengið húsnæði
þar fyrir aðgengi hjólastóla, þá var
ég settur á biðlista fyrir þjónustuí-
búðir." Sófus segist fá staðfestingu
frá Reykjavíkurborg reglulega um að
hann sé í forgangshópi fyrir þjón-
ustuíbúðir, en í bréfinu er hann
samt beðinn um að halda umsókn-
inni við á tólf mánaða fresti. „Ég bý í
litlu herbergi í blokk þar sem ekki er
lyfta en það er mjög erfitt fyrir mig."
Sófus er farinn að fá aðstoð við þrif á
íbúðinni og heimsendan mat, en
hann hafði beðið eftir þessari þjón-
ustu lengi. Hann fær hinsvegar ekki
aðstoð við að baða sig eða við aðra
líkamlega umhirðu.
Kemst ekki hjálparlaust úr
húsi
Sófus kemst ekki út úr húsi hjálp-
arlaust og hefur verið upp á vin sinn
kominn með alla aðstoð. „Einn
morguninn kom ég að Sófusi liggj-
andi á gólfinu þar sem hann hafði
legið bjargarlaus alla nóttina," segir
vinur hans sem hefur l£ka þrifið af
Sófusi fötin í nokkur ár. Vinur Sófus-
ar fer með honum á kaffihús daglega
og þarf fyrst að bera hann niður stig-
ana á íbúðinni hans. Sófus kemur
heim upp úr hádegi á daginn, leggst
þá í rúmið og liggur þar næstu 20
tímana eða fram á næsta morgunn.
„Ég hef ekkert fyrir stafiii á daginn
enda er ég nánast bjargarlaus um
alla hluti," segir Sófus.
Tveggja ára bið eftir
þjónustuíbúð
Lára Björnsdóttir, sviðstjóri vel-
ferðarsviðs, segir bið eftir þjónustu-
íbúðum vera um tvö ár, en alls eru
326 á biðlista. „Fólk kvartar oft
vegna biðlistanna en við biðjum fólk
um að láta í sér heyra ef það er
óánægt." Lára segir að þjónustu-
íbúðir séu að taka við af hjúkrunar-
heimilium, en þar hefur fólk meira
pláss fyrir persónulega muni. „Við
erum líka að auka þjónustuna heim
til fólks, svo það þurfi ekki að flytja
úr eigin húsnæði."
hugrun@dv.is
Sjómenn í kröppum dansi
Milli 300 og 400 sjó-
slys tilkynnt á ári
Siglingastofnun hefur nú gefið út
ársskýrslu fyrir árið 2004. Meðal
hlutverka stofnunarinnar er að taka
til afgreiðslu tillögur rannsóknar-
nefndar sjóslysa til úrbóta í öryggis-
málum á sjó. „Algengustu slysin
verða þegar menn rerma og detta,
erfitt er að koma í veg fyrir þau slys
en það er alltaf verið að reyna," segir
Jón Ingólfsson framkvæmdastjóri
rannsóknarnefndar sjóslysa. Ljóst er
að sfys um borð í skipum eru afar al-
geng en samkvæmt Jóni eru á hverju
ári skráð á milli 300-400 slys hjá
Tryggingastofnun rfldsins og 18
dauðaslys hafa orðið frá árinu 1997.
Á þessu ári hafa alls 84 slys verið
skráð hjá rannsóknamefnd.
Kallar á ríkisstjórnina að fjalla um hjónavígslur
Össurvill aðhommar
fái að giftast í kirkju
Össur Skarphéðinsson alþingis- um hætti var þannig túlkað af okkur
maður ritaði pistil á heimasíðu sem samþykktu þau lög, að
sinni varðandi réttindi sam- IÉKfö|g. samkynhneigðum væri
kynhneigðra og hjónabönd tryggt algert jafnræði á
þeirra. Þar talar hann um ™') aðra. f eldri lögum
hversu langt fsland er Mfrá.1993 semgildaum
komið á eftir hvað varð- jÆjjfc »| hjúskap er hins vegar
ar réttindi samkyn- ÍljWfe’ ÍXi ákvæði um skilyrði
hneigðra, bæði í fyrir hjónavígslu þar
frumættleiðingum og *•» Wmtj sem fortakslaust er
hjúskaparmálum þeirra. ^SSf sagt hjónaband
Hann vill taka á þessum ->jÉ| verði að vera milli karls
málum á næsta þingi og og konu." Að mati Öss-
segir m.a. því til stuðnings
á ossur.hexia.net: „Stjóm-
arskránni var breytt árið
1995 þar sem sett var inn
ákvæði sem með ótvíræð-
Össur Skarphéðinsson
Vill aö samkynhneigðir fái
að njóta sömu réttinda og
gagnkynhneigðir.
urar er þetta málefni
sem þarf að komast að
hjá rfldsstjóm.
Dauðaslys á fiskiskipum 1997-2004
1997 -2
1998 - 7
1999- 2
2000- 1
2001 - 7
2002 - 2 , •
2003 -1 ■&-.
2004-2
Tilkynnt slys til
T ryggingarstofnunar
1997-2004
1997- 406
1998- 378
1999- 381
2000- 361
2001- 348
2002- 413
2003- 379
2004- 309
Slysásjó 18dauða-
slys hafa orðið á slð-
ustu átta árum.
HREÐAVATNSSKÁLA í KVÖLD 1 .JÚLÍ
FÉLÁGSHEIMILINU BOLUNGARVÍK
ANNAÐ KVÖLD 2. JÚLÍ.