Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2005, Side 39
DV Síðast en ekki síst FÖSTUDAGUR 1. JÚU2005 39 Fyrsta íslenska múmían Á ferðalögum mínum um Vest- urlönd nær og Norðurlönd hef ég rekist á marga merkilega hluti, meðal annars ótal bækur um múmíur. Breska þjóðminjasafnið hefur að geyma steinkistur sem notaðar voru til að geyma múmíur af virkilega vönduðu fólki frá því í gamla daga, oft konungum og kon- um þeirra, fólki sem var ofsalega smart og skemmtilegt, svo æðis- lega skemmtilegt að samtíma- menn þess ákváðu í sameiningu að skúpa innan úr þeim bein og hold og allt það drasl, fylla það með æðardún og kanínufjöðrum, smyrja með ólífuolíu og vefja svo með vönduðu sárabindi. Okkur, þessum langskólagengnu, hefur verið sagt að þetta hafi verið gert í trúarlegum tilgangi, til þess að múmíu-manneskjan ætti greiðari leið til himnaríkis eða eitthvað álíka kjánalegt en með árunum átt- ar maður sig á raunverulegum til- gangi sem hlýtur að hafa verið að reyna að halda í múmíu-mann- eskjuna, halda í líkama múmíu- manneskjunnar, í sál múmíu- manneskjunnar og spyma gegn tímanum sem er fyrst og fremst þekktur fyrir einn hlut; að drepa allt og eyðileggja. Áhugahópur um múmísk fræði Ég hef lengi farið í felur með áhuga minn á múmískum fræðum. Árum saman hef ég gert tilraunir með varðveislu gæludýra og ef ekki vill betur til, varðveislu ávaxta. Ég skora á alla þá sem vilja gera múmískar tilraunir að skúpa innan úr sítrónu, fylla hana af æðardúni, smyrja með ólífuolíu og sárabindi. Það er auðveld tilraun og skemmti- leg. (Alls ekki reyna að varðveita banana til að byrja með, það er miklu, miklu erfiðara). Ég hef svo sem aldrei fengið tækifæri til að múmíugera mannlegan líkama, af augljósum ástæðum, en hins vegar gert gríðarlega margar tilraunir á eigin líkama, bæði með æðardún og kanínufjöðrum og ólífuolíu. Einu sinni tókst mér meira að segja að halda nefinu á mér í múmísku ástandi í fimm mánuði. Þetta hef ég gert í felum frá þjóðfélaginu og ef það hefur sést til mín við þessa iðju hef ég neitað öllu og farið í vörn eins og alkóhólisti. „Hvaða vitleysa", hef ég sagt. „Ég er bara með svona þurra húð...“ Þangað til fyrir tveimur árum ... þegar ég gleymdi mér og fór til dyra, smurð- ur eins og múmía. Ég heflengi faríð í fel- ur með áhuga minn á múmískum fræðum. Árum saman hefég gert tilraunir með varðveislu gæludýra og efekki vill betur til, varðveislu ávaxta. Kem út úr múmíu-skápnum Fyrir utan stóð maður frá Sím- anum. Við horfðumst í augu og ég áttaði mig á útliti mínu ... „fokk“, hugsaði ég. „Ég hef líka áhuga á múmískum fræðum", stundi síma- maðurinn upp. Og þá var ísinn brotinn. Ég bauð honum inn í kaffi, hann tengdi mig við internetið og nú erum við fimmtán manna hóp- ur sem hittist einu sinni í viku til þess að ræða múmísk fræði. Við fáum okkur kaffi frá Kaffitári, smyrjum og vefjum, skúpum út og segjum kjaftasögur. Einn úr hópn- um er bóndi og hann hefur nokkrum sinnum verið svo elsku- legur að færa okkur stærri dýr svo sem kýr og kindur til að múmíu- gera og á síðustu árshátíð smurð- um við þrjá reiðhesta og ég verð að segja að ég hef aldrei skemmt mér betur. En við ræðum ekki um hesta. Ég veit ekki hvernig ég kem orðum að þessu. Við ræðum ekki um hesta eða kýr eða kindur, við ræðum ekki um ketti eða hunda, rottur eða fugla, við ræðum ekki um ávexti og hvort það er betra að smyrja ban- ana eða sítrónur. Allar okkar sam- ræður eru um það sem er okkur efst í huga; hvernig við förum að því að fá að múmíugera okkur sjálf. Að smyrja er ástarjátning Nú réttum við þjóðinni útréttar, smurðar hendur okkar og köllum eftir hugmyndum. Aldrei í sögu þessarar litlu þjóðar, svo vitað sé, hefur verið búin til múmía, ekki skúpað út úr einum einasta manni í þeim tilgangi að varðveita hann fyrir komandi kynslóðir og við spyrjum: Er ekki tími til kominn að múmíugera einhvern góðan ein- stakling, frægan eða ófrægan, góð- an eða slæman, listamann, hugs- uð, skörung eða milligreindan meðalmann? Einhvern sem hugsar eins og múmía eða heldur fram hugmyndum sem gætu farið vel saman við þetta verkefni. Er ekki einhver þarna úti sem er beinlínis fæddur til að verða að múmiu og er kannski langt kominn í því ferli nú þegar? Við í áhugahópnum skorum á lesendur að hugsa sig vel um, taka svo upp símtólið og segja upphátt hvern þeir myndu velja til fiess að verða fyrsta múmía okkar slendinga. Lengi lifi hugmyndin um múmíur! morgun Vestfirðingar njóta þeirrar sjaldgæfu lukku í dag að státa af einhverju besta veðri landsins. Og þrátt fyrir nokkurn vind á höfuð- borgarsvæðinu eru Kkurtil að hann hangi þurr. Er um að gera að mæta (Hljóm- skálagarðinn (kvöld þegar fjöldi stórstjarna syngur á Live8. Rokkkóngurinn ^ Bubbi Morthens mætir Æ meðal annarra. Nokkur vindur Nokkur vindur ** Nokkur vindur Kaupmannahöfn 19 Oslo 21 Stokkhólmur 20 Helsinki 21 London 23 París Beríín Frankfurt Madrid Barcelona Alicante Mílanó New York San Francisco Orlando/Flórída Sólarupprás Sólarlag ( Árdegisflóð 1034 i Reykjavík Reykjavík Slðdegisflóö 23.00 0259 24.02 með Símoni Birgissyni • Nylonflokkurinn hélt til Færeyja í síð- ustu viku. Ferðin var vel heppnuð þó óvæntir brestir í ást- arsambandi Ölmu í Nylon og hins h'fs- reynda kærasta hennar Óskar Páls Sveinssonar hafi varpað skugga á gleði stúlknanna. Mun Óskar, sem er 17 árum eldri en Alma, vilja festa sitt ráð og stofna fjöl- skyldu en frægðin er yfirmaður Ölmu sem enn á eftir að upplifa margt á lífs- leiðinni. Segja vinir stúlknanna sambandsslit þó ekki í vændum heldur gangi allir í gegnum erfið tímabil... • SteingrímurNjálssonbýrenná Skúlugötu í Reykjavík. Fyrir um þremur mánuðum var íbúi í blokkinni, eldri maður, hand- tekinn af lögreglunni. Hann hafði fengið sér sæti í rólu fyrir utan blokkina þegar tveir lögreglubilar keyrðu skyndilega upp að honum. Maður- inn, sem heiúr Einar Svanur Einars- son, segir aðfarir lögreglunnar harka- legar. Hann hafi sér ekkert til saka unnið og sé alls ekki líkur Steingrími Njálssyni á neinn hátt... • Leikarinn ungi og kvennaljóm- inn Þorvaldur Davíð Kristjánsson slær ekki slöku við í sumar. Laus og liðugur vinnur hann nú fyrir sjálfan tengdason forsetans, Karl Pétur Jónsson, sem rekur almanna- tengslafyrirtækið Inn- tak. Karl Pétur er eigin- maður Tinnu Ólafs- dóttur sem þykir bera af öðrum stúlk- um enda dóttir sjálfs forseta íslands. Þorvaldur Davíð hefur verið kosinn kynþokka- fyllsti maður lands- ins svo menn kunn- ugir Karli Pétri segja hann þurfa að passa sinnhlut... • Fegurðardrottninginogþáttar- stjórinn Halldóra Rut Bjamadóttir hefur farið mikinn í næturlífi Reykja- víkur síðustu vikur. Aðilar í innsta hring drottningarinnar segja ástæðuna þá að samband hennar við stj ómmálafræðinem- ann Ásgeir Björgvins- son standi hreinlega á brauðfótum. Halldóra Rut býr til dæmis ekki lengur með Ásgeiri held- ur leigir herbergi í miðbænum þar sem auðvitað er stutt á skemmtistaði borgarinnar. Þar er Halldóra enn drottning þó kórónan sé komin á nýtt höfuð... Lífsaugað Þriðjudagskvöld 22-24

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.