Freyr - 01.07.1950, Page 11
FREYR
177
Tungusar, 1 Sibir. Þeir búa til smjör og
veitist þaö verk auðvelt. Þeir láta mjólkina
bara í belg, binda hann á bak einum hrein-
anna í hjörðinni og láta hann trítla með
belginn allan daginn. Að kvöldi er fitan
orðin að smjöri.
★
Um hagnýtingu sauðamjólkur, sem fæðu
fólksins, þarf ekki að fjölyrða; við erum
mörg hér á landi, bæði menn og konur, sem
höfum gætt ásauða — kvíaánna--— eftir
fráfærur og rekið þær á stöðul til mjalta.
Sauðamjólkin er afbragð til smjör- og
skyrgerðar en ýmsum þykir miður gott
bragð að sauðamjólkinni. Sauðaþykkni
þykir þó flestum hnossgæti og veizlumatur
var það samkvæmt Heljarslóðarorrustu
Benedikts Gröndals.
Geitur hafa lítt verið nytjaðar hér á
landi, en þekkjast þó. Um tíma var
nokkuð af geitum í Þingeyjarsýslu og í
nokkrum kauptúnum. í sumum öðrum
fjallalöndum er geitin algengt húsdýr,
nytjuð sem mjólkurframleiðandi, er gefur
ágæta mjólk, að því er snertir næringar-
gildi, en mörgum þykir bragð hennar
miður gott. En það er þó auðvitað vana-
atriði.
Engir þjóðflokkar heimsins munu vera
komnir eins langt í framleiðslu mjólkur,
og hagnýting hennar á ýmsan hátt í fæðu
fólksins, eins og Evrópuþjóðir.
Að þessu stuðla í fyrsta lagi náttúrleg
og góð skilyrði til nautgriparæktar. Þurrk-
ar eru óvíða og sjaldan það miklir, að
gras sviðni og beit þrjóti á sumrum og
vöxtur þeirra jurta, sem hæfastar eru til
nautgripaíóðurs, er góður yfirleitt og fóðurs
fljótaflað á þessum slóðum. Víðlendi hafa
verið ræktuð og á þeim framleitt fóður,
sem fyrst og fremst hentar nautpeningi.
All víða er eftirtekjan það mikil, að hver
hektari ræktaðs lands framfleytir 2 kúm.
Og þegar þar við bætist, að nautpeningur
hefir verið ræktaður svo, að afurðamagn
kúnna hefir tvöfaldazt á hálfri öld, þá eru
um leið sköpuð skilyrði til þess að hag*
nýta meira magn mjólkur og mjólkuraf-
urða í daglegri fæðu fólksins. Enda þótt
fólkinu hafi að sjálfsögðu fjölgað á sama
tíma, þá er sú aukning hvergi nærri í
samræmi við þær framfarir, sem orðið
hafa á sviði mjólkurframleiðslunnar.
Um gildi mjólkurinnar, fyrir mannkynið,
eru næringarefnafræðingar á eitt sáttir,
enda er það svo, þar sem skortur er á mjólk,
að henni er jafnan miðlað handa börnum
og lasburða eða veiku fólki, fyrst og fremst.
Til skamms tíma hefir það skeð á vissum
stöðum í Frakklandi, að læknar hafa skrif-
að lyfseðla handa fólki, sem vísað var með
í lyfjabúðirnar, til þess að fá mjólkina,
sem því var svo nauðsynleg.
Með ræktun nautpeningsins hefir tekizt
að auka mjólkurmagn einstaklinganna ó-
trúlega mikið, svo að hver kýr getur full-
nægt mjólkurþörf margra manna, og þarf
ekki nauðsynlega að senda kálfana út /
skóg til þess að geta fengið dropa handa
þurfalingum, eins og viðgengst í Indlandi.
Ég gat þess í upphafi máls míns, að hér á
landi mun hver kýr fullnægja þörfum —
eða réttara núverandi neyzlumagni 5
manna, og drekkum og borðum við þó mun
meiri mjólk en sumar aðrar þjóðir á svip-
uðu breiddarstigi og við. En sums staðar
fullnægir hver kýr ennþá stærri fjölskyldu
en hér er raun á.
★
Neyzla mjólkur og mjólkurafurða í Dan-
mörku er minni en hér á landi, en þar
er nautgriparækt og afurðamagn einstakra