Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.1950, Side 18

Freyr - 01.07.1950, Side 18
184 FRE YR og ekki síður, er tilefni til að gaumgæfa, hvaða skilyrði landbúnaðurinn, sem at- vinnuvegur, getur búið sér, svo hann sé fær um að bera þær byrðar án þess til kyrkings leiði í lífskjörum eða framsókn- arviðleitni. Um stóreignaskattinn þarf ekki að hafa mörg orð í þessu sambandi, því hann mun ekki ná til margra manna i bændastétt, og tekur því ekki til almennrar rekstrar- afkomu landbúnaðarins. Rýrnun sú á kaupmætti sparifjár, sem af gengislækk- uninni leiðir, kemur að sjálfsögðu víða fram hjá fólki í bændastétt. Tilfinnanleg- ast verða þeir leiknir, sem lagt hafa fyrir fé til nauðsynlegra og óhjákvæmilegra framkvæmda, sem þeim hefir verið varnað að koma á, einmitt vegna þess ástands, sem nú á að lagfæra. Gamalt fólk, sem lagt hefir fyrir fé til elliáranna, er betur sett, nú en áður, að mæta skakkafalli, vegna almannatrygginganna. Og gagnvart kaupmáttarrýrnun sparifjár almennt verður að gæta þess að eigna ekki gengis- lækkuninni þá rýrnun á kaupmætti þess, sem þegar var orðin, til allra innanlands- viðskipta. Að leggja dæmið þannig niður fyrir sér, er sama og að gera ráð fyrri að verðhjöðnunarleiðin hefði verið auðfarin, og spariféð þá, affallalaust, fengið þann kaupmátt aftur, sem það eitt sinn hafði. Slikt var reyndar óhugsandi, en sé, samt sem áður, gert ráð fyrir að til þess hefði getað komið, þá er hætt við að mörgum, og þ. á m. ýmsum bændum, hefði orðið örð- ugt að standa undir þeim skuldum, óaf- dregnum, sem þeir hafa stofnað til. Séu því þessar tvær leiðir, verðhjöðnun og gengis- lækkun, bornar saman eingöngu með tilliti til áhrifa þeirra á sparifé og skuldir, er naumast vafamál, að gengislækkun er bændastéttinni af tvennu til skárri. Mega og allir eldri bændur minnast þess, hversu gengishækkunin 1924 reyndist þeim örðug í skauti um skuldagreiðslur og alla afkomu, en verðhjöðnun hefði, að þessu leyti, sömu áhrif og gengishækkun. ★ Þá er komið að beinum áhrifum gengis- lækkunar á rekstur landbúnaðar. Eins og kunnugt er, má telja, að fyrir allt megin- magn landbúnaðarframleiðslunnar hafi um langt skeið þurft að leita markaðar í landinu sjálfu. Á vörur þær, sem við fram- leiðum, er yfirleitt lagður hár innflutnings- tollur í öllum þeim löndum, sem til mála gæti komið að flytja þær til, og þær hefði annars markað í. Verður það naumast met- ið íslenzkum landbúnaði til ávirðingar, þó hann geti ekki framleitt vörur þeim mun ódýrara en aðrar þjóðir, sem tolli og flutn- ingsgjaldi til þeirra nemur, jafnvel þó ekki væri gert ráð fyrir, að gengisskráning krónunnar rýrði hlut framleiðandans svo mjög sem verið hefir um útflutningsvörur. Verðlag landbúnaðarafurða undanfarið hefir því ekki miðast við verð þeirra og sölumöguleika utanlands, nema að því er tekur til hinna smærri afurðagreina, eins og gæra, ullar o. fl., og á verði þeirra ætti gengislækkunin, eða réttar sagt, hærri verðskráning ísl. krónu, að koma beinlínis fram, og svaraði því mun betur til fram- leiðslukostnaðar, að sínum hluta, en verið hefir. Að sjálfsögðu hækkar söluverð ann- ara landbúnaðarafurða, ef útfluttar væru, jöfnum höndum við gengislækkunina, en vegna harðrar samkeppni frá öðrum þeim löndum, sem t. d. framleiða kjöt og mjólk (eða mjólkurvörur), mun sú hækkun eng- anvegin nægja til að mæta framleiðslu- kostnaðarverði hér, og þá því síðar, að ýmsir útgjaldaliðir þess eiga fyrir sér að hækka, eins og síðar segir. Ei að síður er það nú miklu nær en áður, að útlendur markaður geti orðið eins konar öryggis- ventill fyrir þann hluta aðallandbúnaðar- varanna, sem ekki hefði markað innan- lands á hverjum tíma. Þetta yrði þó að hyggjast á, að verðjöfnun væri gerð milli útflutnings og innanlandsverðs á hverri tegund, án þess ríkisábyrgð kæmi til. Þess vegna mætti útflutningsmagnið ekki ná nema til lítils hluta framleiðslunnar, ef verðmunur er verulegur. Miðað við útflutn- ingsmöguleika á umliðnum árum (án rík- isábyrgðar) er hér þó um allmikla trygg-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.