Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1950, Síða 20

Freyr - 01.07.1950, Síða 20
186 FRE YR verið gerðar með hagsmuni framleiðenda fyrir augum, í bráð eða lengd, mun áþreif- anlegast koma í ljós, er þær falla niður, og halda þarf afurðunum í fullu verði að kaupendum, sem um langt skeið hafa vamst mun lægra verði á þeim. Er næst- um afsakanlegt þó almenningur haldi að það verðlag, sem um er samið af opin- berum, eða hálf-opinberum aðilum, sé „normalt“ verð, og kippi að sér hendinni með kaup á þeim, svo sem við má koma, þegar fulls verðs er af þeim krafist — jafn vel þó kaupgeta sé fyrir hendi. Uggir mig að þær sjónhverfingar, sem bæði kaup- endum og seljendum niðurgreiðsluvaranna hafa verið gerðar í þessu sambandi, verði bændastéttinni afleiðingaríkari og dýrari en flest annað, sem breyta þarf, til að koma viðskiptalífi landsins á réttan kjöl. Þó ekki sé tilfærðar neinar tölur í fram- anrituðu máli, kemur það allljóst fram, sem reyndar mátti segja fyrir, að „gjalda- bálkurinn“ í reikningsuppgerð bændastétt- arinnar við gengislækkunina, muni vera drjúgum hærri en tekjudálkurinn. Aðrar stéttir þjóðfélagsins hafa því vart ástæðu til að ganga með afbrýði í garð bænda- stéttarinnar yfir því, að hún muni engar byrðar á sig taka í sambandi við slíkar ráð- stafanir, enda mun hún aldrei hafa ætlaö sér að skerast þar úr leik, né heldur látið sér til hugar koma að viðskiptaólagið yröi lagfært án nokkurra fórna. ★ Aðalniðurstaðan af þeim hugleiðingum, sem hér hafa verið skráðar, um áhrif gengislækkunar á hag bænda er þá í stuttu máli sú, að brekkan verði mun brattari fyrir þá um stofnkostnað allra fram- kvæmda, einkum vegna útlendra vöru- kaupa til þeirra, — að almennar neyzlu- vörur hækki í verði, og að kaupgjald verkafólks stigi all verulega. Þar á móti muni ekki nást nema takmörkuð verð- hækkun á landbúnaðarafurðum, en vegna bættra verðlagsskilyrða í utanlandssölu, þó ekki muni svara til framleiðslukostn- aðar, verði þó hægt að afstýra vandræðum vegna offramleiðslu í bili á innanlands- markaðinum einum. Þrír fyrstu liðirnir í þessu dæmi, þeir, sem til aukinna erfiðleika horfa fyrir land- búnaðarreksturinn, eru að vissu marki mælanlegir, þegar áhrif gengislækkunar- innar koma nánar fram. Síðast taldi lið- urinn, verðlag landbúnaðarafurða í fram- tíðinni, er sízt mælanlegur, því þar koma löggjafarákvæði ekki fyrst og fremst til greina, heldur hitt, hvort kaupgeta al- mennings í landinu verður slík, að hann geti, svipað og að undanförnu, keypt all- ar þær landbúnaðarvörur, sem selja þarf innanlands, með þeírri verðhækkun frá því, sem nú er, sem svarar til aukins fram- leiðslukostnaðar og niðurgreiðsluupphæð- anna í ófanálag. Bili þetta, er afkoma landbúnaðarins fyrst alvarlega í hættu stödd. Þá duga engir samningar um verð- lag, því engri kaupskyldu verður fram komið á hendur þeim, sem varan er ætluð, enda ekki eftir þeim viðskiptum að slægj- ast, sem kaupendur væru ekki borgunar- menn fyrir. Það var með tilliti til þessarar hættu, sem að því var vikið í upphafi þessa máls, að bændastéttinni væri sú ein leið út úr öngþveitmu hagstæð til langframa, sem minnst skerti kjör og kaupgetur ann- arar fjölmennustu stéttar í landinu, sem hún þarf að hafa aðalviðskipti sín við. Jafnvel þó að sú hætta, sem hér hefir verið vakin athygli á, reyndist ekki tilfinn- anleg, er til kastanna kemur, þarf bænda- stéttin að vera viðbúin því að eiga allmikið óhagstæðara viðskiptajafnvægi að mæta framundan, en hún hefir búið við undan- farið. Það eru byrðarnar, sem á hana leggjast, og valda vissulega kjaraskerð- ingu, nema þannig sé hægt að bregðast við um framleiðsluafköstin, að afkoman verði ekki lakari en áður, þrátt fyrir óhagstæð- ara viðskiptajafnvægi í kaupum og sölum. Er þá ekki fyrst og fremst átt við aukna framleiðslu landbúnaðarins í heild sinni, þó það sé bæði æskilegt og eðlilegt, að sú aukning komi fram, heldur hitt, að fram- leiðsluafköstin eftir hverja vinnustund þeirra, sem við landbúnaðinn starfa, verði meiri, án þess rekstrarkostnaður vaxi að

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.