Freyr - 01.07.1950, Blaðsíða 24
190
FREYR
Gamla lconan lcann að meta ull-
ina-------hún hefir sitthvað unnið
úr ull um œfina.
haustinu, og þolir betur beit framan af
vetri, heldur en þegar hún er ekki rúin
fyrr en fé er tekið á hús.
Bændur góðir! Látið hvorki mig né aðra,
sem flækjast um landið í sumar, sjá „rú-
böggurnar“ meðfram vegunum. Þær bera
vott um ómenningu, sem ykkur er lagt til
lasts, og auk þess er það ykkur beinn skaði.
Ullarverðið verður það hátt í sumar, að
það borgar rúninginn. Munið að rýja í vor!
Ferðalangur.
ORÐSENDING TIL BÆNDA.
Þar sem mjög horfir nú erfiðlega um hverskonar leyfi til kaupa á erlend-
um gjaldeyri viljum við hérmeð mjög eindregið fara þess á leit við alla við-
skiptavini vora að safna saman og senda hingað glös með gummíhettum
undan þeim lyfjum, sem hér eru framleidd, þ. e. lungnapestarbóluefni,
lamöaölóðsóttarbóluefni og lambablóðsóttarserum. Verða greiddar kr. 0.50
fyrir hvert glas.
Vœntum við, að bœndur skilji nauðsyn þessa máls og bregðist því vel við
þessum tilmœlum, ella kann svo að fara að afgreiðsla bóluefnisins verði
erfiðleikum bundin á nœsta ári.
Tilraunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum, Reykjavík.