Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1950, Page 27

Freyr - 01.07.1950, Page 27
FREYR 193 sínar athugasemdir, ef hætta getur stafað af því að féð óhreinkist til muna í slík- um réttum. 3. Fjárflutningar á bilum. Mjög hefir það færst í vöxt á síðari ár- um að sauðfénaður er fluttur á hílum til sláturhúsanna. Þetta er mjög eðlileg ný- breytni, þar sem vegakerfi og bílakostur er fyrir hendi. Margra daga rekstur er lýj- andi, bæði fyrir menn og skepnur, og tíma- frekt fyrir bændur að eyða þannig mörgum dögum frá nauösynlegum heimilisstörfum. Á undanförnum árum hafa þessir flutn- ingar, í mörgum tilfellum, gengið ágætlega, eða þar sem samvizkusamir bílstjórar og hlutaðeigandi bændur hafa lagst á eitt um það að viðhafa nauðsynlegan útbúnað og nærgætni. En aftur á móti hafa þau mis- tök átt sér stað við þessa flutninga, að stór vanvirða er þeim aðilum, sem þar hafa átt hlut að máli. Þeim bílum, sem notaðir eru til fjárflutninga, þarf meðal annars að vera stjórnað af samvizkusömum og öruggum bílstjórum. Aksturinn þarf að vera jafn og viss, og haga þarf seglum eftir vindi gagn- vart misjöfnum vegi. Ofsahraða, rykki og kippi verður að forðast með öllu. Hliðar og gaflar í byrgi bílpallsins verður að vera vel fest og öruggt á allan hátt til þeirra nota, sem hér er átt við. Venjulegum bílpalli skal skipt í minnst fjögur hólf, þannig að fyrst komi grind eftir miðjum endilöngum pall- inum, vel fest í báða gafla, og síðan þver- grind miðsvæðis á hvern pall-helming. Grindum skal vel krækt saman svo engin sláttur á þeim geti átt sér stað á misjöfn- um vegi, á beygjum, hliðarhalla o. þ. h. Séu grindurnar lausar og riðandi geta þær or- sakað meiðsli á fénu, sem svo síðar kemur fram á kjötinu. Á bílpallinn skal skilyrðis- laust dreifa einhverju, t. d. þurru heyrusii, tréspónum eða einhverju slíku, sem hand- bært er og féð á gott með að fóta sig á, en gæta þess vandlega að skipta um þennan undirburð eftir hverja ferð, hafi hann blotnað að ráði. Varast ber að hafa of þröngt um féð, en þó svo að það hafi stuðn- ing hvert af öðru, og nauðsynlegt er að hafa sem jafnast fé að stærð í hverri stíu. Ávallt skal maður standa hjá fénu á bíl- pallinum og gæta að líðan þess meðan á íerðinni stendur, og gera sitt bezta til þess að forða því frá meiðslum á nokkurn hátt. Ýtrustu varúð skal viðhafa þegar féð er látið á bílana eða tekið af þeim, svo það meiðist ekki í þeim meðförum, en einmitt þá vill það oft við brenna að féð sé meira og minna handleikið á óviðunandi hátt. Páll Hermannsson Páll Hermannsson, fyrrverandi alþingis- maður, er fæddur að Þorgerðarstöðum í Suðurdal í Fljótsdalshreppi, 28. apríl 1880. Hann er því nú að byrja áttunda áratug- inn, og stendur þó enn í fylkingarbrjósti í félagsmálum bænda á Austurlandi. Hermann, faðir Páls, var Jónsson, Her- mannssonar frá Firði í Mjóafirði, og er sú ætt alkunn, enda fjöldi merkra manna frá honum kominn. Móðir Páls var fyrri kona Hermanns, Soffía Guðbrandsdóttir, en hennar móðir var Gróa, er komin var af ættlegg Þorsteins Jökuls, sem margir Norð-Mýlingar rekja ættir sínar til. Ekki naut Páll umhyggju og hlýju móð- ur sinnar, því að hún dó sama árið og hann fæddist. En faðir hans giftist aftur, Guð- björgu Jónsdóttur, Hallgrímssonar skálds á Stóra Sandfelli. Föður sinn missti Páll innan við fermingu, og fór þá að vinna fyrir sér sjálfur. í uppvexti naut hann sömu menntunar og þá var títt með börn fyrir fermingu. En þrá til meiri menntun- ar var honum í brjóst borin, og ákvað hann snemma að komast að Möðruvöllum og

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.