Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1950, Page 29

Freyr - 01.07.1950, Page 29
FREYR 195 um, nokkurn kvíðboga fyrir því, a3 við njótum ekki forustu Páls lengi úr þessu. En maður kemur í manns stað, framrás lífsins verður ekki stöðvuð. Manni finnst stundum, að allt sé undir því komið, að þessi eða hinn fái staðið áfram í fylkingar- brjósti og gleyma því þá, að sá er öllu stjórnar, lætur mann koma í manns stað og þróunina halda áfram. Og stöðugt miðar áfram, áfram til meiri andlegs þroska, meira efnalegs sjálfstæðis. Undir forustu Páls hefir miðað vel, en við vitum, að þeg- ar hennar nýtur ekki lengur, verður um það séð, að maður komi í hans stað, og að áfram sækist á brautinni fram eftir leið. Páll Zóphóniasson. Vinnuþörf í fjósinu í skýrslu nr. 68 frá Fóðrunardeild Bún- aöarháskólans á Ás í Noregi, er greint frá athugunum um vinnuþörf í fjósum. Leitast var við að staðfesta hversu lang- an tíma þyrfti til að afgreiða hin ýmsu störf í fjósinu. Tor Honib segir í skýrslunni, að athuganirnar hafi verið þannig fram- kvæmdar, að gera mætti samanburð við það, sem aðrir hafa fundið við hliðstæðar athuganir. Fóru þær fram á vel reknum búum og voru allsstaðar mjaltavélar en fjósin voru sum gömul og önnur ný en að- eins eitt þeirra var talið „nýtízkufjós“. Ár- angurinn var, í stuttu máli sagt, þessi: Mjaltirnar voru tímafrekastar, en til þeirra þurfti 30% af vinnunni í fjósi. Vél- mjöltun og hreytur kröfðu 6 mínútna vinnu á nautgrip á dag, en mismunandi frá tæplega 5 mín. til rúmlega 7 mín. á einstökum býlum. Mjaltavélin var látin vera minnst 3 mínútur og mest 15 á kúnni. Á stöku stað tók of langan tíma að koma mjaltavélunum á spenana og í gang. Að meðaltali tók 1 y2 mínútu að hreyta. Fóðrun og brynning tók tíma, sem nam 25% af fjósverkunum eða rúmlega 5 mín- útur á stórgrip. Mismunur á þessu var mjög mikill eftir starfsskilyrðunum, og auðsætt að afstaða fjóss og fóðurrýmis er þýðing- armikil í því sambandi. Þrifun fjóss og gripa var nokkuð misjöfn en allsstaðar talin viðunandi. Vinna, sem til þess starfa þurfti, var 3 mínútur á stór- grip eða 15—16% af vinnutímanum. Bás- arnir voru verkaðir 4 sinum á dag en gang- ar og stéttir tvisvar, þar sem bezt var gert. Góð áhöld reyndust mikilsverð í því sambandi. Stuttbásar virtust létta þrifun- arstarfið en þetta varð þó ekki staðfest á öllum býlum. Mjólkurráðstöfun og þvottur mjaltavéla varaði 2,4 mínútur að meðaltali á stórgrip en nam 11% af fjósstörfunum. Stytzt krafði þessi vinna 1 mínútu og mest 5 mín- útur á stórgrip. Aðbúnaðurinn olli mestu um þennan mikla mismun. Heitt vatn í mjólkurhúsi og þvottalaug létti þessi störf mjög. Öll fjósstörfin samanlögð tóku að meðaltali 22,5 mínútur á stórgrip daglega en mismunurinn var mikill frá stað til stað- ar eða frá 16,5 upp í 28,9 mínútur á hinum einstöku heimilum. Mjög þýðingarmikið atriði er að stærð áhafnar sé hæfileg, en hún þarf að vera sú, að fjósverkin séu fullkomið starf fyrir mann á meðan þau vara. Á flestum búum, sem tóku þátt í athug- unum, mátti benda á eitt eða annað, sem til bóta skyldi ráða, en í megindráttum þótti sannað, að Norðmenn stæðu því sem næst jafnfætis Svíum og Ameríkumönn- um að því er snerti afköst við fjósverk. ★ Sem leiðarvísir fyrir íslendinga má skoða þessar tölur þannig, að þá eru meðal-af- köst hjá okkur, ef fjósverkin vara daglega: 3% stund er 10 kýr eru í fjósi 51/2 stund er 15 kýr eru í fjósi 71/2 stund er 20 kýr eru í fjósi Að því ber að stefna, að fjósin séu þann- ig gerð, að fjósverkin séu auðunnin og helzt nóg starf fyrir mann, en fyrir 2 menn eða 3 menn annars. Getum við haft ofangreindar tölur til hliðsjónar er við viljum vita hver eru af- köst við hliðstæð störf hér.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.