Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1950, Síða 34

Freyr - 01.07.1950, Síða 34
200 FRE YR þess að framleiða smjör handa okkur ef 15 kg eru borðuð að meðaltali á mann árlega. Meðal-árshœnan í U. S. A. gefur 156—160 egg á ári. Tilsvar- andi tölur annarstaðar eru: 1 Canada 138— 140 egg, í Svíþjóð 150 egg, í Danmörku 140— 150 egg, í Noregi 125 egg, í Englandi 120—130 egg og hér á íslandi er talan áætluð 125—130 egg. Afurðamagnið er nokkuð háð því hvort hænurnar eru gerðar aðeins eins eða tveggja ára, eins og aigengast er vestan hafs, eða 1—3 ára eins og venja er meðal Evrópuþjóða. En hversu lengi ber að nytja þær, er eðlilega háð uppeldiskostnaði, hreysti og afurðamagni á fyrsta ári, en hið síðastnefnda er sérstaklega háð kyngæðum og svo meðferðinni. Athuganir hafa verið gerðar á nokkrum stöðum í Sví- þjóð á því hve mikla mannsvinnu þyrfti til þess að fylla 12 m há Sjöbysiló, 4 m í þvermál. Umrædd vinna var: Sláttur, lestun vagna, heimflutningur og turnfylling með saxblásara. Þrír menn unnu að þessu, tveir vagnar voru hafðir til heimflutnings, slegið var með drátt- arvél og einnig ekið heim með henni. Mokað var á vagnana og af þeim með handafli. Vinnuþörfin var 2 mannsstundir á smálest grænfóðurs. Miðað við 150 smálestir, sem í viðeigandi síló var látið, eða 10 kýrfóður sam- tals, svarar þetta til þess, að vera 2x 150 stund- ir = 300 stundir, en miðað við verkamanna- kaup hér mundi það kosta: 300 x 9.24 = 2.772 krónur. Við þetta bætist vélakostnaðurinn. Stráng landbúnaðarráðherra Svía hefir nýlega skrifað grein í tímaritið ,,Fakta“ þar sem hann gerir grein fyrir mjólkur- og smjörþörf Svía og svo framleiðslu þessara vara. Hann segir m.a.: „Árið 1939 var meðal-kýrnytin 2400 kg á ári, nú mun hún vera um 2800 kg. Ennþá er hægt að auka afurðamagnið að mun, það sýna eftirlitsfélögin. Á þessu tímabili hefir meðalnytin innan þeirra hækkað um nálægt 1000 kg árlega á kú, en í félögunum eru með- limir sem aðeins hafa 450 þúsund kýr. Fram- FREYR — búnaöarblað — gefið út af Eúnaðarfélag) íslands og Stéttarsambandi bænda. Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjargötu 14, Reykjavík. Pósthólf 1023. Sími 3110. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Kristjánsson. Utgáfunefnd: Einar Olafsson, Pálmi Einarsson, Steingrímur Steinþórsson. Verð kr. 25.00 á ári. Gjalddagi fyrir 1. júli. Prentsmiðjan Edda h.f. undan er því auðsæ framleiðsluaukning þótt kúafjöldinn verði óbreyttur". Á svína-tilraunastöðvunum dönsku þarf venjulega 3.5—4.0 fóðureiningar til þess að framleiða 1 kg flesk þegar grísirnir eru aldir til 90 kg þunga. Hjá bændum al- mennt þarf 5—6 fóðureiningar til þessa. Þessi staðreynd liggur til grundvallar því, að bænd- ur ráða nú fóðurráðunauta sér til aðstoðar við svínaræktina í þeim tilgangi að læra að fóðra svínin rétt. Leiðréttingu hefir verið óskað eftir á öðru erindi í kvæð- inu „Afreksmaður — drengur", er birtist í sept- emberblaði Freys í fyrra, en erindið er rétt þannig: Skýrum raka bregður brandi beint að marki sækir fast. Þó að fleiri fyrir standi fá þeir maklegt afturkast. Ægigeislum augun skjóta undan skarpri hetjubrún. Máls þíns skeyti markviss þjóta mörkuð sigurkraftsins rún.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.