Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Blaðsíða 10
1 0 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Þröstur þykir glaðlyndur og
vinur vina sinna. Duglegur
með eindæmum og tilbúinn
að leggja mikið á sig.
Þröstur á það samt til að
taka góðar letitarnir þar
sem honum verður lítið úr
verki. Mætti vera betur
skipulagður.
„Það eina sem mér dett-
uríhug um kosti Þrast-
ar er fullkomið og algert
æðruleysi í víðasta
skilningi þess orðs. Það
er bókstaflega ekkert sem getur
komið honum úrjafnvægi. En
hann drekkur ekki vatn - segir
það vera bragðlaust og til-
gangslaust. Ég held samt hann
hefði gott af þvi."
Pálmi Gestsson, samleikari og félagi.
„Við Þröstur höfum unn-
ið lengi saman, mjög
skemmtilegur karakter,
einn afþessum mönn-
um sem maður er alltaf
glaður og kátur I kringum. Það
vella upp úr honum orðatiltæki
og brandarar sem væru ófyndn-
ir úr mörgum öðrum en ekki
honum. Svo hefég aldrei séð
hann i vondu skapi - hann get-
ur alltaflyft manni upp. En því
miðurfinn ég hann gallalausan
svo það er ekkert hægt að segja
neikvætt um manninn. Maður
ætti kannski að giftast honum.
Manni þætti skrýtið effólk fyndi
honum eitthvað til foráttu."
Björgvln Franz Gíslason, meðleikari i
Þjóðleikhúsinu.
„Mér finnst hann vera
einn afokkar bestu kó-
misku leikurum, hann
hefur frábært vald á lík-
amanum eins og leikar-
ar þurfa að hafa. Rosa-
lega vænn og góður drengur og
frábær I samstarfi. Það er ekkert
slæmt hægt að segja um Þröst
en ég held að hann sé stundum
svo góður við aðra að hann
skilji sjálfan sig eftir. Hann
mættisamt drekka meira vatn."
Edda Heiðrún Backman, leikkona.
Þröstur Leó er fæddur 23. apríl 1961. Hann
hefur leikið í fjölda leikrita og kvikmynda
frá því hann útskrifaðist 1986 og leikur
núna í Koddamanninum í Þjóðleikhúsinu
sem hefur sýningar á morgun.
Árekstraalda
í Eyjum
Fjögur umferðaróhöpp
urðu í Vestmannaeyjum í
síðustu viku, en það þykir
mikið í Eyjum. í einu tilvik-
inu var ekið utan í mann-
lausa bifreið og farið á brott
án þess að tilkynna atvikið.
Lögreglan leitar vitna í því
máli. Þá var bíl stolið við
Herjólfsgötu í bænum á
sunnudaginn. Bflnum var
hins vegar skilað á sama
stað skömmu síðar. Lög-
reglan lítur á málið sem
nytjastuld og áminnir öku-
menn að skilja ekki lykilinn
eftir í bflum sínum og að
læsa þeim, því bflum er líka
stolið í Vestmannaeyjum.
Sambýlisfólkið Árný Eva Davíðsdóttir og Kristinn Finnbogi Kristjánsson á Akur-
eyri urðu fyrir enn einu reiðarslaginu á mánudaginn þegar Hæstiréttur ómerkti
úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra um meiri umgengni þeirra við tvö börn
þeirra sem Barnaverndarnefnd Akureyrar er með sinni gæslu.
Barnaverndarnefnd Akureyrar vann á mánudaginn mál gegn
sambýlisfólkinu Árnýju Evu Davíðsdóttur og Kristni Finnboga
Kristjánssyni í Hæstarétti. Nefndin áfrýjaði úrskurði héraðs-
dóms um rýmri umgengnisrétt við böm þeirra til Hæstaréttar
sem felldi úrskurð héraðsdóms úr gildi.
hana hræðilegt sjokk. „Við erum
búin að bíða eftir þessum úrskurði
og þetta er hræðilegt sjokk. Við
vonuðumst til að fá að halda þess-
um umgengnisrétti sem við vorum
komin með,“ sagði Árný Eva en úr-
skurður héraðsdóms hljóðaði upp
á að þau fengju að hitta son sinn
tvisvar í viku, á miðvikudögum á
milli 13 og 15 og á laugar-
dögum frá kl. 9 til 18
og stúlkuna
þrisvar í viku
tvo tíma í
senn.
Nú fá
„Við erum búin að
bíða eftir þessum
úrskurði og þetta er
hræðilegt sjokk
Sambýlisfólkið Árný Eva Davíðs-
dóttir og Kristinn Finnbogi Krist-
jánsson hafa barist fyrir umgengnis-
rétti við börnin sín tvö við Bamar-
vemdamefnd í allt sumar. Nefndin
tók bömin tvö af Árnýju Evu og
Kristni Finnboga þegar yngra barnið
fæddist í lok maí. Síðan þá hafa þau
aðeins fengið að hitta börnin sín
vikulega, klukkustund í senn undir
eftirliti. Þau fóm fram á rýmri um-
gengnisrétt og fengu hann sam-
kvæmt úrskurði héraðsdóms 5.
ágúst.
Ekki hlutverk dómstóla
Bamaverndamefnd áfrýjaði úr-
skurðinum til Hæstaréttar sem felldi
hann úr gildi á þeirri forsendu að
það væri ekki hlutverk dómstóla að
kveða á um inntak umgengnisréttar
en þeir ættu að úrskurða um það
hvort ákvarðanir barnaverndaryfir-
valda séu byggðar á lögmætum
gmnni. Því var hinn kærði úrskurður
ómerktur og málinu vísað frá hér-
aðsdómi eins og stendur orðrétt í
dómnum sem hæstaréttardómar-
arnir Jón Steinar Gunnlaugs-
son, Guðrún Erlendsdóttir
og Markús Sigurbjörns-
son kváðu upp.
Hræðilegt
sjokk
DV hafði
samband við
Árnýju Evu í
gær og spurði
hana út í úr-
skurð Hæsta-
réttar. Hún
hafði ekki
fengið að sjá
niðurstöð-
una en sagði
Haestiréttur Ómerkti
úrskurð Héraðsdóms
Norðurlands eystra.
þau bara að hitta hvort um sig
klukkutíma á viku undir eftirliti.
Erfitt að halda sönsum
Ámý Eva sagði að það væri erfitt
að halda sönsum eftir hvert áfallið á
fætur öðm. Við reynum að vera sterk
en það er mjög erfitt. Ég hef sótt
styrk í trúna og farið á fúndi hjá
Hvítasunnusöfnuðinum. Það hefur
hjálpað mér."
Kristján Stefánsson, lögfræð-
ingur Ámýjar Evu og Kristins
Finnboga, sagði í samtali
við DV í gær að nú þyrfti
að bretta upp ermarnar.
„Þetta er vond staða í
kerfinu en við mun-
um berjast áí'ram."
osk-
ar@dv.is
Bónusmannræninginn Axel Karl Gíslason vann í Bónus
Alltaf eitthvert vesen á honum"
n
„Ég man ekki hvernig þetta end-
aði,“ segir Helgi Freyr Sveinsson um
hvernig það hafi atvikast að Bónus-
mannræninginn Axel Karl Gíslason
hafi hætt í Bónus í Kjörgarði fyrir um
einu og hálfu ári síðan. „Hvort það var
sameiginleg ákvörðun eða hann hætti
að mæta man ég ekki,“ bætir Helgi við.
Það er óneitanlega kaldhæðni örlag-
anna að frægasta afbrot Axels sé kennt
við fýrirtækið sem hann eitt sinn vann
hjá.
Þegar DV hafði samband við Helga
og spurði hvort hann myndi eftir Axeli
andvarpaði hann. Þá strax varð ljóst
að minningarnar voru ekki góðar.
„Hann var alveg duglegur en það var
bara alltaf eitthvert vesen á honum,"
segir Helgi um þennan fyrrum undir-
mann sinn. „Undir lokin var maður
samt farinn að heyra að hann væri í
vafasömum félagsskap og þetta bara
ijaraði út hjá honum," bætir Helgi við.
Réði Axel Magnús Már Lúðvíksson knatt-
spyrnumaður réði Bónusmannræningjann í
Bónus á slnum tíma.
„Hann var þama þegar ég tók við,"
segir Helgi um hvemig það hafi at-
vikast að Axel hafi byrjað í Bónus. Á
undan Helga var það Magnús Már
Lúðvíksson, knattspyrnumaður úr
Þrótti sem stjórnaði versluninni. Við-
brögð Magnúsar vom þau sömu og
Helga þegar hann var spurður hvort
hann myndi eftir Axeli; hann andvarp-
aði. Þrátt fyrir að Magnús vildi ekki tjá
sig frekar um Axel og störf hans hjá
Bónus gaf andvarpið upp hug hans til
þessa starfsmanns sem hann réði á
sínum tíma. ___
Eins og DV greindi frá í gær er
Axel, þrátt fyrir að vera aðeins
sextán ára gamall, á góðri leið
með að verða einn afkastamesti
glæpamaður landsins. Síðasta
eina og hálfa árið hefur hann
fengið á sig sextán ákæmr,
flestar fyrir innbrot. Sama dag
og Axel og fjórir aðrir numu
starfsmann Bónuss á Sel-
tjarnarnesi á brott hafði
hann losnað úr gæsluvarð-
haldi. Nú dvelur hann á
Litla-Hrauni og fær engin
samskipti að hafa við um-
heiminn nema í gegnum
lögfræðinga.
Vann í Bónus Það er kaidhæðni
örlaganna að Bónusmannræning-
inn hafi eitt sinn unnið I Bónus.
I