Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2005, Síða 40
J J !Ij ii ir \ L/ j Viðtökumvið fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^jnafnleyndar er gætt. *-• q (J(J () SKAFTAHLÍÐ24, WSREYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISSOSOOO 690710 111117 •Frumsýning ís- lensku stórmynd- arinnar Strákamir okkar eftir Róbert Douglas gekk ekki áfallalaust fyrir sig. Hljóðið á myndinni var brenglað og þurfti að fá ný sýn- ingareintök til að bjarga því sem bjargað varð. Nú heyrast þær raddir að fjárhagsvandræði hrjái aðstandendur myndarinnar og að ýmsir þeir sem komu að gerð hennar fái ekki borgað. Barði Jóhannesson, sem samdi tón- listina í mynd- inni ásamt hljómsveitinni Mínus, vill þó ekki kannast við það. Segir alla sátta við sitt þótt hljóðið á frum- sýningunni hefði mátt vera betra... Nú er ég patt! Selma Björns- dóttir Eurovisionfari Aftur? | Davíð Sigurðarson um- boðsmaður Finnst vanta fjölbreyttari og alþýöiegri Eurovisionkeppni. Eurovisiai) fyrir alþýöuna Ohíð iorkeppni á Oauknum Umboðsskrifstofan Gigg.is hefur ákveðið að efna til óháðrar forkeppni fýrir Eurovi- son 2006. Keppnin, sem er ekki bindandi fyrir aðalkeppnina, fer fram á Gauki á Stöng þann 15. október næstkomandi og öllum er frjálst að senda inn lag fyrir 1. október. Dav- íð Sigurðarson, eigandi Gigg.is, segir að með fuilri virðingu fyrir keppendum síðustu ára þá vanti fjölbreyttari og lýðræðislegri keppni. „Ég var mjög ánægður með fyrirkomu- lagið árið 2003 þegar haldin var und- ankeppni hér heima þegar meðal annars Botnleðja sýndi ógleymanlega takta," segir Davíð Sigurðarson, forsvarsmaður keppn- innar og eigandi umboðskrifstofunnar Gigg.is. „Svo var Wig Wam, framlag Norð- manna í síðustu keppni, til fyrirmyndar svo við sjáum að fjölbreyttari tónhst á fyllilega rétt á sér í Eurovision." Davíð ber fulla virðingu fyrir þeim sem hafa tekið þátt fyrir hönd íslands á síðustu árum en finnst tímabært að breyta aðeins til og leyfa þjóðinni að ráða í þetta skipti. Botnleðja Sýndiog sannaði aö Eurovision þarfekki aö fylgja megmstraumnum. „Þetta er allt í góðu gert og við erum ekki að reyna að styggja neinn. Páll Magnússon út- varpsstjóri veit af þessu en meiningin er að leyfa honum að heyra vinningslagið og við vonum svo að hann taki það til greina þegar ákveðið verður hvaða lag fer í aðalkeppn- ina," segir Davíð. Til þess að taka þátt í forkeppninni þarf að skila inn lagi á tölvutæku mp3-formi á heimasíðu gigg.is. „Upptakan þarf ekki að vera góð því við teljum okk- ur hafa innsýn í hvernig lagið á eftir að skila sér á sviði. Það eiga margir tæki til lág- marks hljóðupp- töku eða þekkja einhvem sem get- ur hjálpað tál," segir Davíð sem hvetur alla til að taka þátt, bæði karla og konur, unga sem aldna. Patti langar í íbúð í Reykjavík Söngkonan Patti Smith, sem hélt vel heppnaða tónleika á Nasa við Austurvöll í gærkvöldi, heldur ekki vatni yfir íslandi. Hún segist vilja kaupa sér íbúð í Reykjavík og er byrjuð að leita til þess að geta komið sem fyrst aftur, staldrað við og skrifað bók. Smith hefur verið á tónleikaferðlagi um Evrópu að undan- förnu. Hún er fimmtíu og átta ára gömul og hefur verið kölluð Amma pönk. Síðustu ár hefur hún hresst upp á feril sinn með tónleikahaldi, Patti Smith Vill flytja og skrifa bók á Islandi. nýjum diskum og nýju efni. Patti kom áður til íslands í för með syst- ur sinni þegar hún var í kringum tvítugt. Til- finningagáttirnar virðast því hafa opn- ast þegar hún leit landið aftur augum og nú vill hún flytja. Til að tilfinningin glatað- ist ekki var Smith út- veguð ljósmyndabók- in Lost in Iceland eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Hún heldur utan í dag en þar til hún snýr aftur getur hún dreymin skoðað ljós- myndabókina góðu. Mafían safnar fyrir langveik börn Þetta er sameiginleg hugmynd mín og Matta í Mafíunni," segir Friðrik Örn Jörgensen rekstrarstjóri á sportbarnum Áttunni og á þá við Matthías Karlsson, einn dyggasta stuðningsmann FH. Næstkomandi laugardagskvöld heldur Áttan í sam- vinnu við Hafnarfjaröarmafíuna, eins og stuðningsmenn FH eru kall- aðir, bingó til styrktar langveikum börnum. „Við erum að stíla mest inn á að Mafían mæti," segir Friðrik en bætir því við að vegna eðli staðarins sé tuttugu ára aldurstakmark á bingóið. Vinningamir em ekki af verri endanum og hafa fjölmörg fyr- irtæki styrkt uppátækið með ýmsum gjöfum enda er málefnið gott. Rús- ínan í pylsuendanum er þó án efa þijátíu þúsund króna inneign í fót- boltaferð hjá Úrvali Útsýn. Bingóstjóri verður enginn annar en Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH. „Hann tók þessu bara mjög vel," segir Matthías Mafíumeðlimur um hvernig fyrirliðinn tók þvf að stjórna bingóinu. Bæði Matthías og Friðrik vonast eftir að fleiri leikmenn liðsins láti sjá sig þrátt fyrir að daginn eftir sé leikur á móti Fylki. Bingóið verður eins og áður sagði á laugardagsvköldið og hefst klukk- an níu. Bingóspjaldið kostar fimm hundruð krónur og muni allur ágóðinn renna til| langveikra barna. ITactavi Frægastir Halli og Heiðar úr Botnleðju eru án efa frægustu meðlimir Hafnarfjarðarmafí- unnar og láta vafalaust sjá sig á laugardagskvöldið. IO»4 BER2005 ^DADWAYLA1 VEISLUSTJORÍ: SIGMUNDUR ERNIR RUNARSSON C r f'. KVÖLDVERÐARTONLIST GUNNAR GUNNARSSON FLAUTULEIKARI OG HELGI BRAGASON PÍANÓLEIKARl. 5TEFÁN HILMARSSON SÖNCiVARI BLÚSAR VIÐ UNDIRLEIK DÓRA BRAGA OG GUÐMUNDAR PÉTURSSONAR GÍTARLEIKARA. BORÚARDÆTUR ANDREA GYLFADÓTTIR, ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG BERGLIND BJÖRK JÓNASARDÓTTIR SYNGJA OG SKEMMTA VIÐ UNDIRLEIK EYÞÓRS GUNNARSSONAR. VERDLAUNAAFHENDINC f M ERTÞU KYLFINCUR? LÁTTU ÞÁ ÞESA HÁTÍÐ EKKI FRAMHÁ ÞÉR FARA MATSEÐILL RISTADIR SJÁVARRÉTTIR Á SPJÓTI ME£> CUS CUS OC HUMARSÓSU LAMBAH RYGGVÖÐVI MEÐ CAMEMBERT-GRAPE SÓSU EFTIRRÉTTAFANTASÍAA LACHEF VERÐ FYRIR MAT, SKEMMTUN OC DANSLEIK KR. 5.900 HUOMSVEITIN ISAFOLD LEIKUR FYRIR DANSI Simi 533 1 1 00 - www.broadway.is ;

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.