Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Sveppatínsla Vlða
má sjá fólk tína sveppi.
Þeir vaxa oft I kringum
umferðargötur.
Hann segir / Hún segir
Snarfari
býðurtil
bænastundar
Vegna sjóslyssins í Við-
eyjarsundi um síðustu helgi
hefur félag sportbáta-
manna í Reykja-
vík, Snarfari, fallið
frá fyrirhuguðum
hátíðahöldum
vegna 30 ára af-
mæhs félagsins á
laugardaginn. Þess í stað
verður félögum í Snarfara
og aðstandendum þeirra
sem lentu í sjóslysinu boð-
ið til bænastundar í félags-
heimiUnu á sunndaginn
klukkan 14. Minnst verður
þeirra lámu, Friðriks Ás-
geirs Hermannssonar og
MatthUdar Harðardóttur,
og beðið fyrir heilsu þeirra
sem komust lífs af.
Reiður Stöð-
firðingur
Áttunda október kjósa
íbúar Austurbyggðar, Fá-
skrúðsfjarð-
arhrepps,
Fjarða-
byggðar og
Mjóafjarðar
um hvort
sameina eigi
sveitarfélögin fjögur. Á
næstu dögum er væntan-
legt kynningarefni frá sam-
einingarnefnd sem bæði
verður birt á heimasíðu
Austurbyggðar og borið í
hús. Á vef félagsmálaráðu-
neytisins hefur verið opnað
samskiptatorg þar sem
hægt er að tjá sig um sam-
einingarmálin. Reiður
Stöðfirðingur hefur riðið á
vaðið og segir að réttast
væri að kjósa á forsend-
unni: „Þetta getur ekki
versnað við það."
Guörún Ögmundsdóttir
alþingismaður.
Ofskynjunarsveppir vaxa villtir í íslenskri nátttúru en neysla þeirra getur haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. Á haustin spretta sveppirnir villtir á ís-
landi. Því má sjá fólk við sveppatínslu víða um landið.
Verðbólgu-
draugurinn?
Sigurður Kári Kristjánsson
alþingismaður.
„Menn eiga alltafaö hafa
dhyggjurafverðbólgunni og
fylgjast vel með þróun hennar.
Held hins vegar að ástandið sé
almennt gott. Við þurfum
samt að huga að gengismál-
unum og íþvlsambandi
finnst mér að Seðlabankinn
fari offari I þvi að hækka stýri-
vexti og þurfa að endurskoða
slna stefnu. “
„Það eru allirhræddir við verð-
bólgudrauginn.Ætli það sé
ekki verst ef kjarasamningar
fara upp í loft. Það er mikil-
vægast að þeir haldi og við
þurfum að gera ráðstafanir til
þess. Nú liggur á að standa
vaktina."
Nú er sá árstími þegar eitraðir sveppir spretta villtir úr íslenskri
jörð og sjá má fólk við sveppatínslu jafnt á degi sem nóttu.
Sveppirnir geta orsakað mikla vímu og ofskynjanir auk þess sem
neysla þeirra getur haft í för með sér geðklofa og aðrar langvar-
andi aukaverkanir.
Maður sem ekki vill láta nafns
síns getið, en gengur undir nafrúnu
Sveppagreifinn í undirheimum
Reykjavíkur, á að baki mikla neyslu á
ofskynjunarsveppum en er nú hætt-
ur vegna þess að fólk honum ná-
komið fór illa út úr slfkri neyslu.
„Ég ákvað að hætta eftir að þrír
vinir mínir fóru yfir um og komu ekki
til baka. Ein vinkona mín fær
flashback mjög reglulega þar sem
allt brjálast í kringum hana og hún
missir málið," segir Sveppagreifinn,
sem þekkir vel skuggahliðar sveppa-
neyslunnar. Vinir hans uppskáru al-
varlegan geðklofa eftir neyslu á
sveppum. Hann segir að slík tilfelli
séu mun algengari en fólk haldi.
Eins og geðbilun
„íslensku sveppimir eru mjög
sérstakir. Þeir inrúhalda ekki meska-
lín eins og útlendir sveppir heldur er
í þeim efni sem heitir psilocybin.
Þessir íslensku hafa ekki eins sterk
sjónræn áhrif og erlendu sveppirnir
heldur eru áhrif þeirra meira í lík-
ingu við geðbilun," segir Sveppa-
greifinn sem varar sterklega við
neyslu ofskynjunarsveppa.
Sveppagreifinn vill koma þeim
skilaboðum til fólks að því verði að
líða vel og vera í fullkomnu jafnvægi
áður en það neytir sveppa. Annars
geti farið illa. Hann ráðleggur fólki að
halda sig algerlega frá neyslu þeirra.
Sveppamál fátíð
Daði Kristjánsson, lögfræðingur
hjá ávana- og fikniefnadeild lögregl-
unnar, segir að mál tengd ofskynjun-
arsveppum séu fátíð hér á landi.
„Sveppir eru ekki ólöglegir nema
þeir innihaldi efni eins og meskalín
og psilocybin. Þegar lögreglan leggur
hald á sveppi er fyrst gerð sjónskoð-
un á þeim. Ef sú skoðun vekur gmn-
semdir um innihald ólöglegra efiia
er metið út frá eðli og umfangi máls-
ins hvort sveppurinn er sendur
„Ég ákvað að hætta
eftir að þrír vinir mínir
fóru yfir um og komu
ekkitilbaka"
áfram til frekari rannsóknar," segir
Daði.
Það er Rannsóknastofa Háskóla
íslands í eiturefhafræðum sem sér
um framkvæmd slíkra rannsókna en
þær em mjög kostnaðarsamar og
þarf sakamaðurinn að bera kostnað-
inn. Daði segir að lögreglan þurfi því
að meta út frá eðli og umfangi mála
hvort höfðuð sé máisókn eða ekki.
Erfið mál að meðhöndla
Daði segir að sveppamál geti ver-
ið erfið í rannsókn en þó hafi slíkum
málum verið fylgt eftir og nefnir í því
samhengi mál frá því í fyrra þar sem
sveppir vom sendir til rannsóknar
sem leiddi í ljós innihald ólöglegra
efna. Daði segir að nauðsynlegt sé að
horfa á hvert einstakt mál og alls ekki
sé útilokað að lögreglan fylgi þeim
eftir.
Grunsamlegt athæfi
Daði segir að sumir tíni sveppi í
Ofskynjunarsveppir Vaxa villtir IIslenskri
náttúru.
„Ein vinkona mín fær
flashback mjög reglu-
lega þarsem allt
brjálast í kringum
hana og hún missir
málið."
lögmætum tilgangi meðan aðrir séu í
leit að vímugjafa. Hann segir að
ákveðin atriði geti vakið grunsemdir
lögreglu, til dæmis hvort viðkom-
andi sé þekktur í fikniefnaheiminum
og hvernig hann hegði sér.
svavar@dv.is
Kristín í No Name neitar að svara spurningum vegna milljónagjaldþrots
Á ekkert í Rifka
Kristín Stefánsdóttir í No Name
neitar enn að svara spurningum um
tugmilljóna króna gjaldþrot Cosmic
ehf. Eins og fram kom í blaðinu í gær
situr Óttarr Halldórsson með sárt
ennið eftir viðskipti sín við Kristínu
enda hefur Hæstiréttur úrskurðað
riftun hennar á rúmlega 30 milljóna
króna sölusamningi við Óttarr ólög-
lega.
Kristín rifti samningnum aðeins
fimm mánuðum eftir að hann var
gerður. Hæstiréttur komst að því að
það væri ólögmætt og setti
í kjölfarið lögbann á
sölu annarra en Ótt-
arrs á Nq Name-
snyrtivörum. Nú tæpu ári eftir að
lögbannið var sett hefur verið óskað
eftir gjaldþrotaskiptum í No Name
fyrirtæki Kristínar, Cosmic. Hinar
rúmlega 30 mifijónir sem Óttarr
greiddi fyrir samninginn sem var
ólöglega rift hafa ekki verið endur-
greiddar.
Kristín Stefánsdóttir starfar nú að
þróun snyrtivara sem bera nafnið
Rifka. Eigandi Rifka Cosmetics er
Gestur Pétursson en ekki eiginmað-
ur Kristínar eins og Óttarr
dórsson hélt fram í blaðinu í gær.
Gestur segir Rifka-snyrtivörurnar á
engan hátt tengjast No Name og
Kristín sé aðeins starfsmaður sem
komi að þróun vörumerkisins. Rifka
Cosmetics er til húsa á sama stað og
No Name, við Hjallabrekku 1 í Kópa-
vogi. DV hafði samband við Kristínu
í gær til að bera upp við hana spurn-
ingar um málið en hún sagðist engu
vilja svara og skellti á.
andri@dv.is