Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Blaðsíða 11
XW Fréttir FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 17 Síminn svarar ekki samkeppni „Við hlaupum ekki til við hverja nýja þjónustu sem samkeppnisaðilar veita," segir Eva Magnús- dóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Síminn ætíar sér því ekki að svara sam- keppni frá Hive eða nein- um öðrum á sviði net- símaveitu. Eva segir net- símaþjónustu takmarkaða við að fólk sitji við tölv- una, þannig að gamli, góði landssíminn er ekki sam- bærilegur við þá þjónustu. „Við erum með eitt lægsta verð á símaþjónustu inn- an OECD-landanna svo það er ekki hægt að segja að við séum illa sett hvað það varðar," segir Eva einnig. Tíu árfrá flugslysi í gær voru liðin tíu ár frá því að þrír ungir menn frá Patreksfirði, þeir Finn- ur Björnsson, Kristján Rafn Erlendsson og Svan- ur Þór Jónasson, létust í flugslysi í Glerárdal í Eyja- firði. Af því tilefni hafa foreldrar þeirra lagt 150 þúsund krónur inn á bók í Sparisjóði Patreksfjarðar. Peningana á að nota til að reisa minningarstein um látna í kirkjugarðinum á Patreksfirði. Þeim sem vilja minnast þeirra þriggja og leggja málefn- inu lið er bent á reikning nr. 1118-05-350041 í Sparisjóði Vestfirðinga á Patreksfirði. Afleiðingar pókeræðisins, sem nú ríkir á íslandi, munu koma í ljós eftir um tvö ár. Sú er skoðun Sveinbjarnar Kr. Þorkelssonar ráðgjafa hjá SÁÁ í málefnum spila- fíkla. Nýlegt dæmi er um mann sem tapaði 1,3 milljónum á mánuði í Lengjuna. Sveinbjörn Kr. Þor- kelsson Segirsumar sjoppur hér orðnar eins og veðmálastofurog einn eyddi 1,3 milljónum á einum mánuði. „Eg held að það sé rétt sem fram kom í DV - pókeræði er örugg- lega komið hingað," segir Sveinbjörn Kr. Þorkelsson ráðgafi SÁÁ í málefnum spilafíkla. Pókeræði Texas Hold'em æðið I Bandaríkjunum hefur náð landi á Islandi. Að sögn Sveinbjamar er töluvert um að menn spili upp á peninga á netinu og eru fjölmargir að yfirkeyra sig. Nokkrir hafa leitað sér hjálpar hjá SÁÁ en Sveinbjörn segir dæmi um að menn tapi hundruðum þús- unda vikulega í net-spilamennsku. En vitanlega sé það háð aðstöðu manna til að afla sér fjármuna og lána. Leita í spiiaklúbbana í vikunni greindi DV frá því að pókeræði væri nú á íslandi. Póker- tengdur varningur selst grimmt í sérversluninni Gismó og Gísli Ás- geirsson þýðandi, sem lýsir póker- þáttum sem eru á Sýn, segist frétta af nýjum klúbbi í viku hverri. Er þetta í samræmi við það sem verið hefur undanfarin ár í Bandaríkjun- um. Sveinbjörn var nýverið á ferð í New Orleans ásamt Gísla Stefáns- syni á ráðstefnu um spilafíkn. Var þar meðal annars til umfjöllunar æðið sem er nú í tengslum við Texas Hold’em-pókerafbrigðið. Svein- björn segir rannsóknir leiða í ljós að 1,5 til 3 prósent landsmanna þjáist af spilafíkn. En hlutfallið sé miklum mun hærra í spilaklúbbum þangað sem fíklarnir leita eðli málsins sam- kvæmt. „Þegar við sjáum í sjoppum 1x2, Lengj- una, Lottó, Víkinga- lottó, skafmiða aföll- um stærðum og gerð- um og svo alla spila- kassana á tiltölulega litlu svæði er Ijóst að umfangið er veru- legt." Tekur tíma að þróa sjúkdóminn „Ég er alveg viss um að við mun- um fá að kenna á afleiðingum þessa eftir um tvö til þrjú ár. Það tekur tíma að þróa sjúkdóminn. Þannig var þetta með kassana eftir að þeir vom settir upp. Ég vil eindregið hvetja fólk til að vera vakandi fyrir vítahringnum sem þessu fylgir óhjákvæmilega fyrir þá sem em sjúkir spilafiklar: Að elta tapið og eyða um efiii frarn. Spila í felum. Þá eiga menn að leita sér hjálpar og koma í viðtal. Þeir em margir spilafíklamir sem lenda á göt- unni og sjálfsvíg em mjög algeng meðal spUafflda," segir Sveinbjörn. Þunglyndi og kvíði - skömm - em fylgifiskar spilafíknar og ffldamir em oft seinir að leita sér hjálpar. 1,3 milljónir í Lengjuna Undanfarin þrjú til fjögur ár hef- ur ríkt jafnvægi í meðferðarmálum við spilafíkn. Rúmlega hundrað hafa árlega leitað sér hjálpar hjá SÁÁ. Sveinbjöm segist ekki í aðstöðu til að tjá sig um laganna bókstaf í þess- um efnum; hvort ekki sé tvískinn- ungur í að vera með kassa á öðm hverju götuhorni en banna það sem kallast spilavíti þar sem stunduð eru borðspil á borð við Black Jack og Rúllettu. En vissulega séu ýmsar sjoppur orðnar eins og veðmálastof- ur. Og þar geta menn sannarlega verið með mikla veltu. „Þegar við sjáum 1x2, Lengjuna, Lottó, Víkingalottó, skafmiða af öll- um stærðum og gerðum og svo alla spilakassana á tiltölulega litlu svæði er ljóst að umfangið er vemlegt. Og dæmi er um mann sem kom til okk- ar eftir að hafa eytt 1,3 milljónum í Lengjuna. Á einum mánuði. Og var sá ekki hátekjumaður." jakob@dv.is Heimilislán SPK - þú fœrð betri kjör hjá okkur Hagstæð lán sem þú getur notað til að kaupa eða endurnýja allt sem tengist heimilinu, s.s. sófasett, þvottavél, sjónvarp, parket, ísskáp o.fl • lægri vextir • afsláttur af lántökugjaldi • til allt að 5 ára • altt að 800.000 kr. • enginn auka kostnaður við uppgreiðslu • ekki skilyrði að vera viðskiptavinur SPK Sparisjóður Kópavogs • Hlíðasmára 19, Digranesvegi 10 Sími: 515 1950 • Fax: 515 1909 • www.spk.is • spk@spk.is f/W. nspk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.