Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 MAGASÍN DV
1
Védís Hervör Árnadóttir söngkona hefur víða vakið athygli fyrir góða tónlistargáfu
og fallegt útlit enda mikil smekkmanneskja á föt. Blaðamaður DV Magasíns féll
hreinlega í stafi þegar honum varð litið inn í fataskáp hennar en þar er hægt að
finna fjölda fallegra og sérstakra flíka.
„Ég er ekkert fatafrík en þegar ég kaupi mér
eitthvað vil ég að það sé vandað. Portobello-
markaðurinn í London er því alger paradís fyrir
mér en þar má finna mjög mikið af fallegum
fötum," segir söngkonan Védís Hervör Árnadótt-
ir. Að undanförnu hefur Védís dvalið í Lundúna-
borg þar sem hún vinnur að tónlist sinni en hún
segist þó reyna að komast til íslands eins oft og
hún getur. „Ég er eiginlega búin að átta mig á því
að maður getur alveg búið á báðum stöðum,"
segir Védís og bætir því við ákveðið að þó
London sé skemmtileg borg líti hún alltaf á ís-
land sem aðalheimili sitt.
„Ég er alger flakkari í mér og strangt tii tekið er '
ég Reyknesingur þar sem foreldrar mínir búa
þar," segir Védís en eins og flestir vita er hún dótt-
ir Árna Sigfússonar bæjarstjóra i Reykjanesbæ.
Védís fagnar því breikkun Reykjanesbrautarinnar
og segir breytingarnar hafa gert það að verkum að
það taki enga stund að skjótast á milli. „Þegar
maður er vanur að þurfa að sitja í lestum í einn og
hálfan tíma á hverjum degi finnst manni bara frá-
bært að geta keyrt eitthvað.
Tónlistin hefur alltaf verið líf mitt og yndi en
ég vil sem minnst segja frá því sem ég er að gera,"
segir söngkonan stríðnislega þegar blaðamaður
spyr forvitnislega hvað sé næst á döfinni. Hún
viðurkennir því fúslega að það sé alltaf nóg að
gera hjá sér í London. „London er frábær borg,
lon og don lýsir henni vel, maður getur tekið þátt
í látunum ef maður vill en maður getur líka dreg-
ið sig í hlé þegar maður þarf á því að halda," seg-
ir Védís Hervör að lokum áður en hún drífur sig
út í amstur dagsins.
Védís Hervör Hæfileikarík
fjölskylda með geggjaðan
fatasmekk.
Sérstakt snið í bakið
„Svei mérþá, þennan bol fékk ég
held ég llka á Portobello," segir
Védís og hlær.„Ég hefnotað hann
þegar ég er að syngja enhann
kemur mjög velútá sviði. Bakiö á
honum er llka svo sérstakt. “
Vandaður partíbolur
„Ég var búin að horfa
lengi á hann en lét ekki
verða afþvi að kaupa
hann. Það varsvo systir
min sem keypti hann
handa mérað lokum.
Þessi kemur af Porto-
bello og ersvakalega
vandaöur, eins og gamli
kjóllinn.“
«Ekta sviðsdress
[ „Þetta dress er úr silki. Ég notaði
I það á Dfvu-tónleikum ein jóiin
! en hann hentar mjög vel þegar
'maður er að tjá sig á sviði.
Hann keypti ég á Portobello
eins og svo margt annað. “
Kjóll með sál
„Þennan keypti ég á Portobello-markaðnum í
London en þar hefég keypt ófáar flikur. Ég hef
aldrei farið íhann, mér finnst hann bara svo
fallegur og með mikla sál enda sagði konan
sem seldi mér hann að djasssöngkona sem nú
er dáin hefði átt hann. Ég tími ekki einu sinni
að breyta honum þó sniðið fari mér ekki."
Kjóll sem faðmar líkamann
„Þennan kjól keypti ég i út-
skriftarferðinni minni á Mal-
aga og hefnotað hann rosa-
lega mikið sfðan,“segir Védis
og bætir við að inni ihonumsé
undirkjóll þannig hann faðmi
linurnar á þeim sem i honum
gengur en það er svo sannar-
lega kostur efmaður er jafn
vel afguði gerðurog Védís er.
„Ég var ekki viss um að ég ætti
að kaupa hann en vinkonur
minar hvöttu mig til þess og
þær höfðu rétt fyrir sér, “segir
söngkonan kankvíslega.
Marilyn Monroe-kjóllinn
Þennan kjól kallar Védís Mari-
lyn Monroe-kjótinn og greini-
legt er að hann ber það nafn
með rentu. Hún segir hann
gera mikið fyrir barminn en
það erauðvitað mikill kostur
við hverja flík. Við hann segist
hún svo nota ermar sem hún
fékk frá hönnuði á Portobello
en hann kallar meki sitt Orpan.
Uppáhaldsliturinn blár
„Blár er uppáhaldsliturinn
minn og ég varð ástfangin af
þessum bolþegarég sá hann.
Sniðið á honum er samt mjög
einkennilegt en það má taka
hann saman með belti,“segir
Védfs sem segist sérlega hrifin
af fuglunum sem hann prýða.
! Sérsniðin frá Asíu
'•„Systir mín lét sérsníða þennan
\jakka handa mér í Asiu, efnið inn í
| honum ermjög fallegt," segir Vé-
; dis og útskýrir að það sé hægt að
! bretta upp á kragann og ermarn-
ar til að fóðrið njóti sín.„Mér þykir
mjög vænt um þessa flík enda er
systirmín mérmjög kær.“
MAGASÍN TÓK SAMAN NOKKRA DRYKKI SEM
ERU TILVALDIR Á KÖLDUM HAUSTKVÖLDUM
Bloody Mary
Innihald:
6 sl af vodka
3-4 dropar af tab-
asco-sósu
3-4 dropar af
worchestersire-sósu
Fyllt upp með
tómatsafa
Smá salt, smá pipar
Klakar
Skreytt með sellerístöngli.
Sex on the Beach
Innihald:
3 clafvodka
3 cl af eplalíkjör
örlítið af grena-
dine
Klakar
Fyllt upp með
appelsínusafa.
Mjög bragð-
góður drykkur.
Vodka
Martini
Innihald:
5 cl af vodka
1,5 cl af Extra
Dry Martini
Klakar (síaðir
frá)
Græn ólífa.
Þetta er það
sem James
Bond drekkur.
Abstrakt
Innihald:
4 cl af vodka
3 cl af kirsju-
berjalíkjör
Klald
Fyllt upp með
appelsínusafa
Ljótur á litinn
en rennur
mjúklega niður.
Black Russian
Innihald:
3 cl af vodka
3 cl af kahlúa
kaffilíkjör
Klaki
Sterkari en
sá hvíti,
mildur samt
sem áður.
Fyrir þá sem þora.