Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Side 31
I>V Fréttir
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 31
Úr bloggheimum
Jarlaskáldið
„Jarlaskáldið dró í dilka
um helgina, og staðfesti
með þvíþað álit sitt að
teitun væri að heimskari
skepnu en sauðkindinni.
En assgoti bragðast hún
samt vei!"
Arnór Hauksson
- arnor.blogspot.com
Sá eini
„ Var að glugga á vefsíðu hagstofunnar
áðan og komst að þeirri skemmtiiegu
staðreynd að ég er eini einstaklingurinn
á Islandi sem ber nafnið Annas sem I.
eiginnafn, slðan eru 4 sem bera það sem
2. eiginnafn. Þannig er mál með vexti
að frændi minn ákvað nýverið að breyta
nafninu sínu í Kára, þannig að nú sit ég
einn eftir með þetta skemmtilega nafn,
hehe, frekar fyndið..."
Annas Sigmundsson
- blog.central.is/anni
Elsku mamma
„Meira um Sinalco. Eitt
sinn var verið að aug-
lýsa það í Sjónvarpinu
og lauk með orðunum:
Ávaxtadrykkurinn vinsæli.
Þá sagði mamma: Þeir ættu
að segja sykurleðjan vinsæla. Mamma
var (og er) ein afþessum fyndnu
mömmum sem eru hálfu algengari i al-
vörunni en i sjónvarpsþáttum."
Ármann Jakobsson
- skrubaf.blogspot.com
Tennurnar hennar ömmu
„Grey amma þurfti skiija
tennurnar sínar eftir hjá
tannsmiðnum í heilan
klukkutíma, hún varal-
veg frá! Þegar hún
heyrði hún yrði vera
tannlaust í heilan klukku-
tíma þá var hún eiginlega hætt við
ennnnn ég gat talið hana á að láta laga
þærmeð hjálp frá tannsmiðnum. Enda
gekkþetta ekki lengurein tönninn laus
og ein framtönn brotini... Hélt að þetta
myndi kosta morðfár en kostaði svo
bara fimmþúsundkalli. sem mér finnst
ekki svo mikið miðað við það var skipt
um brotnu tönnina, sú lausa festog
báðirgómarniryfirfarnir. Núna getur
hún brosað colgate brosi En já nóg um
tennurnar hennar ömmu hehe."
Berglind
- blog.central.is/nemesis
Pilsið hennar Marilyn fauk upp
Á þessum degi árið 1954 var tekið
upp frægasta kvikmyndaatriði Mari-
lyn Monroe. Marilyn stóð hlæjandi á
meðan vindhviða blés pilsinu henn-
ar upp, mynd sem allir kannast við.
Atriðið var hluti af kvikmyndinni
The Seven Year Itch og fór mjög fyr-
ir bijóstið á eiginmanni Marilyn,
hafnaboltahetjunni Joe DiMaggio,
sem fannst atriðið sýna of mikið.
Þau skildu áður en myndin var
frumsýnd.
Eftir skilnaðinn við hafnabolta-
hetjuna reyndi Marilyn að komast
yfir alvarlegri hlutverk, en fram að
þessum tíma hafði
hún að mestu leikið
hlutverk „heimsku
ijóskunnar". Hún
flúði Hollywood til að
fara í leiklistarskóla í
New York. Árið 1955
landaði hún hlutverki
í kvikmyndinni Bus
Stop þar sem hún
þótti sýna góða
frammistöðu. Ári síð-
ar giftist hún leikrita-
skáldinu Arthur Mill-
er. Síðasta kvikmynd-
Úbbs! Eitt frægasta
atriði Marilyn Monroe.
Það fór fyrir brjóstið á
Joe DiMaggio og þau
skildu stuttu síðar.
in sem hún lék í var
einmitt The Misfits
sem Miller skrifaði
sérstaklega fyrir hana
og var frumsýnd árið
1961. Skemmst er frá
því að segja að mynd-
in floppaði. Marilyn
og Miller skildu viku
fyrir frumsýninguna.
Marilyn gerði þó
tilraun til að leika í
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Hjálmlaus Lesandi
hefur áhyggjuraf
hjólabrettastrákunurr
á Ingólfstorgi því þeir
eru fæstir með hjálm.
snvRtv
)’ v ■ & 1 ' W —* 1 •
•• W
Eldrí borgarí bríngdi:
Ég er alveg gáttaður á þessum
piltum sem eru alltaf að sýna listir
sínar á hjólabrettum niðri á Ingólfs-
torgi. Ekki það að mér finnist það
leiðinlegt eða að ég hafi eitthvað á
Lesendur
móti þessum piltum. Ég tala nú
stundum við þá og gef þeim nammi
og finnst þeir vera vænsm grey. Það
sem mér finnst verst er að enginn
þeirra er með hjálm eða aðrar hlífar
til að vemda líkamann ef þeir skyldu
nú detta illa. Þegar ég sit og horfi á
þá fæ ég stundum fyrir hjartað því
þessar kúnstir allar sem þeir em að
gera held ég að séu beinlínis stór-
hættulegar. Þeir hoppa upp og nið-
ur, til og frá. Ég er svo logandi
hræddur um að einn daginn muni
einn þeirra detta illa á höfuðið og
stórslasa sig. í staðinn fyrir hjálminn
em þeir flestir með húfu sem vernd-
ar þá ekki neitt. Ég hugsa að ég gæti
notið þess betur að horfa á þá ef þeir
væm nú með réttan hlífðarbúnað.
Ég vil því hvetja foreldra piltanna til
að gefa þeim hjálm sem fyrst.
Reyndar gmnar mig að flestir þeirra
eigi nú þegar hjálm en þá er það
hlutverk foreldra þeirra að skikka þá
til að nota þá. Síðan er það annað
mál með þessar húfur þeirra. Þær ná
alltaf langt niður fýrir augu þannig
að mig undrar að þeir skuli yfir höf-
uð sjá eitthvað, en það er nú annað
mál. Hjálmurinn er númer eitt.
Orðsendinq til villtra pítsusendla
Kennaranemi skrífar.
Tvisvar á einni viku hef ég setið
fram eftir kvöldi við lærdóm uppi í
Kennaraháskóla og ákveðið með fé-
lögum mínum að panta mér pítsu. í
bæði þessi skipti hef ég beðið og
beðið, síðan hef ég beðið aðeins
lengur. Loksins hef ég hringt á pítsu-
staðinn sem ég pantaði hjá. Þar var
mér sagt að pítsan hlyti bara að vera
á leiðinni, hún væri löngu farin út.
Þá hef ég beðið enn meira og síðan
hringt aftur. í bæði skiptin fékk ég
sömu svör: „Pítsusendillinn fann
ekki þennan Kennaraháskóla. Get-
urðu nokkuð lýst aðeins húsinu?”
Ha? Ertu ekki að grínast? Risastórt
hús við Stakkahlíð sem stendur á:
Kennaraháskóli íslands. Erfitt að sjá
hann ekki. Það er því spurning hvort
pítsusendlar fslands séu upp til
hópa náttblindir.
Langsótt pítsa „Pítsusendillinn fann ekki
þennan Kennaraháskóla," sagöi símastúlkan.
I dag
árið 1994 varðHelgi Áss
Grétarsson, 17 ára
Verslunarskólanemi,
heimsmeistari í skák í
flokki 20 ára og yngri.
Hann hlaut jafnframt
stórmeistaratitil.
einni kvikmynd til viðbótar,
Something’s Got to Give, en var rek-
in úr henni vegna tíðra veikinda og
fjarveru frá tökustað. Margir telja
þessar tíðu fjarverurhennar tengjast
eiturl>'fjafíkn hennar. í ágúst 1962
lést Marilyn vegna of stórs skammts
af svefntöflum. Dauði hennar var
talinn vera sjálfsvíg.
Geir Ágústsson
talar um norsku þing-
kosningarnar.
Frjálshyggjumaðurinn segir
Norskirvinstri-
menn
Norðmönnum varð það á um
daginn að kjósa yfir sig vinstristjóm.
Norskir vinstriflokkar em nú við að
ná samkomulagi um stjómarsam-
starf og slíkt veit aldrei á gott. Fyrir
kosningar höfðu flokkamir lofað
skattahækkunum, erfiðara rekstrar-
umhverfi fyrir einkareknar stofhanir
og fyrirtæki á ýmsum sviðum, auk-
num flutningi tekna frá einum vasa í
annan, auknu skriffæði, auknum
stuðningi við einn samfélagshóp á
kostnað annars, aukinni ringulreið í
efnahagsmálum og almennt auknum
umsvifum hins opinbera á kostnað
einkaaðila. Með því að pakka þessum
dæmigerðu vinstristeihumálum inn í
ákveðna gerð umbúða og hálfsann-
leiks tókst að sannfæra meirihluta
kjósenda sem væntanlega verður til
að tryggja óstjóm í Noregi næstu
fjögur árin. Hins vegar var tímasetn-
ingin fyrir íslendinga eins góð og
hægt er að hugsa sér. Nú getum við
fylgst með norskum vinstrimönnum
ausa olíupeningum og skattahækk-
unum á víxl út í samfélag sitt og fylgst
með því hvemig þeir klúðra því sem
þeir geta, og um leið lært okkar
f> lexíu. Á íslandi er nefiiilega stað-
an sú að vinstri-
menn gætu,
með smá-
heppniíbland
við óheppni
hægrimanna,
náð meirihluta
Vinstri stjórn
Geir harmar úrslit
á Alþingi af
þingkosninganna heirri einfiilHii
iNoregi fyrir hönd r
Norðmanna. | ástæðu að folk
fær leið á því sem
gengur ofvel of lengi. Norskir
vinstrimenn ná vonandi að hræða ís-
lenska kjósendur frá slíkri tilrauna-
starfsemi.
Skemmtilegur tónn í nánast öllu
„Við erum í tónleikaferð um
landið sem er um það bil hálfnuð.
Vorum með tónleika í Garðabæ í
gær og svo verður Eyjafjörður
tekinn í kvöld og Reykjanesbær á
föstudag,” segir Sigurður Flosa-
son, djasskóngur íslands að
sumra mati. „Svo erum við að
taka upp nýja plötu um helgina
með Kristjönu Stefánsdóttur
söngkonu, sem er í fyrsta sinn
sem ég vinn með söngvara, svo
það verður spennandi.”
Blaðamaður minnist þess að
Sigurður kom ásamt félögum sín-
um í MS þar sem hann var við
nám, þar sem augu og eyru hans
opnuðust fyrir djassi, eitthvað
sem hefur fylgt honum æ síðan.
„Það er alltaf skemmtilegt að
kynna nýja tónlist fyrir fólki og
þvf sérlega gaman þegar fólk
mætir vel á tónleika, eins og
raunin hefur verið," segir Sigurð-
ur. „Mín pólitík í tónlist er að hafa
soldið víða sýn. Það er svo margt
skemmtilegt í heimstónlistinni,
þar með talið í gamalli íslenskri
þjóðlagatónlist. Þess vegna getur
maður heldur ekki nefnt einn sér-
stakan tónlistarmann eða -stefnu
sem hefur vaidið einhverjum
straumhvörfum í lífi manns. Það
eru líka frábærar hljómsveitir
sem eru að opna augu almenn-
ings fyrir öðruvísi tónlist, eins og
t.d. Sigur Rós sem hefur verið að
gera stórkostlega hluti. Þetta er
svakalega flókinn og erfiður
bransi markaðslega séð, en sem
betur fer höfum við Loftbrúna,
sem er sjóð-
ur sem tón-
listarmenn
geta sótt um
í til að koma
tónlist sinni
„Mín pólitík i tónlist
er að hafa soldið
víða sýn. Það er svo
margt skemmtilegt í
heimstónlistinni, þar
með talið í gamalli
íslenskri þjóð-
lagatónlist."
á framfæri og ýmis önnur hjálp
sem tónlistarmenn fá sem ekki
var til fyrir nokkrum árum síðan."
urður Flosason er einn mesti djassgeggjari Islands-
lunnar, enda á hann 25 ára starfsafmaeli um Þ«sar
ndir. Hann kom fyrst fram 16 ára gamall og hefur gef.ð
linn í djasssögunni.