Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Side 39
DV Síðast en ekki síst
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005 39
Hvers ætti ég að gjalda ef ég væri
dagdrykkjumaður? Búið að selja
Kaffi Austurstræti, rífa Skipperinn,
leggja niður Keisarann og Hafnar-
krána.
Fyrir bara tíu árum gátu dag-
drykkjumenn valið úr a.m.k. þrem-
ur börum sem hannaðir voru sér-
staklega fyrir þeirra þarfir. Keisar-
inn var aðalstaðurinn. Þar fóru dag-
drykkjumenn úr skónum og höll-
uðu sér í sófanum. Keisarinn var
hlýlegt heimili dagdrykkjumanns-
ins. Krá á heimsmælikvarða. En yf-
irvöld hröktu hann burt. Margeir,
maðurinn sem átti staðinn, fór í
spilakassana og græddi fúlgur.
Hafnarkráin var númer tvö. Þar
var seldur dýrindis landi og plokk-
fiskur. En Geiri ákvað að snúa baki
við dagdrykjumönnunum og stofna
Maxim’s erotic Whisky bar. En þá
var Skipperinn eftir. Þar var víst líka
hægt að fá plokkfisk. Nú er búið að
rífa hann.
Kaffi Austurstæti var síðasta von
dagdrykkjumannsins. Þar þótti gott
að koma. Þjófar og morðingjar
landsins áttu þar öruggt húsaskjól
og eigandinn hafði öruggan biss-
ness. Sú var líka raunin með hina
Sigurjón Kjartansson
er ekki dagdrykkjumað-
uren veltir fyrir sérhvar
hann gætistundað sína
dagdrykkju efhann væri
það. Möguleikarnir eru
ekki margir lengur.
staðina. Þetta voru einu staðimir
sem vom með öruggan bissness.
Þeir þurftu ekki að ráða skemmt-
anastjóra eða reyna að fá frægt fólk
inn til að trekkja að. Þeir höfðu
trygga kúnna. En nú er pabbi Her-
manns Hreiðarssonar búinn að
kaupa Kaffi Austurstræti og rífa allt
út.
Það er semsagt búið að hrekja
dagdrykkjumennina út á götu. Nú
hafa þeir ekkert húsaskjól. Áður gátu
þeir vaihoppað upp í Trygginga-
stofnun, tekið út örorkubætumar og
þaðan beint inn á Keisara sem var
staðsettur í húsinu við hliðina. Núna
fara allar örorkubætumar í leigubíl
sem keyrir um bæinn í leit að partíi.
Og það er ekkert partí lengur. Allt h't-
ur út fyrir að dagdrykkjumenn þurfi
að hætta að drekka.
Hafnarkráin Enginn
plokkfiskur. Engin krá.
Búið að rífa Skipp-
erinn Urð og grjót.
Síðast en ekki síst
(slenskt veður er
leiðinlegt. Fjöllin
hvít. Suður-
Evrópubúareru
hinsvegar í
fínum
málum.
Victoria og
David
Beckham
fátil
dæmis 31
stig í dag.
3p
vj Nokkur vindur
WESm** ' - ^ ' i
“ áp
•* O Gola ^
C3
Gola
Kaupmannahöfn 16 París 22 Alicante 28
Ósló 14 Berlín 20 Mílanó 25
Stokkhólmur 13 Frankfurt 27 NewYork 26
Helsinki 14 Madrid 31 San Francisco 18
London 21 Barcelona 27 Orlando/Flórída 32
*
Sólmundur Hólm
Sandkorn
• Ástin virðist
blómstra hjá þeim
Völla Snæ og Þóm
Sigurðardóttur úr
Stundinni okkar.
Völli rekur nokkra
veitingastaði í
Karíbahafinu en
hann kom óvænt í
heimsókn til sinnar heittelskuðu
fyrir helgina. Völli
er sannkallaður
kvennaljómi og
kann að gleðja
konur. Gerði
hann sér lítið fyrir
og bauð Þóru til
Bahamaeyja.
Parið ástfangna
lagði af stað f gær
í rómantíska för og munu þau
verja næstu dögum innan um
kokteila og kavíar. í lífsins ólgu-
sjó...
• Á dögunum var fjallað um í
Sandkornum að Guðmundur
Hrafnkelsson
handboltamark-
vörður hefði
hafið nám í
sjúkraþjálfun. í
sömu frétt var því
ranglega haldið
fram að Guð-
mundur væri bú-
inn að leggja
markmannstreyjuna á hilluna.
Það er fjarri sannleikanum því
Guðmundur er með tveggja ára
samning við kjúklingaveldið Aft-
ureldingu og stendur þar vaktina
milli stanganna. Þykir hann hafa
ótrúlega snerpu miðað við aldur...
• Ráðning Teits
Þórðarsonar til
KR hefur ekki far-
ið fram hjá
nokkrum manni.
Knattspyrnuunn-
endur gleðjast
yfir því að fá
krafta hans í ís-
lenska boltann en það eru ekki
einungis karlkyns
knattspyrnu-
áhugamenn sem
gleðjast. Konur í
Vesturbænum
eru víst
hæstánægðar
með að fá Teit á
sínar slóðir og
segja hann með
huggulegri mönnum. Hafa sumar
KR-konur tekið svo djúpt í árinni
að líkja honum við José Mourinho
þjálfara Chelsea...
• Indverska yndið okkar hún Icy
Spicy Leoncie er nú endanlega á
förum. f gær fór hún á Hagstofu
íslands til þess að láta flytja lög-
heimili sitt. Þær urðu þó hvumsa
konurnar á
Hagstof-
unni þegar
þær reyndu
að fá upp
úr henni
nýja heimil-
isfangið. Icy
Spicy vildi
ekki gefa
neitt annað
upp en
„Asía (Ótil-
greint)".
Prinsessan
segist ekki
kæra sig
neitt um það að íslenskir rasistar
viti hvert hún er að flytja. Nú bíð-
ur hún í ofvæni eftir að komast
burt en segist tilbúin að koma
hingað til að spila fyrir 200 þús-
und krónur. Upp með veskin,
kæru tónleikahaldarar...