Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 17
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 17
Sveðjum beitt Tveir voru afhöfðaðir i árásinni. Mara Salvatrucha Meðlimir klikanna bera litla sem
enga virðingu fyrir mannstifum.
Ummerkin Blóðpollarnir voru út um Ráða yfir hverfum og borgum Klikurnar eru áberandi ísamfé- Ljót aðkoma Tólf létust í árásunum og fjórtán aðrir særðust.
allt hús eftir slátrunina. laginu. Merkja sér heilu hverfin með graffitiverkum.
Vantar ekki meðlimi Ungirpiltar standa i röðum eftir að fá að vera meðlimir i Mara 7 8 og Mara Salvatrucha. Þau eru alræmdust gengja Ovatemala og teygja sig til annarra landa.
NASA lætur ekki deigan síga
Aftur til tunglsins 2020
Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna kynnti á mánudaginn áætlanir
sínar um að lenda mönnum aftur á
tunglinu árið 2020. Kynningin var
þörf fyrir stofnunina. Eftir Col-
umbia-slysið árið 2003 og hnökra á
geimferð Discovery hefur trú al-
mennings á henni hríðfallið.
Michael Griffin forstjóri talaði því
með stolti. „Við munum snúa aftur
til tunglsins ekki seinna en árið 2020.
Útrás mannkyns mun ná yfir sólkerf-
ið og enn lengra," sagði hann en
tunglið er hugsað sem bækistöð fyrir
mannaðar geimferjur á leið til Mars.
NASA ætlar sér að hætta notkun
geimskutlna árið 2010. Þá taka við
ferjur, sem eru í ætt við gömlu
Apollo-geimferjumar. „Apollo á ster-
um,“ sagði Griffin en nýju ferjurnar
Lagt af stað Elds-
neytistankarnir springa
af geimferjunni fyrir
utan gufuhvolfið.
rúma fjóra geimfara. hafa 12 menn gengið á því. Nýja
NASA sendi níu leiðangra til áætlunin kostar um 6.500 milljarða
tunglsins á árunum 1968 til 1972. Alls króna.
Annar bylur
Florida Keys-svæðið var
rýmt í gærmorgun vegna
fellibylsins Ritu, sem skall á
því rétt fyrir hádegi. Felli-
bylurinn var nokkuð öflug-
ur. Hann var fyrst skil-
greindur sem hitabeltis-
stormur en rétt áður en
hann skall á ströndinni var
skilgreiningunni breytt í
fellibyl og íbúar beðnir um
að drífa sig sem lengst.
Erfitt í
Orleans
Þúsundir manna vinna
þessa dagana við það að
koma New Orleans aftur í
gang. Borgarstjórinn og
Bush Bandaríkjaforseti
hvetja íbúa til að snúa aftur
til borgarinnar en það
reynist erfitt. í mörgum
hverfum borgarinnar er lít-
ið um rennandi vatn og
aðrar nauðsynjar. Ekki er
enn komið í ljós hversu
margir létu lífið í hörmung-
unum en talið er að tala
látinna sé lægri en óttast
var.
Brjáluð með
hníf
Nemendum í stúlkna-
skóla í Bangkok fannst
varla þægilegt þegar lög-
reglan mætti í síðustu viku
með brjálaða hnífakonu á
heimavistina. Nokkrum
dögum áður réðst konan
inn á stúlkurnar með hníf,
stakk nokkrar þeirra og
flúði af vettvangi. Hún
brosti út að eyrum þegar
hún fór í gegnum það sem
gerðist með lögreglunni.
Árás
undirbúin
Lögreglan í London
sýndi í gær myndir af
þremur af fjórum sprengju-
mönnunum frá 7. júlí sem
náðust í öryggismyndavél
28. júní. Þar sjást þeir fara í
æfingarferð fyrir sprengju-
daginn örlagaríka og
skipuleggja ferðir hvers og
eins nákvæmlega. 52 létust
í sprengingunum.