Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 Síðast en ekki síst DV J352ES3 Dularfullt auglýsingaskilti. DV mynd E.ÚI. Leiðinlegi Kanadabúinn eyðilagði áhersluþögnina Hljómsveitin Sigur Rós er þessa dagana á tónleikaferðalagi um heiminn tU að fylgja eftir nýju plöt- unni, Takk. Á þriðjudagskvöld hélt hún tónleika í Toronto og fyllti þar Massey Hall-tónleikahöllina. Sigur Rós tók bæði lög af plöt- unni sem gerði þá fræga, Ágætis byrjun, og af Takk. Gagnrýnandinn Jane Stevenson skrifaði um tónleik- 'ana í Toronto Sun í gær og átti varla orð yfir ágæti strákanna og stelpnanna í Aminu, sem spiluðu með þeim. Jane var hins vegar elcki ánægð með einn kanadískan áhorfanda á tónleikunum. Hún tekur Sigur Rós Ha? TJÚÚÚÚ! Hið fræga tjú | - Jónsa gafáhorfand,:, L , Toronto færi á brand- ara.sem féllekki I kramið hjá öllum. mjög alvarlega, eins og svo margir. í einu frægasta laginu, Viðrar vel til loft- árása, lækkaði hljómsveitin niður í tónlistinni og stóð grafkyrr í um mín- útu í áhersluþögn. Þá greip einn „fáviti" til sinna ráða og söng eins og Jónsi, „tjúúúúúúú", fullum hálsi. Höllin sprakk úr hlátri og áhersluþögnin eyðilagð- ist. Alvarlegu áhorfendunum var stórlega misboðið. Sigur Rós lét þetta aftur á móti ekki slá sig út af laginu og endaði tónleikana með glæsibrag. Hvað veist þú um Hafnarfjarðar- leikhúsið 1. Hvenær var Hafnaríjarð- arleikhúsið stofnað? 2. Hvað hét fyrsta leikritið sem sett var upp hjá leikfé- laginu? 3. Hver samdi það? 4. Hvað hafa margar sýn- ingar verið settar upp í leik- húsinu? 5. Hver leikstýrir nýjustu sýningu leikhússins? Svör neðst á síöunni Hvað segir mamma? „Ég hlusta mikið á tónlist sonar míns/'segir Eydís Kr. Sveinbjarnar- dóttir, móðir tónlistarmannsins Svein- björns Thoraren- sen en hann gengur undir nafninu Hermi- gervill. „Mér finnst hún frá- bæren þú veist hvernig þetta er með mæð- ur. Mér finnst vera mikil melódía i lögunum og hefgaman aftaktin- um. Ég komst reyndar ekki á út- gáfutónleikana sem voru á föstu- daginn en ég fór að sjá hann á Airwaves-hátiðinni í fyrra. Ég fílaði það í botn." Hermigervill hefur vakið athygli fyrir frumiegar tónsmiðar sínar. Nýútkominn diskur hans ber nafnið Hermigervill - Sleepwork. hið óvænta. Stökkva á svið og syngja með Sálinni. Svön 1. Það var stofnað árið 1996.2. Það var Himnaríki. 3. Árni Ibsen samdi það. 4.22 sýningar. 5. Það er Hilmar Jóns- son. Þórunn Antonia Hljómsveitin Joke Eye Band gerði garðinn frægan í Stykkishólmi fýrir tveimur áratugum. Síðan þá hef- ur lítið frést til hennar en nú ætla meðlimir sveitarinnar að skríða úr híðinu og taka upp plötu. Jóhann Eggertsson, t/ trommuleikari sveitar- innar, sagði í samtali við | DV í gær að platan væri til 'J styrktar körfuboltaliði Snæfells sem væri stolt Hólmara. Með Jóhanni í sveitinni eru gítarleikararn ir Jóhann Jón fsleifsson o; Hjálmar Sigurþórsson, bassaleikarinn Kristinn Ellertsson og söngvarinn Gamla myndin Bárður Eyþórsson, sem er einmitt þjálfari Snæfells. Jóhann sagði að hljómsveit- , in myndi ekki flytja nein \ frumsamin lög á plötunni. g „Þetta verða tíu tökulög úr öllum áttum, stemnings- lög sem allir þekkja," í I sagði Jóhann og viður- kenndi að menn væru kannski orðnir svolítið ryðgaðir eftir langt hlé. „Þetta verður kannski svolítið stirt byrjun enda sautján ár síð- an við spiluð- um síðast a saman en það verður bara talið í og platan tekin upp í einni bunu." Jóhann sagði að Bárður þjálfari væri fínn söngvari. „Eigum við ekki að segja að hann sé góður. Hann er bestur í rokkinu," sagði Jóhann sem segir að platan verði klár fyrir fyrsta heimaleik Snæfells í deildinni, 13. október næst- komandi. Þetta er ekki fyrsta hljómplatan sem kemur út til styrktar Snæfelli því söngkonan Þórunn Antonía söng fjögur lög inn á þröngskífu síðasta vetur sem vakti mikla athygli. Gamlir Hólmarar spila iaa Vilja styrkja lörfabanaliO Samfell Brynja hans Bubba blandar kokkteil Það var sunnudagskvöld, 23. apríl 1989. Brynja Gunnarsdóttir stóð á sviði Súlnasals Hótels Sögu og fagnaði sigri í íslandsmeistara- keppninni í gerð sætra kokkteila. Sigurkokkteilinn nefn-di hún Sól og sumar. „Þetta var mjög erfið keppni enda var ég að keppa við þaul- reynda barþjóna sem margir hverjir hafa keppt oft erlendis," sagði Brynja þegar sigurinn var f höfn. „En þetta var skemmtilegt," bætti hún við. Á þessum tíma voru Brynja og Bubbi búin að rugla saman reytum sínum og eftir að verðlaun höfðu verið afhent sté Bubbi á svið og óskaði kærustu sinni til hamingju. Við það tækifæri lét hann í fyrsta sinn þá setningu um munn fara sem síðar varð fleyg: „Brynja, ég elska þig!“ Brynja var aðeins 23 ára þegar þetta var og fyrsta konan í Bar- þjónaklúbbnum sem bar sigur úr býtum í keppni sem þessari. Með fylgdi réttur til að taka þátt í Heims- meistaramóti barþjóna sem haldið var í Mexíkó tveimur árum síðar. Alls voru keppendur á Hótel Sögu 21 talsins og lagði Brynja þá alla þrátt fyrir ungan aldur. Brynja tekur við verð- laununum Með henni á myndinni erþáverandi for- maður Barþjónaklúbbsins, Hafsteinn Eailsson. Krossgátan Lárétt: 1 bjálki, 4 ferlíki, 7 hrósar,8 bergmálar, 10 greind, 12 smáger, 13 ímyndun, 14 vont, 15 arða, 16 myrk, 18 sauð- skinn,21 viðkvæmur, 22 bráðlega,23 blót. Lóðrétt: 1 fótabúnað, 2 fóðra, 3 frami,4 basl, 5 púki,6 gagn,9 mæti, 11 ánægðir, 16 dolla, 17 þræll, 19 heiður,20 beita. Lausn á krossgátu •uBe oz 'etæ 6 L 'ueuj l l 's?P 91 'J||æs i l '!>psuj 6 'iou 9 'uy s 'JnBujujeq f 'unujojpoj £ 'e|e z' o>)s 1 ujajgoi •uBej ez 'uuas ZZ 'Jnujne iz 'ejæB 8 l 'ujtuip 91 'uBo s l 'lll! V l 'J6JO £ l 'ujj z L Tsu 0 L 'Jeuig 8 'Jejo| l 'u>|eq y 'jejs l :j;?jei :usneq Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Fundarboð Til hagsmunaaðila á og við reit milli Einholts og Þverholts. Boðaö er til kynningarfundar að Kjarvalsstöðum, í dag, miðvikudaginn 21. september, kl. 20:00. Til fundarins boða formaður skipulagsráðs og skipulagsfulltrúi Reykjavíkur. íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta á fundinn til að kynnast og hafa áhrif á framþróun og uppbyggingu í hverfinu. Skipulags full trúi/Skip ulagsráð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.